Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 5. júlí 2026 07:02 Deginum ljósara er samkvæmt gögnum Evrópusambandsins að innganga Íslands í sambandið kallaði á það að auka þyrfti verulega umfang stjórnsýslunnar hér á landi. Ég ritaði grein á Vísi um síðustu helgi þar sem ég vitnaði í því sambandi í skjalið „Commission decision of 08.04.2011 on a Multi-annual Indicative Planning Document (MIPD) 2011-2013 for Iceland“ frá 2011 frá því umsóknarferlið var í gangi síðast þar sem fram kemur skýrt að sambandið teldi stjórnsýsluna of litla til þess að ráða við þær skuldbindingar sem fylgdu veru innan þess. Um var að ræða svar við grein Halldórs Jörgens Olesen á sama miðli þar sem hann vildi meina að innganga í Evrópusambandið hefði alls ekki slíkt í för með sér. Fyrr í vikunni kom svargrein frá honum þar sem hann vildi meina að skjalið samræmdist þvert á móti hans málflutningi. Fátt er þó fjær sanni. Fram kemur í skjalinu að stjórnsýslan sé lítil og fyrir vikið þurfi að koma til mikillar stofnanauppbyggingar hér á landi til þess að hún réði við veru Íslands í Evrópusambandinu. „Heilt á litið er [íslenzka] stjórnsýslan lítil og býr við takmarkaðar fjárveitingar. Verulegur niðurskurður á opinberum útgjöldum hefur enn fremur átt sér stað til þess að takast á við fjárhagserfiðleikana í kjölfar efnahagskrísunnar árið 2008. Niðurskurðurinn hefur dregið enn frekar úr getu stjórnsýslu Íslands til þess að sinna undirbúningi fyrir inngöngu í Evrópusambandið sem þó var takmörkuð að stærð fyrir,“ segir þannig til að mynda í skjalinu. Þannig er, þvert á orð Halldórs um að skjalið talaði „um getu, ekki stærð“, beinlínis talað um að geta stjórnsýslunnar sé ekki nægjanlega mikil vegna þess að hún sé ekki nógu stór. Um leið sakar hann mig um að velja „setningar sem henta“. Fleira kemur fram í skjalinu eins og ég nefndi í fyrri skrifum mínum. Þannig segir þar að Ísland þurfi „að byggja upp getu stjórnsýslunnar til þess að taka upp, þýða og innleiða löggjöf sambandsins og koma á laggirnar öllum þeim nauðsynlegu innviðum sem vera innan þess gerir kröfu um. […] Stjórnsýsla Íslands er lítil. Hjá stjórnarráðinu starfa um 700 opinberir starfsmenn og það samanstendur af tíu ráðuneytum. […] Ráðuneytin eru lítil og hafa á bilinu 26 til 214 starfsmenn. Að meðaltali 58 starfsmenn.“ Augljóst er að ekki er einungis um að ræða aukningu á umfangi hins opinbera á meðan verið væri að koma umræddum innviðum á koppinn, eins og Halldór vill meina, enda þyrfti síðan að halda þeim gangandi. Fjármögnun af hálfu Evrópusambandsins yrði vissulega í boði að hluta gegn mótframlagi úr ríkissjóði en ekki til rekstursins. Haldreipi Halldórs er einungis það orðalag í skjalinu að stjórnsýsla Íslands sé „lítil en skilvirk.“ Þar er hins vegar um að ræða orðalag í fyrrihluta þess þar sem fjallað er um stöðuna þegar það er ritað og þær skuldbindingar sem hún þyrfti að uppfylla við þáverandi aðstæður. Síðar í skjalinu er hins vegar fjallað um þá stofnanauppbyggingu sem þyrfti að eiga sér stað til þess að stjórnsýslan réði við þær skuldbindingar sem fylgdu veru innan Evrópusambandsins. Hvað það varðar að hvert ráðuneyti þyrfti að bæta við sig 70 starfsmönnum að jafnaði eru það ekki mín orð en stjórnsýslan myndi þurfa að stækka. Annars er gott að Halldór gangist við þeirri staðreynd í greininni að viðræður um inngöngu í sambandið snúist um aðlögun og eins að Ísland hafi aðeins tekið upp meirihluta regluverks þess sem fellur undir EES-samninginn en ekki alls regluverksins. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar