Vikulöng jarðarför Khameini hafin Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júlí 2026 14:05 Khameini lést fyrir fjórum mánuðum. AP Sex daga jarðarför Ayatollah Ali Khameini, æðsta leiðtoga Írans, hófst í dag. Hann lést í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í febrúar.
Búist er við að á milli fimmtán og tuttugu milljónir manna verði viðstaddar jarðarfararathafnir Ayatollah en líkkista hans verður flutt á fimm staði í Íran og Írak. Líkamsleifar hans eru nú í Tehran, höfuðborg Írans, og verður síðan haldið til borgarinnar Qom. Þar mun háttsettur sjíaklerkur leiða útfararbæn í Jamkaran, sem er einn af táknrænustu trúarlegu stöðum landsins. Jarðarförin heldur áfram í borgunum Najaf og Karbala í Írak og lýkur henni loks í Mashhad í Íran. Núna fyrsta daginn er lík hans í helstu mosku Tehran en í kringum kistu leiðtogans eru kistur þeirra sem létust einnig í árásum Ísraela og Bandaríkjamanna. Kista Khameini er til sýnis ásamt kistum þeirra sem létustu einnig í árásunum.AP Að athöfnunum loknum verður Ayatollah jarðsettur í Imam Reza, grafhýsi áttunda imams sjía-íslams og mikilvægasta pílagrímastað Írans. Áfram verða haldnar athafnir í minningu hans í eitt ár eftir jarðsetninguna. Búist er við að á milli fimmtán og tuttugu milljónir muni votta virðingu sína.AP Enn eru ekki komin formleg endalok eftir árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran. Samkvæmt umfjöllun BBC sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að írönsk yfirvöld gætu ekki beðið eftir því að undirrita vopnahléssamkomulag. „Við gáfum þeim frí í viku fyrir jarðarför því við erum svo almennileg,“ sagði Trump. Mojtaba, sonur Ayatollah, tók við stjórnartaumum landsins í kjölfar andláts föður hans. Hann hefur ekki sést opinberlega síðan hann tók við og segir BBC að spurningar séu uppi um heilsu hans. Meðlimir Byltingarvarðarsins og klerkar votta virðingu sína.AP
Íran Írak Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira