Sjúkratryggingar
1 2 3 … 3 ›
Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Landspítalans um að rukka íslenska konu um 1,3 milljónir króna vegna dvalar hennar og þjónustu sem hún þáði vegna veikinda á Landspítalanum í sumar. Konan var með lögheimili í Bandaríkjunum þegar hún veiktist hér á landi og var ekki tryggð hjá Sjúkratryggingum Íslands. Neytendur 6.11.2024 22:26
Fara með Intuens-málið fyrir dómstóla sem gæti reynst afdrifaríkt Sjúkratryggingar Íslands hyggjast fara með niðurstöðu nýs úrskurðar, þar sem lögð var fjörutíu milljóna sekt á stofnunina vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, fyrir dómstóla. Forstjóri stofnunarinnar segir að málið gæti reynst afdrifaríkt. Hann hafnar ásökunum um mismunun. Innlent 3.11.2024 19:03
Sjúkratryggingar sektaðar um 40 milljónir: „Hér er verið að mismuna fyrirtækjum“ Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða 41 milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Framkvæmdastjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 19:02
Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, ákvað í dag að hefja formlega rannsókn á meintri ríkisaðstoð í tengslum við tvo samninga um greiðsluþáttöku Sjúkratrygginga Íslands fyrir læknisfræðilega myndgreiningarþjónustu. Viðskipti innlent 18.9.2024 15:20
Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Á íbúafundi sem haldinn var í Búðardal í nóvember 2023 var m.a. rætt um regluverk Sjúkratrygginga Íslands um greiðslufyrirkomulag stofnunarinnar vegna sjúkraþjálfunar því mikil vinna sjálfboðaliða hefur verið lögð fram í þeim tilgangi að byggja upp aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara í Búðardal en erfiðlega hefur gengið að fá sjúkraþjálfara til starfa fram til þessa. Skoðun 18.9.2024 11:31
Ekki hægt að fara í skurðaðgerð til að losna við fíknisjúkdóminn Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri SÁÁ segir nýjan samning samtakanna við Sjúkratryggingar Íslands tímamótasamning. Samningurinn felur í sér fimmfalda aukningu á aðgengi að lyfjameðferð hjá SÁÁ fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóðafíkn. Innlent 6.9.2024 06:45
Viðauki við samning SÍ og SÁÁ hluti af aðgerðum gegn ópíóðavandanum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknisjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Innlent 2.9.2024 19:14
Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar Réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári. Innlent 3.7.2024 15:15
„Konur eru ekkert að leika sér að því að láta taka af sér brjóstin“ Formaður Brakkasamtakanna, Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, telur ótækt að Sjúkratryggingar Íslands semji ekki við fyrirtækið Intuens ehf. um segulómtækismyndatöku. Fyrirtækið sé það eina á landinu sem eigi brjóstaspólur fyrir myndatöku, utan Landspítalans. Konur sem séu með BRCA genið fái aðeins þjónustu á Landspítalanum og að hún sé of óáreiðanleg. Innlent 23.6.2024 13:16
Vísar á heilbrigðisráðherra að borga bílastæðagjöldin Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra vísar því til Willums Þór Þórssonar heilbrigðisráðherra að skoða hvort Sjúkratryggingar geti mætt þeim aukna kostnaði sem ný bílastæðagjöld á innanlandsflugvöllum valda landsbyggðarfólki á leið í læknisheimsóknir. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Þorgríms Sigmundssonar, varaþingmanns Miðflokksins úr Norðausturkjördæmi, á Alþingi í gær. Innlent 21.6.2024 11:11
Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Yfir fimm hundruð manns hafa skrifað undir lista þar sem skorað er á Sjúkratryggirnar Íslands að semja um læknisþjónustu á Akureyri við heimilislæknana Guðrúnu Dóru Clarke og Val Helga Kristinsson eftir að starfsemi þeirra í bænum var stöðvuð tímabundið. Skjólstæðingur annars þeirra til margra ára segir út í hött að nýta ekki þá starfskrafta sem séu íbúum til boða. Innlent 17.6.2024 13:00
„Þetta er bara of dýrt eins og staðan er í dag“ Forstjóri Sjúkratrygginga Íslands segir að bíða verði eftir því að fleiri þyngdarstjórnunarlyf komi á markað, áður en hægt verður að rýmka skilyrði fyrir greiðsluþátttöku. Sem stendur sé samfélagslegur kostnaður of mikill. Fólk hefur í auknum mæli tekið sjálft á sig kostnað lyfjanna. Innlent 9.6.2024 09:00
Intuens vill samning við Sjúkratryggingar vegna segulómrannsókna Fyrirtækið Intuens ehf, sem vakti athygli seint á síðasta ári vegna umdeildra heilskimana, var synjað um samning um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í starfsemi fyrirtækisins. Samkeppniseftirlitið segir innkomu fyrirtækisins hvata samkeppni á markaði, en þegar eru þrjú myndgreiningarfyrirtæki með samning við SÍ. Innlent 5.6.2024 11:59
Fjórða læknaferðin endurgreidd Síðustu mánuði hafa margar jákvæðar fréttir borist frá heilbrigðisráðuneytinu. Markvisst er unnið eftir stefnunni jafnt aðgengi, óháð efnahag og búsetu, um það ríkir samstaða í samfélaginu. Það er því fagnaðarefni að nú er verið að fjölga ferðum sem fást endurgreiddar frá Sjúkratryggingum vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu sem sótt er utan heimabyggðar. Skoðun 14.5.2024 08:31
Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Starfsmaður Sjúkratrygginga Íslands hefur verið kærður af stofuninni fyrir fjárdrátt í störfum sínum þar. Innlent 13.5.2024 18:41
Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Sjúklingar þurfa ennþá að óska eftir tilvísun frá lækni vegna sjúkraþjálfunar þrátt fyrir að bæði heimilislæknar og sjúkraþjálfarar hafi bent á að kerfið sé úrelt. Formaður Félags sjúkraþjálfara vonar að kerfinu verði umbylt í vinnu sem nú stendur yfir í heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 28.3.2024 20:01
Fagnar sigri gegn kerfinu eftir fimm ára baráttu Fimm ára baráttu ungrar konu með sjaldgæfan taugasjúkdóm við kerfið er lokið. Sjúkratryggingar hafa staðfest að hún eigi rétt á hjólastólahjóli, eftir að hafa hafnað henni tvisvar áður. Innlent 24.2.2024 21:12
Heyrnartæki óheyrilega dýr á Íslandi Kristján E. Guðmundsson, fyrrverandi framhaldsskólakennari, hefur gert samanburði á verði heyrnartækja á Norðurlöndum og svo á Íslandi. Munurinn er sláandi. Hvað veldur er svo rannsóknarefni út af fyrir sig. Innlent 19.2.2024 10:46
Síðasta vonin um ljúfa ævidaga Kraftaverk má telja að Páll Kristrúnar Magnússon hafi lifað af heilablóðfall á ferðalagi með fjölskyldu sinni um landið haustið 2022 þvert á spár lækna. Hann glímir í dag við margvíslegar líkamlegar skerðingar. Fjölskyldunni hefur verið tjáð að litlar líkur séu á frekari bata og blasir nú við að Páll þurfi að fara inn á hjúkrunarheimili, einungis 62 ára gamall. Þau halda þó í eina von. Lífið 11.2.2024 07:01
Hæstiréttur tekur eggjastokkamál fyrir Hæstiréttur hefur veitt Sjúkratryggingum Íslands áfrýjunarleyfi í máli sem snýr að læknamistökum þegar eggjastokkur konu var fjarlægður án hennar vitneskju. Sjúkratryggingar voru dæmdar til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur í Landsrétti. Innlent 6.2.2024 16:13
Pissar í flösku og fær ekki aukaáklæði á hjólastólinn Karlmaður sem notar hjólastól fær ekki þriðja áklæðið á sessu hjólastólsins greitt af Sjúkratryggingum Íslands. Í kæru mannsins til úrskurðarnefndar velferðarmála segir að ástæðan fyrir aukaáklæði sé út frá hreinlætissjónarmiðum og sýkingarhættu en hann noti flösku til að kasta af sér þvagi en það gerist oft að það leki fram hjá og ofan í áklæðið. Innlent 21.12.2023 16:52
Þurfa að reiða fram marga tugi milljóna þar sem engin læknismeðferð býðst á Íslandi „Við erum öll búin að leggja lífið okkar á hliðina út af þessu öllu saman,“ segir Halldór Kristinn Harðarsson. Árni Elliot Swinford, bróðir Halldórs, greindist fyrr á árinu með sjaldgæfan lungasjúkdóm og hefur neyðst til að sækja meðferð erlendis þar sem engin þekking er á meðhöndlun sjúkdómsins hér á landi. Innlent 10.12.2023 08:01
Kostnaður SÍ vegna offitulyfja tæpir tveir milljarðar á árinu Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna sykursýkislyfja sem einnig eru notuð til þyngdarstjórnunar hefur tólffaldast á síðustu fimm árum. Það segir í tilkynningu frá stofnuninni en kostnaður á þessu ári er nær tveir milljarðar. Sviðsstjóri segir stofnunina ekki sjá fram á að breyta reglum um niðurgreiðslu. Innlent 5.12.2023 09:08
Stórkostlegt gáleysi að fjarlægja eggjastokk án leyfis Landsréttur hefur dæmt Sjúkratryggingar Íslands til þess að greiða konu 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna stórkostlegs gáleysis læknis. Sá fjarlægði vinstri eggjastokk konunnar án þess að hún veitti samþykki fyrir. Innlent 1.12.2023 16:02
Loka hluta af húsnæði Reykjalundar: 32 starfsmenn missa vinnuaðstöðu Endurhæfingarmiðstöðin Reykjalundur í Mosfellsbæ hyggst loka hluta af húsnæði sínu en komið hefur í ljós að nokkrar af byggingum heilbrigðisstofnunarinnar eru í bágu ásigkomulagi. Úttekt verkfræðistofu sýnir að óheilnæmt sé fyrir sjúklinga og starfsfólk að dvelja í húsnæðinu. Innlent 30.11.2023 14:15
„Viðmiðin hjá okkur eru víðari en á Norðurlöndunum“ Forstjóri Lyfjastofnunar segir Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvaða sjúklingar fá niðurgreidd lyf sem notuð eru til að meðhöndla offitu. Breytt fyrirkomulag verði ekki endurskoðað nema Sjúkratryggingar óski eftir því. Innlent 23.11.2023 12:52
Hátt í tvö þúsund manns með offitu muni lenda í vandræðum Sérfræðingar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa miklar áhyggjur af breyttri greiðsluþátttöku á lyfjum sem notuð eru til að meðhöndla offitu. Hert skilyrði mismuni sjúklingum eftir efnahag og hátt í tvö þúsund manns muni lenda í vandræðum. Innlent 22.11.2023 12:16
Takmörkun á offitulyfjum leiði til mismununar eftir efnahag Sérfræðingar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vilja að Lyfjastofnun og Sjúkratryggingar Íslands endurskoði á ný greiðsluþáttöku á lyfjunum Wegovy og Saxenda, sem notuð eru til að meðhöndla offitu. Hert skilyrði voru kynnt í byrjun mánaðar sem sérfræðingar segja mismuna sjúklingum eftir efnahag. Innlent 22.11.2023 08:24
„Við báðum um lítinn púða en fengum Teslu“ Karlmanni með heilabilunarsjúkdóminn Lewy body hefur þrisvar sinnum verið synjað af Sjúkratryggingum Íslands um að fá niðurgreiddan sérstakan stuðningspúða. Púðinn kostar rúmar 180 þúsund krónur. Á endanum fékk maðurinn styrk fyrir sérstökum hjólastól í staðinn. Sá kostar rúmar 790 þúsund krónur. Innlent 13.11.2023 06:45
Greiðsluþátttaka verður einungis fyrir þá sem þjást af offitu Lyfjastofnun hefur endurskoðað einstaklingsbundna greiðsluþátttöku fyrir lyfin Saxenda og Wegovy, í ljósi nýrra upplýsinga frá Norðurlöndunum. Greiðsluþátttöku í Saxenda verður hætt en greiðsluþáttaka Wegovy skilyrt við einstaklinga sem þjást af offitu. Innlent 2.11.2023 14:42