Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar 2. júlí 2026 07:03 Tvær nýlegar greiningar sérfræðinga varpa ljósi á þá efnahagslegu áhættu sem fylgir því fyrir lítil hagkerfi eins og Ísland að taka upp evru og ganga í myntbandalag í stað þess að halda krónunni. Greiningarnar veita mikilvæga innsýn í kosti og galla evrusvæðisins fyrir íslenskan efnahag. Sjálfstæð peningamálastefna er sérstaklega mikilvæg fyrir lítil ríki Rannsóknarritgerð Bjarna G. Einarssonar, hagfræðings hjá Seðlabankanum (2024), sýnir fram á áskoranir þess að reka sameiginlega peningamálastefnu fyrir myntbandalag 21 aðildarríkis ESB. Sameiginleg peningamálastefna hentar ríkjum misvel. Hún getur virkað vel fyrir evrusvæðið í heild en á sama tíma verið mjög óhagkvæm fyrir einstök ríki, og fórnarkostnaðurinn er hæstur hjá jaðarríkjum. Niðurstöður ritgerðarinnar benda til þess að eitt vaxtastig og ein peningastefna henti ekki öllum ríkjum jafnt. Mikill kostnaður getur fylgt því að afsala sér sjálfstæðri peningastefnu. Hagkerfi aðildarríkjanna kunna að vera of ólík til þess að evrusvæðið geti talist hagkvæmt myntbandalag. Fjögur stærstu hagkerfi evrusvæðisins skapa ríflega 75 prósent af vergri landsframleiðslu þess. Evrusvæðið kann því að vera góður kostur fyrir stærri ríki ESB en síður fyrir þau sem eru á jaðrinum. Finnland er skýrt dæmi um ríki þar sem kostnaðurinn af sameiginlegri peningamálastefnu hefur verið hár. Samkvæmt upplýsingum á vef Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var atvinnuleysi þar 9,7 prósent á síðasta ári og er nú um 9,6 prósent. Á tímabilinu 2020 til 2025 lækkaði hlutur Finnlands af vergri heimsframleiðslu úr 0,21 í 0,17 prósent vegna lítils hagvaxtar. Í lok síðasta árs voru skuldir finnska ríkissjóðsins orðnar 93 prósent af vergri landsframleiðslu, en á Íslandi var hlutfallið 53,6 prósent. Í byrjun júní var einnig kynnt skýrsla erlendra sérfræðinga um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem var unnin að beiðni fjármála- og efnahagsráðherra. Helstu skilaboð skýrslunnar er þau að gengi krónunnar sé of óstöðugt til að stuðla að efnahagslegu jafnvægi, nema í stóráföllum. Gengissveiflur krónunnar hafi fremur magnað en dregið úr áhrifum efnahagsskella. Krónan hafi einnig veikt samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Þrátt fyrir þessi skilaboð er ekki að sjá að skýrsluhöfundar treysti sér til að mæla með upptöku evru hér á landi. Óhætt er að segja að þjóðin eigi seðlabankastjóra og aðalhagfræðing bankans mikið að þakka fyrir framlag þeirra á kynningarfundi skýrslunnar. Þeir sýndu fram á að á tímabili margra áfalla og snöggra uppsveiflna í íslensku hagkerfi síðan 2010 hefur innlend stjórn peningamála sannað gildi sitt. Skýr samhljómur var því á milli máls þeirra og niðurstaðna rannsóknarritgerðar Bjarna G. Einarssonar um takmarkaða hagkvæmni þess fyrir smærri ríki að ganga í evrusvæðið. Krónan verið sveiflujafnandi síðan 2010 Fjármálahrunið árið 2008 leiddi til umtalsverðra skipulagsbreytinga í peningamálastjórnun og upptöku virkrar þjóðhagsvarúðarstefnu. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en frá árinu 2010 hefur krónan virkað sveiflujafnandi. Tímabilið 2013–2017 einkenndist af mikilli uppsveiflu í ferðaþjónustu og stöðugleikasamningum við þrotabú föllnu bankanna, sem leiddi til verulegrar styrkingar krónunnar gagnvart evrunni. Krónan veiktist síðan við fall flugfélagsins WOW air og vegna COVID-19 en styrktist á ný þegar viðsnúningur varð í ferðaþjónustunni við lok heimsfaraldursins. Krónan lækkaði tímabundið gagnvart evrunni í kjölfar eldgossins í Grindavík en hefur síðan þá verið stöðugri en evran við það sem mætti kalla venjulegar aðstæður. Frá árinu 2010 hafa sveiflur á innlendum gjaldeyrismarkaði verið sambærilegar við þær í Noregi og Svíþjóð. Krónan hefur hreyfst í takt við áföll eða snöggar uppsveiflur í raunhagkerfinu, en verið mjög stöðug frá lokum heimsfaraldursins. Íslenskt efnahagslíf einkennist af því að sveiflur og áföll, sem oft eru af innlendum uppruna, eru stór miðað við stærð hagkerfisins en óveruleg í evrópsku samhengi. Við þessar aðstæður hafa krónan og peningamálastefnan leikið lykilhlutverk í að tryggja stöðugleika. Vandamálið í íslenskri efnahagsstjórn er því fyrst og fremst skortur á skýrri stefnumótun á sviði ríkisfjár- og vinnumarkaðsmála. Norðurlöndin búa til dæmis öll við bindandi launaakkeri, sem er hluti af samfélagssáttmála þeirra og styður við lága verðbólgu og vexti. Leiðin að lægri vöxtum sú sama með krónu og evru Háir vextir hér á landi eru bein afleiðing þróunar í raunhagkerfinu. Mikil hækkun húsnæðis- og launakostnaðar, ásamt vaxandi ríkisútgjöldum, eru helstu ástæður hás verðbólgu- og vaxtastigs. Á árunum 2015 til 2025 hafa ríkisútgjöld vaxið hraðar hér á landi en í nokkru öðru Evrópulandi, eða um meira en 50 prósent að raunvirði. Kostnaður við aðalskrifstofur ráðuneytanna hefur til dæmis hækkað um 40–85 prósent að raunvirði á þessu tímabili. Raunlaun hafa líka hækkað hér á landi um 15 prósent á tímabilinu 2018 til 2025 en staðið í stað á evrusvæðinu. Fjöldi íbúa á Íslandi hefur vaxið um 40 prósent síðan árið 2000, sem hefur haft mikil áhrif á leigu- og húsnæðisverð og þar með á verðbólgu. Leiðin að lægri vöxtum á húsnæðismarkaði er því sú sama, hvort sem gjaldmiðillinn er króna eða evra, það er betri hagstjórn – sérstaklega hvað varðar húsnæðis-, launa- og ríkisfjármál. Margar áskoranir fylgja upptöku evru Upptöku evru myndu fylgja margar áskoranir fyrir stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins, sem þarf að mæta svo forðast megi harkalega lendingu. Landsframleiðsla á mann er tvöfalt hærri hér á landi en að meðaltali í ESB og raunlaun eru mun hærri. Upptaka evru gæti leitt til verulegs fjármagnsinnflæðis ef raunvextir eru hærri hér á landi sem gæti fylgt verðbólguþrýstingur, hækkun húsnæðisverðs, aðrar eignabólur og lækkun raunlauna. Upptaka evru kallar líka á miklar umbætur á stofnanaumhverfi, sérstaklega hvað varðar vinnumarkaðinn. Því er ekki ólíklegt að aðlögun af þessari stærðargráðu, samhliða afleiddum efnahagsáhrifum, muni magna frekar en jafna óróleika á íslenskum vinnumarkaði. Niðurlag Skýrslan ber þess merki að erlendu sérfræðingunum hafi yfirsést að innlend áföll og sveiflur eru stór á íslenskan mælikvarða en óveruleg í evrópsku samhengi. Sveigjanleg peningamálastefna og sjálfstæður gjaldmiðill eru lykilatriði í hagstjórn lítilla ríkja, í ljósi reynslu Íslands og rannsókna Bjarna G. Einarssonar á hagkvæmni evrusvæðisins sem myntbandalags. Höfundur er sérfræðingur í opinberri stefnumótun með doktorsgráðu auk meistaragráðu í bæði opinberri stjórnsýslu og rekstrarhagfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar