„Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 4. júlí 2026 10:43 Egill mun berja skiltið augum fimmtán sinnum í dag ef allt fer samkvæmt áætlun. Innsent „Ég hleyp aldrei, mér finnst bara gaman að taka áskoranir, á sjálfan mig,“ segir Egill Trausti Ómarsson sem mætti greinilega með rétta hugarfarið á Esjuna í dag. Egill ætlar, ásamt Hrólfi Vilhjálmssyni, að hlaupa fimmtán sinnum upp og niður fjallið í dag. Ævintýrið hófst klukkan fjögur í morgun og voru þeir félagar að klára sína fimmtu ferð þegar fréttastofa náði tali af Agli á tíunda tímanum í morgun. „
Okkur leiddist og vantaði eitthvað að gera,“ segir Egill þegar hann er inntur eftir skýringum á uppátækinu. Egill segir að til hafi staðið að þeir félagar myndu hlaupa í Reykjavík Trail hlaupinu þessa helgi en hlaupið hafi verið fellt niður. Þeir félagarnir eru duglegir að bralla eitthvað saman. „Annaðhvort dettur mér eitthvað í hug eða honum dettur eitthvað í hug.“ Ferðirnar fimmtán verða samtals hundrað kílómetrar að lengd með hækkun upp á níu þúsund metra en til samanburðar er hæð Everest-fjalls, sem er hið hæsta á jörðinni, 8849 metrar. Fékk hlaupabakteríuna árið 2023 Þetta er í ellefta skiptið sem Egill hleypur hundrað kílómetra. Ekki er langt síðan Egill fékk hlaupabakteríuna, hann segist fyrst hafa hlaupið tuttugu kílómetra árið 2023 og þaðan var ekki aftur snúið. „Mér hafði aldrei dottið í hug að ég gæti hlaupið tuttugu kílómetra, en síðan var ég búinn að ná að hlaupa fimmtíu kílómetra og svo eftir það hundrað. Þetta vindur ógeðslega hratt upp á sig.“ Þeir Egill og Hrólfur eru ekki vanir að sitja auðum höndum. Innsent Hlaupin séu heilbrigð fíkn Egill segir þetta heilbrigða fíkn, upp að vissu marki. Síðast hljóp hann hundrað kílómetra í Hengli Ultra fyrir fjórum vikum síðan. „Maður segir alltaf við sjálfan sig eftir 50–60 kílómetra: Þetta geri ég aldrei aftur. Svo klárar maður og segir við sjálfan sig að þetta geri maður aldrei aftur. En síðan vaknar maður daginn eftir…“ segir Egill og hlær við. Egill og Hrólfur höfðu sagt frá áætlunum sínum á samfélagsmiðlum í gær og buðu fólki að slást með í för, hvort sem það væri í eina ferð eða allar fimmtán. Á tíunda tímanum í morgun hafði þegar verið gestkvæmt hjá þeim og mat Egill fjöldann á milli tuttugu og tuttugu og fimm í heildina. „Þú finnur ekki betra áhugamál.“ Egill segir að markmiðið sé að hafa gaman, þeir hafi stillt sinn hraða af miðað við gestahlaupara, gefið sér tíma til að spjalla við gesti og gefið drykki frá styrktaraðilum. Seinustu tvær ferðir hafi þó verið nokkur hraðar því þá var gesturinn landsliðsþjálfari Íslands í utanvegahlaupi. Talandi um gesti, þegar hingað er komið við sögu er hlaupadrottningin Mari Järsk farin að spyrja Egil hvað hann sé að gera í símanum og því ljóst að viðtalið þarf að fara að taka enda. Skyldi Egill eiga einhver lokaorð? „Það er gaman að gera erfiða hluti, lífið er svo geggjað!“
Hlaup Esjan Fjallamennska Reykjavík Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Sjá meira