Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Stefán Vagn Stefánsson skrifa 27. júní 2026 09:32 Þegar litið er til baka var þingveturinn 2025–2026 krefjandi en áhugaverður. Óvæntir atburðir settu svip á stjórnmálaumræðuna, eins og svo oft áður, en stóru mál vetrarins snerust þó í grunninn um helstu undirstöður samfélagsins: heimilin, atvinnulífið, byggðir landsins, menntun, heilbrigðisþjónustu, auðlindirnar og framtíð landsins alls. Í öllum þessum málum skiptir mestu að stjórnmál snúist ekki aðeins um stór orð, heldur ábyrgð í verki. Viðvaranir um brostnar forsendur Í umfjöllun um fjárlagafrumvarp ársins 2026 varaði þingflokkur Framsóknar við því að forsendur frumvarpsins væru of bjartsýnar. Efnahagshorfur bentu til kólnandi hagkerfis, hægara vaxtalækkunarferlis og þrengri stöðu ríkissjóðs. Það sem við bentum á hefur í meginatriðum gengið eftir. Afkoma ríkissjóðs hefur versnað, hagvaxtarhorfur eru lakari og vaxtalækkunarferlið hefur gengið hægar en vonir stóðu til og raunar hafa vextir hækkað, því miður. Lánakjör heimila og fyrirtækja eru áfram langt frá því sem eðlilegt getur talist. Þetta finnum við meðal annars í greiðslubyrði lána, óvissu á fasteignamarkaði og þrengra svigrúmi fyrirtækja. Sama staða var uppi við meðferð fjármálaáætlunar áranna 2027–2031, sem var samþykkt á Alþingi hinn 18. júní sl. Í ljósi brostinna forsendna krafðist þingflokkur Framsóknar þess að Alþingi fengi uppfærð gögn og endurmat á forsendum áætlunarinnar áður en hún yrði samþykkt. Ekki var fallist á þá beiðni. Að mati Framsóknar stefnir í að ríkissjóður verði að óbreyttu rekinn með halla á bilinu 15–25 milljarða króna árið 2027. Á sama tíma heldur ríkisstjórnin enn í markmið um 1,1 milljarðs króna afgang á árinu 2027, byggt á forsendum sem öllum er ljóst að standast ekki lengur. Þetta er verulegt frávik frá þeirri mynd sem fjármálaáætlunin dregur upp og kallar á skýr viðbrögð og fullnægjandi rökstuðning. Eigi að nást afgangur af rekstri ríkissjóðs árið 2027 þarf augljóslega að grípa til aðgerða. Húsnæðismál í brennidepli Þróun húsnæðismarkaðarins hefur eðlilega verið mikið til umræðu. Háir vextir, hækkandi fasteignaverð undanfarinna ára og takmarkað framboð á viðráðanlegu húsnæði skapa togstreitu og óvissu, ekki síst hjá þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref inn á markaðinn. Því þarf að leggja ofuráherslu á efnahagslegan stöðugleika sem er forsenda heilbrigðs húsnæðismarkaðar. Jafnframt verður að tryggja að framboð íbúða sé í góðu samræmi við raunverulegar þarfir fólks, ekki aðeins markaðsleg tækifæri byggingaraðila á hverjum tíma. Hér þarf aukna og markvissa samvinnu allra hagaðila til að bæta úr stöðu mála. Samgöngur og verðmætasköpun um land allt Öruggar samgöngur eru forsenda þess að fólk geti búið og unnið um allt land og að verðmætasköpun geti vaxið þvert á greinar atvinnulífsins. Í því ljósi er samgönguáætlun ein mikilvægasta áætlun ríkisins. Það vekur því athygli að fjárheimildir til samgöngu- og fjarskiptamála dragast saman um tæplega 1,5 ma.kr. á tímabili fjármálaáætlunarinnar frá 2027–2031, þrátt fyrir mikla þörf fyrir viðhald og uppbyggingu innviða. Stofnun innviðafélags, sem Alþingi hefur þegar samþykkt, getur vissulega skapað aukið svigrúm til framkvæmda og fært tiltekin verkefni í annan fjármögnunarfarveg. Þar liggur fyrir að Fljótagöng verði meðal verkefna félagsins og Sundabraut hefur einnig verið nefnd í því samhengi. Enn er þó margt á huldu um heildarmyndina: hvaða verkefni verða áfram fjármögnuð innan málefnasviðs 11, hvaða verkefni færast til innviðafélagsins, hvernig tekjustofnar þess verða tryggðir og hvenær framkvæmdir hefjast. Mikilvægast er að óvissa um nýtt fyrirkomulag verði ekki til þess að nauðsynleg verkefni tefjist. Við þurfum meiri stöðugleika og fyrirsjáanleika almennt í allri áætlanagerð ríkisins. Áætlanir sem varða innviði, byggðaþróun, atvinnulíf og ríkisfjármál verða að mynda eina heild. Annars verður hætt við að stór orð um uppbyggingu og bætta þjónustu skili sér ekki í framkvæmdum á tilætluðum tíma. Staða mennta- og heilbrigðismála Menntamál hafa eðlilega verið í brennidepli undanfarna mánuði, ekki síst vegna vaxandi áhyggna af árangri nemenda og fjármögnun menntakerfisins. Menntun er ekki venjulegur útgjaldaliður eða fjárheimild sem hægt er að skera niður til þess eins að bæta stöðu ríkissjóðs til skamms tíma. Menntun er undirstaða allrar framþróunar samfélagsins. Í þessu ljósi vekur athygli að þrátt fyrir langvarandi fjármagnsskort leggur ríkisstjórnin til í núgildandi fjármálaáætlun að fjárheimildir til framhaldsskólastigsins dragist saman um tæpa fjóra milljarða króna fram til ársins 2031. Með sama hætti hefur staða heilbrigðismála verið áberandi í umræðu síðustu mánaða. Staða heilbrigðiskerfisins er vissulega mikil áskorun. En við getum ekki aðeins horft til hækkunar fjárheimilda til að takast á við aukna þörf fyrir bætta þjónustu. Við þurfum líka að hafa skýra mynd af því hvað fæst fyrir auknar fjárheimildir. Aukið fjármagn þarf að skila betri þjónustu, skýrari ábyrgð og mælanlegum árangri fyrir fólkið í landinu. Næstu mánuðir munu leiða í ljós hvort og hvernig ríkisstjórnin bregst við þeirri gagnrýni sem beinst hefur að verkum hennar síðustu vikur og mánuði. En sameiginlegt verkefni okkar allra liggur fyrir: að stuðla að ábyrgri þróun ríkisfjármála, styrkja innviði samfélagsins, tryggja öfluga þjónustu og skýra framtíðarsýn fyrir landið allt. Höfundar eru formaður Framsóknarflokksins og formaður þingflokks Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lilja Dögg Alfreðsdóttir Framsóknarflokkurinn Stefán Vagn Stefánsson Mest lesið Halldór 29.08.26 Halldór Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar