Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar 9. júlí 2026 14:32 Það hefur verið mjög undarlegt að fylgjast með þjóðfélagsumræðunni undanfarna daga í tengslum við skemmdarverkið á hinsegin fánanum við Grafarvogskirkju. Um ritvöllinn og kommentakerfin flykkist fólk sem fagnar þessu og spyr hvort íslenski fáninn sé nú orðinn að hatursglæp. Svarið við þeirri spurningu er auðvitað nei. Íslenski fáninn er fáni allra Íslendinga – hvort sem fólk er hinsegin eða ekki – og er hann auðvitað ekki haturstákn í eðli sínu. Hann táknar samstöðu Íslendinga, stolt og væntumþykju fyrir okkar þjóð, tungumáli, náttúru og menningu. Að sama skapi er hinsegin fáninn tákn samstöðu og stolts, og er fáni allra þeirra sem eru hinsegin og þeirra sem styðja hinsegin fólk, og vilja að þau fái að lifa sínu lífi eftir eigin höfði. Hinsegin fólk er órjúfanlegur hluti af okkar samfélagi og menningu, og eiga þessir fánar eiga því meira sameiginlegt heldur en öfugt. Enda blaktir íslenski fáninn við hún fyrir utan Grafarvogskirkju eins og hjá flestum kirkjum og opinberum stofnunum. Einn útilokar ekki hinn, og er það jákvætt að kirkjan sýni samstöðu og bjóði hinsegin fólk velkomið, enda hefur það ekki alltaf verið raunin. Það eru margar leiðir til að koma því á framfæri að við viljum sjá íslenska fánann víðar sem fela ekki í sér að nota hann sem skemmdarverk á hinsegin fánaverki. Hatrið felst því ekki í fánanum sjálfum, heldur hvernig hann er notaður í þessu tilfelli til að skemma verk sem var gert af samstöðu og kærleik – og elur óneitanlega á fordómum að gera slíkt. Er þetta þróun sem við viljum hérlendis? Að íslenski fáninn sé notaður sem tákn sundrungar og haturs? Það er hættuleg þróun sem við höfum séð víða erlendis, og vona ég að við leyfum ekki einstaklingum með slíkt í huga að hafa dagskrárvaldið. Fánareglur okkar eru til þess gerðar að vernda fánann okkar og sýna honum virðingu – og ætti enginn sem þykir vænt um íslenska fánann að fagna því að hann sé notaður í skemmdarverk. Það er virðingarleysi við land og þjóð. Það er staðreynd að í okkar samfélagi eru fordómar að aukast gegn hinsegin fólki, og hafa aldrei verið fleiri tilkynningar um hatursglæpi gegn hinsegin fólki og skemmdarverkum á fánum og táknum okkar. Ef að við ætlum að kenna börnunum okkar að það megi ekki skemma hluti, þá þurfum við fullorðna fólkið líka að standa við það. Það er í raun óþolandi að hinsegin fólk þurfi endalaust að sitja undir svona árásum á tilveru sína. Það er þreytandi, lýjandi og ærandi að þurfa að hlusta endalaust á fólk tjá okkur að þetta snúist bara ekkert um fordóma og hatur þrátt fyrir hið augljósa. Þetta snýst bara víst um hatur og fordóma – það skilur hver heilvita manneskja, og eigum við að segja það hátt og skýrt. Þetta er ekki í lagi. Þetta er menningarstríð sem enginn bað um. Hinsegin dagar ganga brátt í garð, sem er ein stærsta hátíð landsins. Þar höfum við öll tækifæri á að sína í verki að við sem Íslendingar viljum ekki að svona fordómar nái fótfestu í okkar samfélagi. Fögnum því frekar saman að hér geta allir Íslendingar, hinsegin eður ei, lifað í sátt og samlyndi. Sjáumst á Hinsegin dögum. Höfundur er hinsegin Íslendingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Hinsegin Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson Skoðun