Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar 6. júlí 2026 10:02 Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um hvort endurvekja eigi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hefur umræða um fullveldi orðið áberandi á ný. Í þeirri umræðu er gjarnan gefið í skyn að alþjóðlegar skuldbindingar eða framsal tiltekinna verkefna til annarra ríkja eða alþjóðastofnana feli sjálfkrafa í sér skerðingu fullveldis. Slík sýn á hins vegar litla stoð í sýn þeirra sem mótuðu íslenska afstöðu í samningaviðræðunum við Dani árið 1918. Þeir skildu fullveldi með öðrum hætti, þ.e. sem rétt ríkis til að ákveða sjálft hvaða alþjóðlegu skuldbindingar það tekur á sig. Það er því fróðlegt að rifja upp hvernig tveir áhrifamenn þess tíma, Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar Arnórsson, skýrðu þetta grundvallarhugtak. Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar Arnórsson Bjarni var einn af leiðandi stjórnmálamönnum síns tíma og gegndi lykilhlutverki í samningaviðræðum Íslands og Danmerkur sem leiddu til sambandslaganna 1918. Einar gerði það líka en hann var hæstaréttarlögmaður, prófessor, ráðherra og einn skarpasti lögfræðingur sinnar kynslóðar. Fullveldi Íslands 1. desember 1918 er þeirra smíðaverk. Þessir helstu forystumenn Íslendinga í samningaviðræðunum við Danmörku um hin dansk-íslensku sambandslög áttuðu sig skýrt á þeirri grundvallarreglu að alþjóðlegar skuldbindingar væru ekki andstæða fullveldis heldur birtingarmynd þess. Í umræðum á Alþingi um frumvarpið að sambandslögunum, haustið 1918, kom þetta skýrt fram í orðum Bjarna: „Í umræðunum í dag hefir komið fram þetta ónákvæma orðalag: „skerðing fullveldis“; orðalag þetta er sjálfsmótsögn. Annaðhvort er maður lifandi eða dauður; annaðhvort er um fullveldi að ræða eða ekki. Hitt er annað mál, og við það hefir líklega verið átt að fullvalda ríki getur gengist undir samning sem því er óhagfelldur.“ Þessi skilningur birtist einnig þegar Bjarni svaraði Benedikti Sveinssyni, sem hafði áhyggjur af 6. gr. sambandslaganna um gagnkvæm réttindi íslenskra og danskra ríkisborgara: „En þetta er rangt, því að hversu illa sem honum líkar 6. gr., þá getur hún aldrei tekið af oss fullveldið … Það eru réttindi, sem ein fullvalda þjóð veitir annarri hjá sér, gegn sömu réttindum frá hinni þjóðinni … Þær réttindaveislur geta haft skaðlegar, fjárhagslegar afleiðingar, en aldrei skert fullveldið.“ Einar tók undir sömu sjónarmið í riti sínu Þjóðréttarsamband Íslands og Danmerkur frá 1923. Þar fjallaði hann meðal annars um 8. gr. sambandslaganna, sem fól Danmörku gæslu fiskveiða í íslenskri landhelgi þar til Ísland tæki verkefnið sjálft yfir. Um það sagði hann: „Nú er landið er fullvalda ríki, þá leiðir af því, að það hefir ríkisforræði yfir landhelginni, því að samningur við Danmörk um gæzlu fiskiveiða í íslenzkri landhelgi er ekki fremur afsal þess forræðis á henni, en það væri afsal forræðis á jörð, að eigandi hennar fæli öðrum að reka skepnur úr túni jarðarinnar.“ Sama sjónarmið kom fram í umræðum um 7. gr. sambandslaganna, þar sem Danmörku var falið að fara með utanríkismál Íslands í umboði þess. Bjarni benti á að umboð breytti ekki því hver ætti réttinn: „Raunar er í 7. gr. annari þjóð falið að fara með utanríkismálin, en það er í umboði, og sá sem gefur umboðið, hann á réttinn. Engum fræðimanni gæti því dottið í hug að láta sér það um munn fara, að Danmörk ætti réttinn.“ Einar tók í sama streng og lagði áherslu á að umboð takmarkaði vissulega athafnafrelsi ríkisins en breytti ekki fullveldisstöðu þess: „Hinsvegar verður því ekki neitað, að umboðið takmarkar athafnafrelsi Íslands, en takmörkun á athafnafrelsi ríkis sviptir það ekki alment fullveldi fremur en takmörkun á athafnafrelsi manns sviptir hann lögræði … Það, að Ísland getur veitt slíkt umboð, sýnir eitt með fleiru, að það er fullvalda ríki.“ Skilningur á fullveldishugtakinu Þessi ummæli tveggja helstu forystumanna Íslendinga við gerð sambandslaganna sýna að íslenska fullveldið byggðist ekki á þeirri hugmynd að sérhver alþjóðleg skuldbinding eða framsal verkefna jafngilti skerðingu fullveldis. Þvert á móti var litið svo á að fullveldið fælist einmitt í því að Ísland hefði sjálft vald til að ákveða hvort það tæki á sig slíkar skuldbindingar, veitti umboð eða gerði alþjóðasamninga. Þessi sögulegi skilningur á fullveldi á enn fullt erindi í umræðunni í dag og er mikilvæg áminning um að greina verði skýrt á milli fullveldis annars vegar og þess hvernig fullvalda ríki kýs að nýta það hins vegar. Höfundur er lögmaður, www.polestarlegal.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Már Magnússon Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar