„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 5. júlí 2026 10:54 Öll verslun með hvalaafurðir er bönnuð innan ESB. Samsett „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986. „
Hvalveiðar fylgja sama lögmáli og önnur auðlindanýting hafsins. Sé það gert á sjálfbæran hátt, þar sem ekki er veitt of mikið í einu, geta hvalveiðar haldið áfram út í hið óendanlega,“ segir Kristján. Almennt þykir The Telegraph íhaldssamt, á sér langa sögu og er þekkt fyrir gæðaumfjallanir. Blaðið segir hvalveiðar hafa djúpar rætur í íslenskri menningu og yrðu því ákveðin táknmynd tapaðs fullveldis ef af banninu yrði í aðdraganda inngöngu í ESB. „Hvað varðar þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný aðildarviðræður í ágúst, þá er það mín skoðun að Íslendingar séu ekki svo heimskir, sem heild, að kjósa já, svo að það verða alls ekki hafnar neinar viðræður,“ fullyrðir Kristján. Blaðið segir tveggja ára hlé hafa orðið á hvalveiðum sem stafi af efnahagsaðstæðum. Að veiða hval hefði einfaldlega ekki borið sig, meðal annars vegna verðlækkunar á mörkuðum í Japan. Veiðarnar muni dragast inn í mögulegar aðildarviðræður Þá segir í umfjöllun blaðsins að náttúruverndarsinnar og Evrópusinnar hafi trú á að hvalveiðar verði notaðar til að ýfa upp þjóðerniskennd og nýta sem vopn í baráttu gegn ESB-aðild. Nei-sinnar hafi á sama tíma verið tregir til að tengja málefnin tvö beint og hafi þess í stað lagt áherslu á tapaða fiskveiðistjórn við Íslandsstrendur. Blaðið fullyrðir að hvalveiðar hafi þegar verið farnar að valda vandræðum síðast þegar Ísland átti í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Stuðningur við hvalveiðar hafi þá mælst um 60% en hafi farið minnkandi síðastliðinn áratug. Þegar fyrri ríkisstjórn framlengdi síðan leyfi til hvalveiða til næstu fimm ára árið 2024 sýndi könnun að um helmingur landsmanna var mótfallinn þeim. Ríkisstjórnin boðar frumvarp í haust Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur boðað lagabreytingu í haust þar sem hvalveiðar verða bannaðar. Bannið tæki þá líklega gildi þegar fimm ára endurnýjunin rennur út árið 2029. Blaðið tekur fram að Hvalur ehf. hafi þó hingað til náð að fá leyfin endurnýjuð, þrátt fyrir þann þrýsting sem Ísland hafi verið beitt á alþjóðasviðinu, með dyggum stuðningi íhaldssamra þingmanna. The Telegraph hefur eftir talsmanni ESB að innan sambandsins sé öll verslun með hvalaafurðir bönnuð. Ísland sé í dag ekki hluti af sambandinu en umræða um þennan málaflokk myndi alltaf þurfa að vera hluti aðildarviðræðna. ESB sé þó meira en tilbúið að ganga „tímanlega til uppbyggilegra viðræðna“.
Hvalveiðar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Bretland Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Sjá meira