Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar 1. júlí 2026 18:30 Undanfarin misseri hef ég fundið fyrir því að íslenski fáninn sé í auknum mæli orðinn tákn ákveðinnar pólitískrar afstöðu. Eins og hann tilheyri þeim sem telja sig hafa einkarétt á því að skilgreina hvað felist í því að elska Ísland. Ég velti því fyrir mér hvenær það gerðist. Hvenær fór ástin á Íslandi að verða eitthvað sem fólk telur sig geta metið hjá öðrum? Hvenær varð það þannig að fólk með aðrar skoðanir væri talið minna stolt af landinu sínu eða jafnvel verri Íslendingur? Mér finnst sú þróun bæði röng og hættuleg. Því um leið og við förum að dæma ættjarðarást út frá pólitískum skoðunum erum við hætt að ræða hugmyndir og farin að dæma fólk. Í sífellt harðari samfélagsumræðu virðist stundum gefið í skyn að aðeins þeir sem aðhyllast ákveðnar skoðanir standi raunverulega vörð um Ísland. Að þeir séu meiri föðurlandsvinir en aðrir. Ég hafna þeirri hugsun. Það er ekkert athugavert við að vera stoltur af íslenska fánanum eða þjóðsöngnum. Þvert á móti. Ég vildi óska þess að fleiri fyndu ástæðu til að draga fánann að húni og finna til stolts yfir þjóðartáknum okkar. En um leið og fáninn er notaður sem mælikvarði á það hver sé „nógu góður“ Íslendingur breytist hlutverk hans. Þá er hann ekki lengur tákn sem sameinar þjóðina heldur tákn sem skilur hana að. Þjóðartákn eiga ekki að skipta okkur í fylkingar. Þau eiga að minna okkur á það sem við eigum sameiginlegt þrátt fyrir ólíkar skoðanir. Fáninn á að blakta jafnt yfir þeim sem eru sammála og þeim sem eru ósammála. Hann á ekki að tilheyra einum stjórnmálaflokki, einni hreyfingu eða einni hugmyndafræði. Lýðræði byggist ekki á því að við séum sammála. Það byggist á því að við getum verið ósammála, tekist á um hugmyndir og rætt framtíð landsins af virðingu. Stjórnmál eiga að snúast um það hvernig við getum byggt betra Ísland, ekki um það hver elskar Ísland mest. Að elska Ísland felst ekki í því að hafa „réttar“ skoðanir samkvæmt einhverjum öðrum. Það felst ekki í því að veifa fánanum hæst eða tala mest um föðurlandið. Ást á landi birtist í því hvernig við komum fram hvert við annað, hvernig við tökum þátt í samfélaginu og hvernig við viljum að landinu okkar farnist. Við megum vera ósammála. Það er styrkur lýðræðisins. En enginn hefur umboð til að ákveða hver elskar Ísland meira en annar. Íslenski fáninn er ekki eign neins stjórnmálaflokks, neinnar hreyfingar eða neinnar hugmyndafræði. Hann er tákn þjóðarinnar. Og þjóðin er við öll. Höfundur er framkvæmdastjóri sjá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslenski fáninn Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar