Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar 17. júlí 2026 07:17 Frá því að ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks Fólksins tók við fyrir 18 mánuðum hefur náðst umtalsverður árangur í málaflokki útlendinga hvað varðar fjölda samþykktra frumvarpa. Fjögur frumvörp voru samþykkt á þingárinu, sem er mesti fjöldi í 9 ár. Markmiðið er skýrt. Við erum að marka ábyrga stefnu sem stuðlar að jafnvægi og velferð. Það markmið felur um leið í sér að stjórnvöld verða að hafa stjórn á málaflokknum. Við eigum að gera kröfur til þeirra sem setjast hér að og kröfur til okkar um að fólk njóti raunverulegra tækifæra til þátttöku í samfélaginu. Þess vegna er ríkisstjórnin nú meðal annars að auka fjárfestingu í íslenskukennslu. Umsóknum um alþjóðlega vernd hefur nú fækkað verulega frá því sem var á liðnum árum. Fyrstu sex mánuði þessa árs voru umsóknirnar 675. Til samanburðar sóttu 1.122 um alþjóðlega vernd fyrstu sex mánuði ársins 2024. Yfirgnæfandi meirihluti umsækjenda kemur nú frá Úkraínu. Gríðarleg fólksfjölgun frá 2017 Gríðarleg fólksfjölgun á Íslandi undanfarin ár stafaði ekki af stefnu heldur af algjöru stefnuleysi. Íbúum Íslands fjölgaði um rúmlega 50 þúsund frá árinu 2017. Hlutfallsleg fjölgun var um fimmtánföld á við Evrópumeðaltal og nær fjórföld á við hin Norðurlöndin. Stjórnvöld veittu hlutfallslega fleiri dvalarleyfi en annars staðar í Evrópu án þess að spyrja gagnrýnna spurninga um áhrif, t.d. á húsnæðismarkað og þrýsting á þjónustukerfi. Dvalarleyfiskerfið var stærsti áhrifaþáttur fólksfjölgunar á Íslandi. Engu að síður snerist öll pólitísk umræða um reglur um alþjóðlega vernd. Fjöldi sérreglna afnumdar Við urðum að bregðast við og það höfum við gert: 1. Dvalarleyfisgjöld hækkuð: Gjaldskrá dvalarleyfa hefur verið uppfærð til samræmis við Norðurlönd og atvinnuleyfi hafa verið færð frá Vinnumálastofnun til Útlendingastofnunar. Með því er kerfið einfaldað en yfirsýn stjórnvalda aukin. 2. Landamærin styrkt: Framkvæmd á Íslandi hefur verið samræmd við önnur Schengen-ríki og landamærin styrkt með því að stuðla að skilvirkari meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. 3. Við afturköllum vernd brotamanna: Alþjóðleg vernd verður afturkölluð hjá þeim sem fremja alvarleg eða ítrekuð brot. Í þessum reglum felast mikilvæg skilaboð. Jafnframt verður hætt að veita sjálfkrafa dvalarleyfi eftir 18 mánuði. 4. Ísland getur betur framfylgt ákvörðunum: Ísland er ekki lengur eina Schengen ríkið sem ekki rekur brottfararstöð. Brottfararstöðin er nauðsynlegt úrræði fyrir þann minnihlutahóp sem neitar að fara úr landi þrátt fyrir ákvörðun stjórnvalda um að þau eigi að yfirgefa landið. Samhliða verður hætt að vista fólk í fangelsi, eins og því miður er gert nú. 5. Námsmannaleyfi samræmd Norðurlöndum: Skilyrði fyrir námsmannaleyfi hafa verið færð til samræmis við önnur Norðurlönd. Nú þarf að sýna fram á viðunandi námsárangur og heimildir til fjölskyldusameiningar eru ekki langtum víðtækari en annars staðar. Áður gátu námsmenn tekið aldraða foreldra með til Íslands. 6. Við getum vísað brotamönnum úr landi: Nú getum við vísað erlendum föngum úr landi og bannað þeim að koma aftur til landsins og inn á allt Schengen svæðið þegar um er að ræða brotamenn utan Schengen. Við opnuðum augun eins og lofað var Fyrir um ári síðan boðaði ég nýja stefnu í útlendingamálum: Við þurfum ekki að loka landamærunum – við þurfum að opna augun. Tal um lokuð landamæri og galopin landamæri er óábyrgt. Hvorug leiðin gengur upp. Frjálsir fólksflutningar eru ein grunnstoð hagvaxtar en stjórnvöld verða að hafa stjórn og yfirsýn. Nýlegar mansalsrannsóknir lögreglu sýna svart á hvítu að veikustu reglurnar í útendingalögum endurspegla ekki mannúð. Stjórnlaus fólksfjölgun kemur verst niður á viðkvæmustu hópum samfélagsins. „Ríki geta ekki haldið uppi öflugri velferð með galopnum landamærum” sagði Milton Friedman nóbelsverðlaunahagfræðingur. Þess vegna hvikum við ekki frá því markmiði að afnema íslenskar sérreglur í útlendingamálum. Ísland má aldrei vera útsöluvara í hópi efnaðra þjóða. Við vinnum að lagskiptri heildarendurskoðun útlendingalaga. Í haust verður lagt fram frumvarp sem endurskoðar í heild dvalarleyfiskafla útlendingalaganna. Og nú stendur yfir vinna við að rýna og endurskoða reglur um ríkisborgararéttt. Aðgerðir í útlendingamálum byggja á ábyrgri stefnu og skýrri sýn. Þannig munum við ná árangri í þágu samfélagsins alls. Höfundur er dómsmálaráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Innflytjendamál Mest lesið Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mesti árangur í útlendingamálum í 9 ár Þorbjörg S Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Mætti sleppa því að blekkja heimilisfólkið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Sjá meira