„Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 10. júlí 2026 09:50 Undanþágur munu fást samkvæmt Þorgerði Katrínu. Vísir/Ívar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir Ísland í sterkri stöðu komi til samningaviðræðna við ESB. Hún segist sannfærð um að undanþágur fáist í bæði sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum.
Þorgerður er nýkomin af leiðtogafundi NATO í Ankara í Tyrklandi. Þar leysti Erdogan Tyrklandsforseti alla forsætisráðherra út með skammbyssu að gjöf, þar á meðal Kristrúnu Frostadóttur. „Ég leyni því ekki að það fannst mörgum þetta sérstakt,“ viðurkennir Þorgerður sem var til viðtals í Bítinu í morgun. Staða Íslands sterk Þorgerður Katrín segir vilja Evrópusambandsins mikinn til að sýna að það geti stækkað í norður og vestur en ekki bara austur, sem styrki samningsstöðu Íslands. Þá færi Ísland inn í hinar mögulegu samningaviðræður í allt annarri stöðu en síðast. „Ég ætla að nýta mér þá sterku samningsstöðu sem við Íslendingar erum í, hún er með allt öðrum hætti en þegar við fórum á hnjánum inn í samningaviðræður eftir hrunið.“ Ekki sé hægt að bera stöðu Íslands saman við lönd austar í álfunni þar sem Ísland hafi tilheyrt EES og EFTA síðustu áratugi. Þá sé ekkert ríki eins og Ísland þegar kemur að sjávarútvegi. „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við. Það er ekkert ríki eins og Ísland sem er að fara í samningaviðræður við Evrópusambandið sem er þetta stórveldi í sjávarútvegi, með þessa þekkingu, með þessa reynslu.“ Þorgerður vill að við göngum upplitsdjörf til viðræðna. „Við eigum að vera með kassann út, við eigum að vera hugrökk.“ Aðild styrki fullveldið Þorgerður segist hafa átt í samtölum við utanríkisráðherra um alla Evrópu frá meðalstórum og minni ríkjum. Samdóma álit um að aðild hafi styrkt fullveldið. Þá er hún sannfærð um að undanþágur fáist í bæði sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. „Ég er sannfærð um að við munum sjá fram á undanþágu í fiskveiðimálum, landbúnaðarmálum og ETS-málum,“ segir Þorgerður og vísar þar til losunarheimildakerfis ESB á gróðurhúsalofttegundum sem valdið hefur Íslandi vandræðum, til að mynda þegar kemur að flugrekstri. „Er þetta baráttan um Ísland? Þetta er baráttan fyrir Ísland,“ segir Þorgerður með áherslu. „Er ESB eina markmiðið? Nei, alls ekki, en þetta er leið að því markmiði að gera Ísland öruggara og að það sé meiri stöðugleiki.“ Aðild sé rétta skrefið Þorgerður er sannfærð um að aðild sé rétta framtíðarskrefið fyrir Ísland og vill kjarna umræðuna. „Á endanum snýst þessi þjóðaratkvæðagreiðsla um venjulegar fjölskyldur, um verðlag og vexti, að fara úr fákeppni yfir í samkeppni. Að við séum ekki alltaf að láta þetta óréttlæti, sem fylgir meðal annars íslensku krónunni, bitna á íslenskum fjölskyldum.“ Þorgerður segir að það sé vilji hennar að farið verði beint í samningsviðræður um erfiða kafla, líkt og sjávarútvegsmálin, og þar séu samningsmarkmið Íslands alveg skýr, en þau komi fram í áliti meirihluta utanríkismálanefndar við tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. „Við ætlum að hafa yfirráð yfir fiskveiðistjórninni og yfir fiskveiðiauðlindinni.“ Skýrt sé að farið verði í aðra atkvæðagreiðslu að viðræðum loknum. „Við ætlum að ná góðum samningum og það er alveg skýrt að þegar hann liggur fyrir þá fer hann fyrir þjóðina.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Viðreisn Sjávarútvegur Bítið Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Sjá meira