Erlent

Tilræðiskona í Móna­kó sögð fundin látin í Úkraínu

Kjartan Kjartansson skrifar
Lögreglumaður gengur fram hjá inngangi húss í Mónakó þar sem sprengja var sprengd í síðasta mánuði. Meint tilræðiskona er sögð fundin myrt í Úkraínu.
Lögreglumaður gengur fram hjá inngangi húss í Mónakó þar sem sprengja var sprengd í síðasta mánuði. Meint tilræðiskona er sögð fundin myrt í Úkraínu. Vísir/EPA

Úkraínsk kona sem er eftirlýst vegna sprengjutilræðis í Mónakó fannst látin í Úkraínu. Leyniþjónustumaður er sagður hafa ráðið henni bana að eigin frumkvæði.

Alþjóðalögreglan Interpol lýsti eftir Anastasiiu Berezovsku í tengslum við sprengjutilræði gegn úkraínskum auðkýfing og fjölskyldu hans í Mónakó 29. júní. Hún var grunuð um morðtilraun og að koma sprengju fyrir á opinberum stað.

Nú segir úkraínska leyniþjónustan SBU að lík Berezovsku sé fundið. Leyniþjónustumaður í herleyniþjónustunni hafi játað að hafa myrt hana í slagtogi við fyrrverandi lögreglumann. Sá grunaði segist hafa myrt konuna að eigin frumkvæði og án þess að upplýsa yfirmenn sína um það.

Skjáskot af eftirlýsingu á Anastasiiu Berezovsku á vefsíðu Interpol. Hún er talin hafa dulbúið sig sem karlmann þegar hún fylgdist með úkraínskum auðkýifingi í Mónakó áður en hún sprengdi sprengju við íbúð hans.AP/Interpol

Böndin eru sögð hafa beinst að leyniþjónustumanninum og hjálparhellu hans eftir að rannsakendur uppgötvuðu að þeir hefðu millifært bæði rafmynt og fé inn á bankareikninga Berezovsku. Við húsleit fannst kjallari sem líktist pyntingaklefa heima hjá fyrrverandi lögreglumanninum, að sögn leyniþjónustunnar.

Lík Berezovsku fannst í kjölfarið. Hún hafði verið skotin í höfuðuð, að því er kemur fram í frétt AP-fréttastofunnar.

 Leyniþjónustan segist hafa deilt öllum gögnum sem hún hefur aflað með rannsakendum í furstadæminu og að enn sé unnið að því að finna þá sem skipuðu fyrir um og skipulögðu tilræðið þar. 

Skotmark tilræðisins var Vadym Jermolajev, úkraínskur auðkýfingur úr byggingargeiranum. Úkraínsk stjórnvöld beittu hann þvingunaraðgerðum vegna tengsla við Rússland árið 2023.

Auk Jermolajev særðist kona hans og barn í sprengingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×