Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Bjarki Sigurðsson skrifar 16. júlí 2026 21:11 Haraldur Þór Egilsson er safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Vísir/Bjarki Hernámsins á Akureyri á tímum síðari heimsstyrjaldar er minnst með nýrri sýningu Minjasafns bæjarins. Forsvarsmenn sýningarinnar þurftu að vera frumlegir við uppsetninguna þar sem margar minjar höfðu glatast.
Breskir hermenn sáust fyrst á Akureyri 17. maí 1940, viku eftir hernám Reykjavíkur. Um borð voru fjörutíu sjóveikir hermenn sem hertóku fjörðinn. Þúsundir hermanna áttu eftir að mæta þangað á næstu mánuðum þar sem þeir reistu herbúðir, drógu varnarlínu um Hrísey, lögðu tundurdufl í sjó og fleira. Sýningin Í hers höndum gefur fólki innsýn í þessa tíma og er byggð á ljósmyndum, kvikmyndum og samtímasögum hermanna og heimafólks. Minjar frá þessum tíma hafa margar hverjar glatast. „Það er ekki mikið sem verður eftir sem hefur í það minnsta ratað á íslensk söfn. Við þurftum að vera skapandi við að finna hluti til að sýna og gera skemmtilega sýningu,“ segir Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Fastagestur á safninu lagði sitt af mörkum á lokametrunum. Hann var ungur strákur á hernámsárunum og hafði sögu að segja. „Hann var að skottast á Eyrinni milli tjalda, þá fær hann bendingu frá einum hermanni sem dregur upp myndavél og tekur af honum ljósmynd. Ekkert mál með það. Svo nokkrum dögum síðar þegar strákurinn er á leið heim úr skólanum og fer í gegnum miðbæinn keyrir fram hjá hersveit á mótorhjólum. Einn þeirra stöðvar hjólið og gengur til stráksins. Hann fer í brjóstvasann og réttir honum myndina sem hann hafði tekið. Þessi mynd barst til okkar rétt fyrir sýningarbyrjun,“ segir Haraldur. Hér fyrir neðan má sjá myndina sem hafði varðveist öll þessi ár. Myndin er til sýnis á safninu.Minjasafnið á Akureyri
Söfn Akureyri Seinni heimsstyrjöldin Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Fleiri fréttir Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Sjá meira