Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Agnar Már Másson skrifar 4. júlí 2026 22:06 Skósveinarnir draga línuna við fasisma. Samsett Mynd Í nýjustu kvikmyndinni um Skósveinana svokölluðu kemur fram að þeir hafi þjónað mörgum af helstu skúrkum mannkynssögunnar. Leikstjóri teiknimyndanna segir aftur á móti að þeir hafi ekki þjónað Adolf Hitler Þýskalandskanslara í seinni heimsstyrjöldinni.
Skósveinarnir og Skrímsli nefnist nýjasta kvikmyndin úr Skósveinamyndaröðinni sem nú er í sýningu í bíóhúsum um víða veröld. Kvikmyndaserían er eins konar afsprengi af teiknimyndaröðinni Aulanum mér (Despicable me). Í nýjustu myndinni er ljósi varpað á upprunasögu þessara litlu gulu skepna, alveg frá öræfaaldri þar til þær störfuðu síðan fyrir ofurþorparann Felóníus Grú. Í kvikmyndinni er greint frá því að Skósveinarnir hafi í gegnum tíðina þjónað mörgum af helstu skúrkum úr mannkyns- og bókmenntasögunni, meðal annars Drakúla greifa, franska herforingjanum Napóleon Bónaparte og jafnvel egypsku faróunum. Það vakti því forvitni blaðamanns bandaríska tölvuleikjamiðilsins Polygons hvort Skósveinarnir hefðu – samkvæmt sögu myndanna – þjónað Adolf Hitler Þýskalandskanslara. Kvikmyndin kemst að mestu leyti undan því að svara þeirri spurningu, þar sem fram kemur að Skósveinarnir hafi margir falið sig inn í helli á árunum 1812 til 1968. Engu að síður kemur fram í myndinni að til sé fjöldi Skósveinaættbálka sem flestir hafi leitað uppi skúrka um víða veröld. „Ég vissi að þú myndir spyrja þessarar spurningar. Skammastu þín,“ svaraði leikstjórinn Pierre Coffin, kíminn í samtali við Polygon þegar hann var spurður um hugsanleg tengsl Skósveinanna við Hitler. „Skósveinarnir sem við kynnumst í [kvikmyndinni] Skósveinum 1 voru fastir í hellinum. Þessir [hinir ættbálkarnir] – ég veit ekki hvar þeir voru – en þeir voru ekki hluti af „Stóru [mannkyns]sögunni,“ bætir Coffin við. Þrátt fyrir að vinna fyrir hina ýmsu skúrka virðast Skósveinarnir þó draga línuna við fasisma.
Hollywood Seinni heimsstyrjöldin Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Risastór tappakollur í fallegri íbúð Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Fleiri fréttir Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira