Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sindri Sverrisson skrifar 12. júlí 2026 09:01 Linda Noskova sendi fingurkoss til himna um leið og hún þakkaði mömmu sinni fyrir allt sem hún gerði fyrir hana. Getty/Matthew Stockman Linda Nosková varð yngsta konan í fimmtán ár til þess að vinna Wimbledon-mótið í tennis í gærkvöld. Eftir sigurinn sendi hún fingurkoss til himna og þakkaði mömmu sinni sérstaklega, en hún féll frá í aðdraganda Wimbledon-mótsins fyrir tveimur árum.
Nosková vann frábæran sigur í tékkneskum úrslitaleik í gær, gegn vinkonu sinni Karolinu Muchová, og vann þar með risamót í fyrsta sinn. Fjölskylda hennar var á svæðinu og Nosková þakkaði henni og öðrum sem átt hafa þátt í hennar velgengni, en hún vildi líka þakka Ivönu móður sinni sérstaklega fyrir. Hún lést fyrir tveimur árum eftir langa baráttu við krabbamein. „Það er ein manneskja í viðbót sem ég vil þakka og það er mamma mín. Ég stæði svo sannarlega ekki hér án hennar, svo takk fyrir,“ sagði Nosková áður en hún horfði til himins og sendi þá fingurkoss. Tilfinningarnar báru hana svo ofurliði í kjölfarið. Linda Noskova thanking her mom who passed away from a long fight with cancer before Wimbledon in 2024. Today, she’s a Wimbledon champion. “I would not be standing here without her.”Her mom is surely smiling down on her.🥹 pic.twitter.com/e6LVA9dGDL— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) July 11, 2026 „Ég græt venjulega ekki, þetta er ekki í lagi fyrir mig! Ég hef notið þessara tveggja vikna svo mikið, öll sorgartárin, öll gleðitárin, allur svitinn og blóðið sem lagt var í þetta, þetta var allt þess virði. Ég mun svo sannarlega aldrei gleyma þessum tveimur vikum,“ sagði Nosková í sigurræðu sinni. Nosková er yngsta konan til að sigra á Wimbledon síðan landa hennar Petra Kvitová gerði það árið 2011. Kvitová var einmitt á vellinum í gær og sá Nosková svara fyrir sig eftir að hafa kastað frá sér tækifærum til sigurs í annarri lotu. „Þetta er ótrúleg tilfinning, í dag, en allir þessir leikir hafa verið svo líkamlega og andlega erfiðir,“ sagði Nosková og beindi svo orðum sínum til Muchová. Þær hafa oft æft saman og jafnvel spilað saman í tvíliðaleik á Ólympíuleikunum í París 2024. „Karo, þú lést mig svo sannarlega hafa fyrir þessu, ég fyrirgef þér þetta í þetta eina skipti. Eins og þú sagðir, við erum vinkonur, ég er svo glöð að hafa getað spilað minn fyrsta risamótsúrslitaleik með þér,“ sagði Nosková.
Tennis Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Handbolti Fleiri fréttir Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Yamal gæti farið út af sporinu og ÍBV frumsýnir Kana Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjá meira