Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar 26. ágúst 2026 11:11 Níutíu ár eru liðin frá því að Alþingi samþykkti fyrstu heildstæðu lög um almannatryggingar á Íslandi. Þar var lagður grunnur að einni mikilvægustu stoð íslensks samfélags og þeirri sannfæringu að heilsa og öryggi fólks eigi ekki að ráðast af efnahag eða aðstæðum. Með lögunum var stigið mikilvægt skref frá refsistefnu gagnvart þeim sem þurftu aðstoð yfir í samfélagslega ábyrgð og rétt til stuðnings. Raunar hefst saga sjúkratrygginga talsvert fyrr. Fyrsta sjúkrasamlagið var stofnað árið 1897 og árið 1911 voru samþykkt lög um sjúkrasamlög og hófst þá starfsemin víða um land. Sjúkrasamlögin byggðu á erlendum fyrirmyndum en endurspegluðu líka ný viðhorf landsmanna til heilbrigðisþjónustu og samtryggingar. Samfélagsleg samstaða og samtrygging Sjúkrasamlögin byggðu frá upphafi á frjálsum tryggingum og nutu stuðnings ríkisins. Með lögunum um alþýðutryggingar frá 1936 er kveðið á um skylduaðild að sjúkrasamlögum og þar með var stigið stórt skref í átt að þeirri samtryggingu sem við njótum í dag. Frá upphafi var Tryggingastofnum falin yfirstjórn sjúkrasamlaga og hafði m.a. það hlutverk að staðfesta samninga þeirra við lækna, lyfjabúðir og sjúkrahús. Í þessum viðfangsefnum liggja ræturnar að núverandi hlutverki Sjúkratrygginga sem er að semja við veitendur heilbrigðisþjónustu og greiða fyrir þjónustu þeirra. Þrátt fyrir skyldutryggingu störfuðu sjúkrasamlög fyrst og fremst í stærstu kaupstöðum. Það var ekki fyrr en árið 1951sem starfsemi þeirra náði um land allt og allir landsmenn urðu sjúkratryggðir. Segja má að stofnanainnviðir heilbrigðisþjónustunnar hafi að miklu leyti verið sjálfsprottnir og mótast af framtaki einstakra byggðalaga, frjálsra félagasamtaka og heilbrigðisstarfsmanna. Upp úr seinni heimstyrjöldinni var gerð tilraun til að samþætta þetta brotakennda heilbrigðiskerfi í samræmt skipulag um land allt, m.a. að erlendri fyrirmynd, en uppbygging samræmdrar heilbrigðisþjónustu um allt land gekk hægt og varð miklu síðar. Sjúkrasamlögin voru lengi veikburða og háð opinberum stuðningi sem jókst með niðurfellingu iðgjalda í upphafi áttunda áratugarins. Árið 1990 voru öll sjúkrasamlög landsins lögð niður og starfsemin færð undir Tryggingastofnun. Um svipað leyti var rekstur sjúkrahúsa, heilsugæslu og annarrar heilbrigðisþjónustu færð til ríkisins og stofnanir ríkisins settar á föst framlög í fjárlögum. Fram að þeim tíma höfðu greiðslur ávallt verið að hluta til háðar umfangi þeirrar þjónustu sem veitt var af hverri heilbrigðisstofnun. Sjúkratryggingar eru arftaki sjúkrasamlaganna Með niðurlagningu sjúkrasamlaga og tilfærslu rekstar til ríkisins voru teknar ákvarðanir sem í raun gengu gegn sögulegum rótum heilbrigðisþjónustunnar. Þar vegur þyngst að verkefni miðlægar samninga- og greiðslustofnunar sem þá var Sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar var veikt og greiðslur færðar úr því formi að endurspegla umfang þjónustu í fastar fjárveitingar. Með stofnun Sjúkratrygginga Íslands árið 2008 var í raun verið að endurvekja þær meginaðferðir sem höfðu verið ríkjandi lengst af, að samið skyldi við þjónustuveitendur og að greiðslur endurspegluðu umfang og helst einnig gæði og árangur veittrar þjónustu. Sjúkratryggingar Íslands eru því ekki aðeins arftaki hluta Tryggingastofnunar heldur einnig arftaki sjúkrasamlaganna og þeirra hugsjóna sem lágu að baki stofnunar þeirra. Framfarir og nýjar áskoranir Sjúkratryggingar Íslands eru í dag einn af hornsteinum þessarar hugsjónar um að tryggja skuli öllum aðgengi að bestu fáanlegu heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og öðrum aðstæðum og gegna þannig lykilhlutverki við mótun nútímalegrar heilbrigðisþjónustu. Á hverjum degi eru teknar ákvarðanir sem hafa bein áhrif á líf fólks. Við semjum um heilbrigðisþjónustu, greiðum fyrir meðferðir, lyf, tannlækningar, hjálpartæki og sjúkraflutninga, styðjum við endurhæfingu og tryggjum að fólk fái þá heilbrigðisþjónustu sem lög mæla fyrir um. Á síðustu áratugum hafa orðið gríðarlegar framfarir í heilbrigðisþjónustu. Meðferðir sem áður voru óhugsandi eru nú orðnar hluti af daglegri þjónustu. Fólk lifir lengur, ný lyf og tæknilausnir bæta lífsgæði og sífellt fleiri geta lifað virku lífi þrátt fyrir langvinna sjúkdóma. Þessi þróun skapar einnig nýjar áskoranir. Eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu vex, kostnaður eykst og væntingar samfélagsins breytast. Á sama tíma þarf að tryggja að opinberu fjármagni sé varið á ábyrgan hátt og að jafnræði sé ávallt haft að leiðarljósi. Stærsti kaupandi heilbrigðisþjónustu Sjúkratryggingar Íslands eru stærsti kaupandi heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Með samningum við sjúkrahús og aðrar heilbrigðisstofnanir, sjálfstætt starfandi lækna, tannlækna, sjúkraþjálfara og fjölmarga aðra þjónustuveitendur mótum við í reynd hvernig þjónusta er veitt, hvaða gæði eru gerð að skilyrði og hvernig opinberu fé er ráðstafað. Í því felst mikil ábyrgð. Hlutverk Sjúkratrygginga Íslands ekki aðeins að greiða reikninga heldur að skapa hvata fyrir góða þjónustu, stuðla að gæðum, hagkvæmni og nýsköpun og tryggja að fjármunir nýtist sem best í þágu sjúklinga og samfélagsins alls. Framfaraskref í sögu íslensks velferðarsamfélags Með lögfestingu á almannatryggingakerfinu fyrir níutíu árum var stigið eitt stærsta framfaraskref í sögu íslensks velferðarsamfélags. Sú öfluga þjónusta sem við eigum kost á er afrakstur áratuga markvissrar uppbyggingar og samfélagslegrar samstöðu. Þessi tímamót gefa tilefni til að fagna því sem áunnist hefur. En þau kalla líka á umræðu um það hvernig við eflum heilbrigðisþjónustuna okkar til framtíðar. Þessi viðfangefni ásamt öðrum sem varða þróun og áskoranir almannatrygginga verða rætt á ráðstefnu í Hörpu þann 30. september í tilefni af 90 ára afmæli almannatrygginga á Íslandi. Lykill að framtíð Að sumu leyti má segja að mikilvægi öflugrar miðlægrar samninga- og greiðslustofnunar fyrir öfluga heilbrigðisþjónustu hafi gleymst í þeim skipulagsbreytingum sem gerðar voru um 1990. Þetta er áhugavert í ljósi þess að á sama tíma voru aðrar þjóðir að efla samningsgerð og innleiða fjölbreyttari greiðsluaðferðir en áður höfðu tíðkast. Á síðari árum hefur skilningur á mikilvægi Sjúkratrygginga aukist og skapar það tækifæri til að sækja fram, bæta og efla umgjörð heilbrigðisþjónustunnar. Hjá Sjúkratryggingum Íslands starfar öflugur hópur fólks sem vinnur að því alla daga að tryggja aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu þar sem öryggi og gæði eru leiðarljós um leið og sameiginlegir fjármunir nýtist sem best. Framtíð sjúkratrygginga verður ekki byggð á sömu lausnum og þjónuðu okkur fyrir áratugum. Við þurfum að nýta stafrænar lausnir betur, byggja ákvarðanir á traustum gögnum og efla samstarf við heilbrigðisstarfsfólk, þjónustuveitendur og sjúklinga. En þrátt fyrir allar framfarir mun eitt ekki breytast. Saga sjúkratrygginga er saga um samstöðu. Hún minnir okkur á að sterk samfélög verða ekki til af sjálfu sér heldur með markvissum ákvörðunum um að standa vörð um öryggi og lífsgæði allra. Sjúkratryggingar Íslands eru órjúfanlegur hluti af þeirri sögu. Þær eru ekki aðeins arfleifð fortíðar heldur lykill að framtíð íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Sá árangur að allir séu sjúkratryggðir er ekki sjálfgefinn. Sjúkratryggingar eru frá öllum til allra. Höfundur er forstjóri Sjúkratrygginga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjúkratryggingar Mest lesið Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun