Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar 13. júlí 2026 11:04 Samfélagið í Hvalfjarðarsveit hefur á undanförnum árum fundið vel fyrir sívaxandi umferð um þjóðveg 1 og aðliggjandi vegakerfi. Sú þróun kallar eðlilega á að innviðir og umferðaröryggi þróist í takt við breyttar aðstæður. Með það að leiðarljósi samþykkti sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samhljóða á fundi sínum þann 9. júlí sl. að óska eftir hið fyrsta formlegu samtali við Vegagerðina um mikilvæg samgöngumál sem ekki verður lengur beðið með að taka föstum tökum. Í bókun sveitarstjórnar er lögð áhersla á þrjú meginverkefni sem snúa að öryggi, uppbyggingu og framtíðarsýn sveitarfélagsins: Brýnar úrbætur á fjölförnum gatnamótum við þjóðveg 1 og Innnesveg. Virka aðkomu Hvalfjarðarsveitar að undirbúningi varðandi legu Hvalfjarðarganga II. Markvisst samstarf við Vegagerðina um úrbætur á tengivegum og heimreiðum í dreifbýli. Umferðaröryggi verður að vera í fyrirrúmi Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur að nokkur gatnamót í sveitarfélaginu séu komin að þolmörkum. Um er að ræða gatnamót við Leirársveitarveg, Melasveitarveg, Hvalfjarðarveg, Melahverfi, Akrafjallsveg og gatnamót Innnesvegar við Krossland. Þessi gatnamót gegna lykilhlutverki fyrir íbúa sveitarfélagsins, atvinnulíf, landbúnað, ferðaþjónustu og þá fjölmörgu vegfarendur sem fara um þjóðveg 1 og Innnesveg á hverjum degi. Mikill hraði á þjóðveginum og sívaxandi umferð gera inn- og útakstur víða erfiðan og auka hættu á alvarlegum umferðarslysum. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar telur að nú sé tímabært að Vegagerðin taki þessi gatnamót til heildstæðrar endurskoðunar með framtíðarumferð og ekki síst umferðaröryggi að leiðarljósi. Eða eins og segir í bókun sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar þann 9.júlí sl.: „Við eigum ekki að bíða eftir því að enn eitt alvarlegt slys verði tilefni að aðgerðum. Umferðaröryggi á alltaf að vera í forgangi og því viljum við hefja uppbyggilegt samtal við Vegagerðina um hvaða lausnir henta best á hverjum stað.“ Meðal þeirra úrræða sem sveitarfélagið vill að verði skoðuð eru hringtorg þar sem það á við, aðskildar beygjuakreinar, bætt lýsing og merkingar, hraðastýring og önnur umferðaröryggisúrræði sem taka mið af þeirri umferð sem fyrirsjáanleg er á næstu árum. Hvalfjarðarsveit vill eiga virka aðkomu að umræðu um legu Hvalfjarðarganga II Sveitarstjórn leggur jafnframt ríka áherslu á að Hvalfjarðarsveit verði virkur þátttakandi í umræðu um Hvalfjarðargöng II. Lega ganganna og staðsetning gangamunna vestan Hvalfjarðar mun hafa veruleg áhrif á skipulag sveitarfélagsins, þróun byggðar, atvinnulíf og samgöngur um ókomna tíð. Því telur sveitarstjórn mikilvægt að sveitarfélagið komi að undirbúningi verkefnisins frá fyrstu stigum. „Þegar rætt er um framtíð þjóðvegar 1 og jafn stórt innviðaverkefni og Hvalfjarðargöng II er eðlilegt og nauðsynlegt að Hvalfjarðarsveit eigi sæti við það borð þar sem framtíðarsýn svæðisins er mótuð. Skipulagsvald sveitarfélagsins og ábyrgð þess á þróun byggðar kalla á virka aðkomu að þeirri vinnu.“ Skilaboð sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar til innviðaráðherra og Vegagerðarinnar eru skýr í ljósi ofangreindra þátta. Nú er rétti tíminn til að ráðast í markvissar úrbætur og hefja skipulagt samtal um framtíð vegakerfisins í Hvalfjarðarsveit. Með því verður ekki aðeins aukið öryggi vegfarenda heldur einnig lagður traustur grunnur að áframhaldandi uppbyggingu vegæðarinnar sem um sveitarfélagið liggur og öruggum samgöngum til framtíðar. Höfundur er sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vegagerð Hvalfjarðarsveit Björn Bjarki Þorsteinsson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar