Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar 27. júní 2026 17:32 Þegar talað er um innviði samfélagsins hugsum við gjarnan um vegi, skóla, heilbrigðisþjónustu, samgöngur, hjúkrunarheimili o.s.frv. Allt eru þetta nauðsynlegir innviðir sem við viljum efla og byggja upp. En við eigum það til að gleyma öðrum innviðum sem eru ekki síður mikilvægir, þótt þeir sjáist ekki á korti eða í fjárlögum. Það eru tengslin á milli fólks. Samfélag byggist nefnilega ekki eingöngu á stofnunum eða þjónustu. Það byggist líka á því að fólk þekkist, treysti hvert öðru og upplifi að það skipti máli í lífi annarra. Þegar fjölskyldur hafa bakland, nágrannar hjálpast að og kynslóðir eiga eðlileg samskipti verður samfélagið sterkara og seigara. Þegar þessi félagslegu tengsl veikjast færist álagið smám saman yfir á aðra innviði samfélagsins. Foreldrar standa oftar einir, fleiri upplifa einmanaleika og sífellt meiri væntingar eru gerðar til velferðarkerfisins um að leysa verkefni sem áður voru oftar leyst í gegnum fjölskyldur, vina- og nágrannatengsl eða nærsamfélagið. Þess vegna vakti nýr Talnabrunnur embættis landlæknis athygli mína. Þar kemur fram að hamingja landsmanna fer minnkandi og einmanaleiki er að aukast. Jafnframt kemur fram að ungt fólk kemur verr út en eldri aldurshópar þegar horft er til hamingju, andlegrar líðanar og einmanaleika. Höfundarnir velta upp þeirri spurningu hvað hafi breyst í samfélaginu og hvernig megi snúa þessari þróun við. Þeir nefna einnig að ástæða sé til að skoða hvort skortur á seiglu geti að einhverju leyti skýrt þessa þróun. Það er mikilvægasta spurningin af öllum. Ekki fyrst og fremst hvernig við eigum að bregðast við vandanum, heldur hvers vegna hann er að verða til? Erum við að spyrja rangra spurninga? Viðbrögðin felast yfirleitt í því að spyrja hvernig hið opinbera geti bætt við fleiri úrræðum, aukið þjónustu, létt undir með fólki eða einfaldað lífið. Allt eru þetta verðugar spurningar. En eru þær þær mikilvægustu? Felst lausnin eingöngu í meiri eða nýrri þjónustu eða líka í sterkari tengslum? Hvað ef börn fá fleiri tækifæri til að bera ábyrgð? Hvað ef foreldrar hafa sterkara bakland? Hvað ef ömmur og afar gegna stærra hlutverki í daglegu lífi barnabarna sinna? Hvað ef nágrannar þekkja hvert annað betur? Hvað ef samfélagið sjálft er seigara? Við höfum á undanförnum áratugum lagt ríka áherslu á að bæta þjónustu og fjölga úrræðum, með misgóðum árangri, því miður. Sú þróun hefur hins vegar í mörgum tilfellum verið bæði mikilvæg og nauðsynleg. En á sama tíma má velta því fyrir sér hvort fyrsta spurningin sé smám saman orðin: Hvaða nýju þjónustu þurfum við? í stað þess að spyrja: Hvað hefur breyst í samfélaginu? Af hverju er þessi staða komin upp? Ég er ekki að segja að við eigum að draga úr þjónustu, þvert á móti. En við þurfum að þora að skoða hvort við séum alltaf að leita á réttum stað að lausnunum. Það sem hefur heillað mig mest í öldrunarfræðum síðustu ár er að áherslan hefur smám saman færst frá því hvað við getum gert fyrir fólk yfir í hvernig við getum stutt fólk til að viðhalda færni sinni, þátttöku, tilgangi og tengslum eins lengi og kostur er. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur meðal annars lagt ríka áherslu á að virk þátttaka, félagsleg tengsl og merkingarbær hlutverk séu lykilþættir heilbrigðrar öldrunar. Það sem mér finnst sérstaklega áhugavert er að þessi hugsun á ekki aðeins við um eldra fólk. Er þá ekki líklegt að börn dafni betur þegar þau hafa hlutverk innan fjölskyldunnar og samfélagsins? Standa foreldrar ekki sterkari þegar þau hafa raunverulegt bakland? Og verður samfélagið ekki seigara þegar kynslóðir hafa fleiri tækifæri til að hjálpast að? Er seigla kannski ekki aðeins eiginleiki einstaklinga heldur líka samfélagsins? Samfélag verður ekki seigt vegna þess að hver og einn ber sífellt meiri ábyrgð einn og sér. Það verður seigt þegar fólk hefur tengsl, getur treyst hvert á annað, hjálpast að og upplifir að það skipti máli í lífi annarra. Þá verða þessi verkefni ekki lengur aðskilin. Börn þurfa hlutverk - foreldrar þurfa stuðning - eldra fólk þarf tilgang - samfélagið þarf tengsl. Ég hef oft sagt að markmið velferðarkerfisins eigi ekki að vera að leysa fjölskylduna og samfélagið af hólmi - markmið þess á að vera að styrkja samfélagsvistkerfið. Auðvitað eigum við að hafa öflugt velferðarkerfi, en við eigum líka að spyrja oftar: Hvað getum við gert til að styrkja tengsl áður en við búum til ný úrræði? Hvernig getum við stutt fjölskyldur til að hjálpast meira að? Hvernig getum við skapað fleiri tækifæri fyrir kynslóðir til að eiga hlut í lífi hver annarrar? Hvernig byggjum við samfélag þar sem færri upplifa einmanaleika – ekki aðeins vegna þess að þjónustan sé góð, heldur vegna þess að tengslin séu sterk? Framtíð velferðarsamfélagsins ræðst ekki eingöngu af því hversu mörg úrræði við byggjum og þróum. Hún ræðst líka af því hvort okkur tekst að byggja samfélag þar sem tengsl, hlutverk og seigla verða aftur sjálfsagður hluti af daglegu lífi. Tengsl eru ekki bara falleg hugsjón - þau eru einn mikilvægasti innviður samfélagsins. Höfundur er kynslóðablandari og tómstunda- og félagsmálafræðingur. Heimildir Embætti landlæknis. Talnabrunnur 2026 – Líðan fullorðinna á Íslandi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO). UN Decade of Healthy Ageing 2021–2030 og World Report on Ageing and Health. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rannveig Tenchi Ernudóttir Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar