Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 9. júlí 2026 07:02 Júlía Runólfsdóttir er búsett með fjölskyldu sinni í Stokkhólmi og ræddi við blaðamann um lífið úti. Aðsend „Þar sem enginn tími fer í skutl eða bílferðir eru samverustundirnar þeim mun fleiri, við erum samrýndari og nánari. Svo er bara alveg ótrúlega gaman að prófa að búa í nýrri borg þar sem endalaust nýtt er að upplifa,“ segir hin 33 ára gamla Júlía Runólfsdóttir sem er búsett í Stokkhólmi ásamt manni sínum Huga og tveimur börnum, með þriðja á leiðinni.
Blaðamaður ræddi við Júlíu um lífið úti en hún lumar líka á ýmsum góðum ráðum um stórborgina fyrir forvitna ferðalanga. Júlía elskar lífið úti með fjölskyldunni.Aðsend Hvað varð til þess að þú fluttir út og hvar býrðu? Hugi maðurinn minn fékk vinnu hjá tæknifyrirtæki sem heitir Sana, í Stokkhólmi. Við vorum búin að vera heit fyrir því að prófa að búa erlendis í smá tíma svo þegar þetta tækifæri gafst ákváðum við að stökkva á það. Júlía og Hugi voru spennt fyrir því að prófa að búa erlendis.Aðsend Hvað hefurðu búið þar lengi? Það er komið slétt ár núna síðan við fluttum út. Fjölskyldan hefur búið úti í slétt ár.Aðsend Hvað ertu að gera þar? Ég er að vinna í fjarvinnu frá Íslandi sem hönnuður hjá stafrænu stofunni Júní. Ég er með borð hér úti í frábæru co-working samfélagi sem heitir Knackeriet ásamt öðrum vinnufélaga mínum og vinkonu hjá Júní sem býr hér líka. Hugi vinnur hjá tæknifyrirtæki úti og Júlía er í fjarvinnu hjá stafrænu stofunni Júní.Aðsend Hefurðu búið annars staðar erlendis? Ég fór í skiptinám frá LHÍ til Vínarborgar árið 2015 í eina önn, en þetta í fyrsta skipti sem ég flyt út svona til lengri tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem Júlía flytur erlendis til lengri tíma og fjölskyldan unir sér vel úti.Aðsend Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér? Við eigum tvö börn (og eitt á leiðinni) sem eru sjö og tíu ára og þau ganga í sænskan skóla hér í hverfinu. Við komum þeim út á morgnana og höldum svo til vinnu, hjólandi eða í strætó. Stundum stopp í kaffibolla á leiðinni, stundum beint í vinnuna, stundum vinna heima. Við Arna, vinnufélagi og vinkona mín, tökum svo oft góðan löns á Södermalm þar sem vinnan okkar er. Eftir vinnu sæki ég börnin, stundum þarf að fara með þeim á æfingu, stundum gerum við eitthvað næs eftir skóla. Lífið snýst nokkurn veginn í kringum börnin og vinnuna líkt og á Íslandi, nema engum tíma er eytt í umferð. Við erum ótrúlega mikið saman, og reynum að njóta góðs af því að búa í stórborg, svona í bland við venjulegt fjölskyldulíf. Júlía hjólar að mestu í Stokkhólmi og elskar að geta sloppið við umferð.Aðsend Hvað er skemmtilegast við lífið úti? Hvað við erum mikið saman sem fjölskylda. Þar sem enginn tími fer í skutl eða bílferðir eru samverustundirnar þeim mun fleiri, við erum samrýndari og nánari. Svo er bara alveg ótrúlega gaman að prófa að búa í nýrri borg þar sem endalaust nýtt er að upplifa, frábærir leikvellir, söfn og stutt í náttúru allt í kring. Við erum líka dugleg að prófa nýja veitingastaði og kaffihús. Fjölskyldan elskar að prófa ný kaffihús og er nóg af þeim í Stokkhólmi.Aðsend En mest krefjandi? Klárlega að vera í burtu frá fjölskyldu og vinum. Langstærsti mínusinn! Það er erfiðast fyrir fjölskylduna að vera í burtu frá öðrum ástvinum.Aðsend Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Að sjá börnin okkar stíga inn í þessar nýju aðstæður, læra nýtt tungumál, eignast nýja vini og gera þetta allt svona ótrúlega fallega og vel. Hugi og Júlía eiga tvö börn og það þriðja er á leiðinni. Börnin njóta sín í botn í Stokkhólmi.Aðsend Hvaða hverfi er í uppáhaldi og afhverju? Við búum í æðislega fallegu hverfi sem heitir Hammarby Sjöstad. Það er mjög rólegt, fjölskylduvænt og stutt í náttúru, til dæmis skíðabrekku, stöðuvatn og skóg eða þjóðgarð, en á sama tíma miðsvæðis. Södermalm er hérna við hliðina á sem er mitt uppáhalds svæði í borginni, fullt af veitingahúsum, kaffihúsum og vintage búðum. Ég mæli klárlega með Södermalm ef maður er að koma í heimsókn. Það er hægt að gera margt skemmtilegt í Stokkhólmi.Aðsend Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti? Úff, erfitt val! Ég bjó til vefsíðu með uppáhaldsstöðunum mínum í borginni sem heitir favorit.is þar sem ég er mjög oft spurð hvar er best að borða og drekka þegar maður kemur hingað í heimsókn. Ef ég ætti að velja bara eitt kaffihús þá væri það líklega Balue, veitingastaður væri Forma eða Freyja + Söder. Einnig shoutout á Unu og Emil sem reka frábært vegan kaffihús og veitingastað hérna í borginni sem heitir Cornershop. Alltaf geggjað að fara þangað! Júlía er með puttann á púlsinum þegar það kemur að skemmtilegum veitingastöðum og kaffihúsum.Aðsend Hvernig er draumadagur fyrir þig úti? Vakna með krökkunum, fara út að ná í kaffi og fara í gönguferð eða hjólatúr hérna í skóginum við hliðina á. Ef það er sumar, stinga sér í vatnið, ef það er vetur, skíði í skíðabrekkunni í hverfinu eða skautaferð. Svíar elska vetraríþróttirnar sínar! Enda svo á að elda góðan mat. Fjölskyldan er dugleg að skella sér á skíði á veturna.Aðsend Hefurðu fundið fyrir heimþrá? Já, algjörlega! Ég sakna fjölskyldu og vina mikið og núna þegar ég er kasólétt um hásumar sakna ég íslenska sumarsins og Vesturbæjarlaugar. Það er aðeins of heitt hérna fyrir ólétta konu! Júlía segir sænska sumarið aðeins of heitt fyrir ólétta konu.Aðsend Hvað er framundan? Fæðingarorlof, ég er komin 38 vikur á leið. Svo núna er það bið eftir barni, fá fjölskylduna í heimsókn hingað út og svo njóta í orlofi með þessari minnstu þegar hún kemur. Orlofið og allt kerfið í kringum börn í Svíþjóð er frábært, það verður gaman að prófa að upplifa það. Júlía býður spennt eftir orlofinu úti.Aðsend Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Bara hvað allt hefur gengið vel í raun. Það reddast alltaf allt. Hefurðu lent í einhverju steiktu eða fyndnu úti? Svíar eru mjög reglusamir og beinskeyttir og hef ég aldrei verið skömmuð jafn oft á stuttum tíma á ævi minni. Að vinna sig í gegnum reglurnar þeirra hefur verið ákveðin upplifun! Það hefur verið upplifun að vinna sig í gegnum reglur Svíanna!Aðsend Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig? Við erum mjög sátt hérna akkúrat núna en ég hugsa nú að við flytjum aftur heim á einhverjum tímapunkti. Það er þó ekki ákveðið hvenær.
Íslendingar erlendis Svíþjóð Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira