Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar 30. júní 2026 08:32 Nýlegt viðtal við veitingamanninn Steinþór Helga Arnsteinsson á Vísir vakti athygli mína. Ekki vegna þess að þar komu fram ný sjónarmið, heldur vegna þess að enn einn rekstraraðilinn lýsir sömu áskorunum og við hjá SVEIT heyrum daglega frá félagsmönnum okkar. Áfengisgjaldið er orðið einn stærsti sértæki skattur ríkisins. Samkvæmt fjárlögum ársins 2026 er gert ráð fyrir að það skili ríkissjóði um 27 milljörðum króna. Það er um tvöfalt meira en veiðigjöld og rúmlega þrefalt meira en sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki. Þrátt fyrir það virðist þessi skattur nánast aldrei vera til umræðu. Við hjá SVEIT erum ekki að halda því fram að áfengi eigi ekki að bera sérstök gjöld. Það er eðlilegt að samfélagið skattleggi vörur sem hafa áhrif á lýðheilsu.En við teljum tímabært að spyrja nokkurra einfaldra spurninga. - Er eðlilegt að skattlagning mismunandi tegunda áfengis leiði til þess að ódýr bjór beri í sumum tilvikum hlutfallslega þyngri skattbyrði en margar sterkari víntegundir? - Er eðlilegt að veitingastaður sem kaupir áfengi í heildsölu til atvinnurekstrar greiði sama áfengisgjald á hverja einingu og einstaklingur sem kaupir áfengi til eigin neyslu, þótt veitingastaðurinn selji um leið þjónustu, mat, öryggi og upplifun. Sem útheimtir starfsfólk, húsnæði og aðra afleiðandi þjónustu. ? Þetta eru ekki róttækar spurningar. Þetta eru eðlilegar spurningar. Veitingastaðir selja ekki aðeins mat og drykki. Þeir skapa þúsundir starfa, halda uppi mannlífi og eru órjúfanlegur hluti af ferðaþjónustu Íslands. Öflugur veitingarekstur sem býr við sanngjörn og heilbrigð skilyrði, skapar verðmæti sem ná langt út fyrir veggi hvers veitingastaðar. Í þar síðustu viku áttum við hjá SVEIT uppbyggilegan fund með atvinnuvegaráðherra þar sem við fórum meðal annars yfir áhrif áfengisgjalda á rekstrarumhverfi greinarinnar. Ráðherra tók þeim sjónarmiðum af alvöru og lýsti vilja til að ræða málið áfram við fjármála- og efnahagsráðherra. Það er jákvætt fyrsta skref. Það sem við köllum eftir er ekki einfaldlega lækkun áfengisgjalda. Við erum ekki að biðja um lægri skatta. Við erum að biðja um réttlátara skattkerfi.Við teljum tímabært að endurskoða hvernig áfengisgjöld eru byggð upp, hvort þau ná þeim markmiðum sem þeim var ætlað að þjóna og hvort þau taki nægilegt tillit til þeirra fyrirtækja sem skapa störf, þjónustu og mannlíf um allt land.Vonandi verður viðtal Steinþórs Helga ekki síðasti dropinn heldur enn einn dropinn sem holar steininn. Veitingargeirinn er ennþá að glíma við eftirköst Covid, hann er líka að glíma við launhækkanir sem eiga sér engar líkar á norðurlöndunum um leið og aðföng bæði hér heima og erlendis hafa hækkað uppúr öllu valdi. Gjaldþrota hrinan sem gengið hefur yfir greinina síðasta ár er líkast til rétt að byrja ef ekkert verður að gert í umhverfinu okkar. Þegar skattur sem skilar ríkissjóði 27 milljörðum króna á ári hefur jafn víðtæk áhrif á rekstrarumhverfi, atvinnu og ferðaþjónustu, þá á hann skilið opna, reglulega og málefnalega umræðu. Höfundur er framkvæmdastjóri SVEIT. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar