Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 14. júlí 2026 18:56 Hulda Gunnlaugsdóttir var sárþjáð af verkjum og bruddi verkjalyf daglega þegar hún komst loks í aðgerðina. Vísir/Ívar Fannar Kona á níræðisaldri sem var sárkvalin vegna verkja þurfti að greiða eina og hálfa milljón fyrir aðgerð á baki þar sem kvóti vegna slíkra aðgerða var búinn. Dóttir hennar segir galið að kerfið virki ekki betur.
Í desember í fyrra fór Hulda Gunnlaugsdóttir, sem er áttatíu og tveggja ára, að finna fyrir miklum verkjum í neðra baki sem leiddu niður í fót. Hulda leitaði til læknis og reyndi margt en verkirnir versnuðu hratt sama hvað gert var. „Ég var bara mjög kvalin, það var bara mjög erfitt að hreyfa sig,“ segir Hulda þegar hún lýsir því hvernig henni leið og að hún hafi brutt verkjatöflur eins og sælgæti til að halda sér gangandi. Í maí hitti hún heila- og taugaskurðlækni í Orkuhúsinu en þá var staðan orðin mjög slæm. „Það sést á myndum að það eru mjög alvarlegar þrengingar þarna í mænugöngum sem orsaka þessa verki sem voru orðnir það slæmir að þeir voru algjörlega óbærilegir. Ég veit ekki hvort það er hægt að lýsa því betur en þetta eru verkir sem leiða alveg niður í fót, hún gat hvorki setið né legið, ekki sofið heila nótt, bara öll hennar tilvera snerist um það að reyna að þrauka einhvern veginn og mamma er algjört hörkutól, hún er enginn vælukjói,“ segir Magnea Gunnarsdóttir dóttir Huldu. Mægðurnar Hulda Gunnlaugsdóttir og Magnea Gunnarsdóttir segja galið að kerfið virki ekki betur. Vísir/Ívar Fannar Hún segir lækninn hafa sagt að móðir hennar gæti farið í aðgerð. „Það er hægt að laga þetta en það er bara kvótinn er bara búinn. Það er allt til alls, það eru skurðstofur, það er til starfsfólk og það er laus tími fyrir hana en hnífurinn stendur þar í kúnni að mér skilst að Sjúkratryggingar styrki ekki þess háttar aðgerðir nema, ég held ég fari örugglega rétt með, hundrað aðgerðir á ári og sá kvóti kláraðist í mars.“ Þannig hafi Sjúkratryggingar aðeins gert ráð fyrir hundrað svona aðgerðum á þessu ári. Sambærilegar aðgerðir eru líka gerðar á Landspítalanum en þeim var sagt að biðin þar væri töluverð. Hulda fann fljótt eftir tímann hjá lækninum að hún gat ekki meir. „Við sem betur fer náum sambandi við lækninn aftur og þá kemur í ljós að við getum sem sagt borgað bara úr eigin vasa aðgerðina. Svo ákvörðun var tekin bara á fimm sekúndum það var aldrei spurning að gera það sem við gerðum,“ segir Magnea. Verðmiðinn á aðgerðinni var ein og hálf milljón og örfáum dögum síðar var Hulda komin í aðgerð. Strax á eftir var allt breytt og verkirnir farnir. „Eftir að ég vaknaði þá fann ég ekkert,“ segir Hulda. Magnea segir ótrúlegt að kerfið virki ekki betur og að mamma hennar hafi þurft að greiða fyrir aðgerðina til að losna undan verkjum. Þá hafi alls ekki allir efni á að greiða svona háar upphæðir fyrir svona aðgerðir. „Þetta er bara galið. Ég held að það séu allir sammála um það að það er enginn þarna úti sem vill hafa þetta svona.“ Þeim var sagt að að minnsta kosti tvö hundruð manns bíði eftir sambærilegum aðgerðum og þurfi annaðhvort að greiða fyrir þær eða að bíða fram á næsta ár. Hulda segir það erfiða stöðu að vera í. „Mér verður bara hugsað til allra þeirra sem bíða þarna úti sem eru eins staddir og ég var. Ég vona bara að ráðamenn vakni og fari að hugsa um þetta fólk.“
Heilbrigðismál Sjúkratryggingar Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira