Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2026 18:06 Sjá má umfang grjóthrunsins á drónamyndum Þóris sem hann tók í gærkvöldi. Þórir Kjartansson Mikið grjóthrun varð í Reynisfjalli, rétt austan við Hálsanefshelli í Reynisfjöru, einum vinsælasta ferðamannastað landsins, á dögunum. Íbúi í Vík, sem náði drónamyndum frá vettvangi, segir ljóst að grjóthrunið hafi verið mikið og að hrunið hafi úr fjallinu úr um 100 metra hæð þar sem hæst var. „
Þetta er ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður. Þetta eru gríðarlega margir rúmmetrar í þessu hruni. Það er alveg greinilegt,“ segir Þórir Níels Kjartansson í samtali við Vísi. Sunnlenska sagði fyrst frá málinu. Þórir segist sjálfur fyrst hafa frétt af mögulegu hruni inni á Facebook-hópnum Baklandi ferðaþjónustunnar þar sem leiðsögumaður birti mynd þar sem sást glitta í berg í fjörunni austan við stuðlabergsnefið. „Sjórinn er upp að því ennþá. Eftir landbrotið í vetur sést þá ekki nema í fremstu steinana á myndinni. Leiðsögumaðurinn setti inn mynd af þessu og spurði hvort það hefði orðið grjóthrun þarna svo ég fór með drónann minn og myndaði þetta í gærkvöldi. Þá sést að þetta vik austan við stuðlabergið er eiginlega fullt af þessu grjóthruni.“ Að neðan má sjá drónamyndir Þóris frá vettvangi. Hann þekkir Reynisfjöru vel, enda hefur hann búið í Vík alla tíð. Gerist yfirleitt á vorin Þórir segir grjóthrun algeng úr Reynisfjalli. „Já, bæði þarna sunnan úr því og hér austan úr því. Það eru alltaf einhverjar grjótskriður úr fjallinu með einhverra ára millibili, langt langt aftur. Venjulegast gerist þetta fyrst á vorin þegar frost er að fara úr jörðu, en þetta getur auðvitað gerst á öllum árstímum. En ef fjaran hefði verið eins og hún er venjulega þá hefði verið krökkt af fólki þarna að deginum. Ef þetta hefur gerst að degi til, maður veit það auðvitað ekki. Þannig að þessi breyting á fjörunni – að þarna skyldi enginn vera – það er nú líklegt að það hafi forðað slysi.“ Heljarmikill fleygur Þórir segist giska á að hrunið hafi úr fjallinu úr um hundrað metra hæð. „Þetta hefur verið heljarmikill fleygur sem nær alveg niður úr. Ég sé á eldri myndum sem ég á að þarna hefur verið nokkuð stór sylla uppi í berginu, breið, og hún hefur alveg farin. Þetta hefur því verið þó nokkuð þykkt sem hefur farið og af stóru svæði enda er magnið mikið þarna í fjörunni,“ segir Þórir.
Mýrdalshreppur Reynisfjara Ferðaþjónusta Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira