Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. júlí 2026 16:18 Guðbjörg Eyjólfsdóttir er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Grindavík. Vísir Á fimmta tug barna eru skráð í skóla í Grindavík næsta haust. Formaður bæjarráðsins segir skólahald mikilvægt skref í uppbyggingu bæjarins. „
Þetta verða tímamót,“ segir Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður bæjarráðs Grindavíkur. Í lok janúar var auglýst eftir forskráningum í skóla í Grindavík til að kanna raunverulega eftirspurn. Nú eru 43 börn sem gera ráð fyrir því að sækja skólahald í haust, frá leikskólaaldri upp í tíunda bekk. Stöðugildi kennara við grunnskólann verða 5,4 og í leikskólanum 3,5. „Það eru mjög mikilvæg skref í uppbyggingunni og endurreisninni,“ segir Guðbjörg. Einnig mun Fisktækniskólinn opna dyr sínar á ný í Grindavík í haust eftir að bæjarráð gerði samning við hann um húsnæði. Þar eru nokkrir tugir ungmenna sem koma til með að sækja skólann. „Það er verið að vinna núna í húsnæðismálunum og þegar eitthvað kemur í ljós varðandi þau held ég að þetta gerist mjög hratt hjá okkur. Það eru margir sem eru að hugsa um að snúa heim.“ Miðað við nýjustu tilmæli Þórkötlu, sem festi kaup á fjölda fasteigna í Grindavík í kjölfar rýmingar bæjarins, mega íbúar einungis gista í tólf nætur á mánuði í húsunum sínum. Þau áform hafa fallið í grýttan jarðveg. Bæjarstjórnin fundaði með Þórkötlu í síðustu viku til að ræða húsnæðismálin. „Við héldum vinnufund með Þórkötlu í síðustu viku sem að skilaði okkur ágætis skrefum í átt til frekara samtals. Við erum að stofna vinnuhóp sem fer betur ofan í málin.“
Grindavík Skóla- og menntamál Grunnskólar Byggðamál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira