Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2026 20:45 Conor McGregor mun loksins leggja jakkafötunum og snúa aftur inn í búrið um næstu helgi. Getty/Samuel Corum/ Conor McGregor mun keppa í veltivigt þegar hann snýr aftur í búrið á UFC 329-bardagakvöldinu á laugardaginn kemur en hann telur að úrslitin muni án efa bæta við arfleifð hans í fjaðurvigt.
Í fyrsta bardaga sínum síðan í fimm ár eða síðan í júlí 2021 mun McGregor mæta Max Holloway í aðalbardaga kvöldsins sem er ekki titilbardagi. McGregor varð frægur á árunum 2013 til 2015 sem fjaðurvigtarmaður en það náði hámarki með þrettán sekúndna rothöggi á MMA-goðsögninni José Aldo sem tryggði honum meistaratitilinn. McGregor barðist aldrei aftur í 66 kílóa flokki eftir þann sigur, en hann telur að hann eigi samt að fá viðurkenningu sem besti fjaðurvigtarmaður allra tíma. Holloway er talinn einn af þeim bestu í fjaðurvigt frá upphafi. Hann sigraði Aldo tvisvar árið 2017 og varði UFC-titilinn fjórum sinnum. McGregor segir að frammistaða hans gegn Holloway muni undirstrika sögulega yfirburði hans í fjaðurvigt, jafnvel þótt bardaginn fari fram í öðrum þyngdarflokki. „Ég hef tekið margt með mér inn í þessar æfingabúðir sem hefur verið eldsneyti á eldinn hjá mér,“ sagði McGregor við ESPN. „Í fyrsta lagi er ég besti fjaðurvigtarmaður allra tíma. Þetta styrkleikaröðunarkerfi yfir bestu fjaðurvigtarmennina; ég hef sigrað þessa menn, en ég er ekki á listanum. Hvernig gat ég sigrað þessa menn auðveldlega og afgerandi, en er samt haldið utan listans?“ sagði McGregor. „Þess vegna elska ég Max sem andstæðing. Hann hefur barist við svo marga. Hann á að baki mjög glæsilegan feril í átthyrningnum. Hann er framtíðarmeðlimur í heiðurshöllinni. Nú fæ ég tækifæri til að sýna mitt getustig,“ sagði McGregor.
MMA Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haaland sýndi enga miskun og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Sjá meira