Gætu spilað heimaleiki sína í Meistaradeildinni á heimavelli Brentford Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júní 2026 16:15 Leikmenn Shakhtar Donetsk fagna úkraínska meistaratitlinum sem liðið vann á síðasta tímabili. getty/Les Kasyanov Þótt Brentford leiki ekki í Meistaradeild Evrópu gætu leikir í keppninni farið fram á heimavelli liðsins, Gtech Community-leikvanginum.
Brentford á nefnilega í viðræðum við Shakhtar Donetsk um að úkraínska liðið spili heimaleiki sína í Meistaradeildinni á næsta tímabili á Gtech Community-leikvanginum. Shakhtar fer beint inn í deildarkeppni Meistaradeildarinnar. Eftir innrás Rússa í Úkraínu hefur Shakhtar verið á vergangi og liðið hefur leikið Evrópuleiki sína utan heimalandsins. Á síðasta tímabili fóru Evrópuleikir Shakhtar fram í Ljubljana í Slóveníu og Kraká í Póllandi. Samkvæmt heimildum BBC standa viðræður milli Shakhtar og Brentford nú yfir. Talsmaður úkraínska félagsins staðfesti að nokkrir vellir á Bretlandi og í Þýskalandi kæmu til greina til að lýsa leiki þess í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Heimavöllur Brentford uppfyllir kröfur evrópska knattspyrnusambandsins varðandi leikvanga í Meistaradeildinni. Frá þeirra bæjardyrum séð er því ekkert því til fyrirstöðu að Shakhtar leiki á Gtech Community-leikvanginum í Meistaradeildinni næsta vetur. Brentford hefur áður leigt heimavöll sinn út fyrir vináttulandsleiki og World Sevens fótboltamótið. Þá fóru fjórir leikir á EM 2021 kvenna fram á Gtech Community-leikvanginum. Shakhtar varð úkraínskur meistari á síðasta tímabili, í sextánda sinn. Tyrkinn Arda Turan, fyrrverandi leikmaður Atlético Madrid, Barcelona og fleiri liða, er þjálfari Shakhtar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira