Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 17. júlí 2026 07:32 Það hefur alltaf verið eitt af mikilvægustu hlutverkum samfélagsins að vernda börn gegn alls kyns hættum. Við kennum þeim að fara varlega í umferðinni, nota bílbelti og hjálma og tala ekki við ókunnuga. Við setjum aldurstakmark á neyslu áfengis, tóbaks og þátttöku í fjárhættuspilum. Þetta gerum við ekki til að takmarka frelsi barna heldur vegna þess að þau eru enn að vaxa og þroskast. Stærsti leikvöllur barna í dag er ekki lengur úti í hverfinu. Hann er á samfélagsmiðlum. Hvar er barnið mitt? Einu sinni var mesta áhyggjuefni foreldra hvort börnin kæmu heil heim úr skólanum. Í dag vaknar önnur spurning: Hvað tekur á móti þeim þegar þau opna símann sinn? Þar hitta þau vini sína, en einnig ókunnuga. Þar geta þau fengið hrós, en líka niðurlægingu sem hundruð eða þúsundir sjá. Þar geta þau rekist á efni sem enginn fullorðinn myndi vilja að barn sæi. Og þar geta óprúttnir aðilar nálgast þau án þess að foreldrar verði þess varir. Samfélagsmiðlar hafa fært okkur ótal tækifæri, en þeir hafa einnig skapað ýmsa hættu sem við getum ekki horft fram hjá. Þar geta börn orðið fyrir einelti, áreitni á samfélagsmiðlum, neikvæðum félagslegum samanburði. Það er auðvelt að finna skaðlegt efni á netinu þar sem börn verða fyrir áhrifum sem þau hafa hvorki þroska né reynslu til að meta til fulls. Reiknirit samfélagsmiðlanna eru hönnuð til að halda athygli notenda sem lengst og safna jafnframt miklu magni af persónuupplýsingum. Þetta eru meðal þeirra áhættuþátta sem stjórnvöld hafa bent á í áformum sínum um nýja lagaumgjörð. Mín reynsla sem sálfræðingur Í störfum mínum sem sálfræðingur varð ég ítrekað vör við afleiðingar þessa veruleika. Ég hef setið með börnum sem hafa orðið fyrir miskunnarlausu einelti á samfélagsmiðlum. Börnum sem hafa sent myndir af sér í trausti þess að þær færu ekki lengra en síðan horft upp á þær dreifast um netheima. Börnum sem hafa fengið hótanir eða orðið fyrir stafrænu ofbeldi. Ég hef einnig setið með foreldrum sem upplifa vanmátt og spyrja sig hvort þeir hefðu getað komið í veg fyrir að þetta gerðist. Sum þessara áfalla geta fylgt einstaklingum langt fram á fullorðinsár. Eitt útilokar ekki annað Ég hef heyrt því haldið fram að nóg sé að gera meiri kröfur til samfélagsmiðlafyrirtækjanna til verndar börnum. Vissulega eiga fyrirtækin að bera ábyrgð á þeirri þjónustu sem þau bjóða. En vernd barna getur ekki byggt á því einu að fyrirtækin setji sér reglur eða ákveði sjálf hvernig þeim er framfylgt. Það er hlutverk löggjafans að ákveða hvaða verndar börn eiga að njóta. Réttur barna til verndar á ekki að ráðast af viðskiptastefnu eða skilmálum alþjóðlegra tæknifyrirtækja heldur af lögum sem samfélagið sjálft setur. Í dag eru það í raun erlendu samfélagsmiðlafyrirtækin sem ákveða hvaða reglur gilda um aðgang barna að miðlum þeirra. Aðgangurinn byggist að miklu leyti á skilmálum fyrirtækjanna og því hvaða fæðingardag barn slær sjálft inn við skráningu á miðilinn. Það er vart hægt að kalla raunverulega vernd. Það er líka mikilvægt að leiðrétta einn algengan misskilning. Markmiðið lagasetningar um takmarkanir á aðgengi barna að samfélagsmiðlum er ekki að útiloka börn frá samfélagsmiðlum heldur að setja skýrt aldursviðmið til forvarna og verndar. Viðmið sem þessi styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu og senda skýr skilaboð. Þetta er verndarrammi en ekki refsiúrræði. Barnasáttmálinn er okkar leiðarljós Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna byggir á þeirri einföldu en mikilvægu meginreglu að það sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang. Sú meginregla á ekki aðeins við í skólanum, á heimilinu eða í heilbrigðiskerfinu. Hún á einnig að leiða okkur þegar við mótum reglur um stafrænt umhverfi barna. Við getum ekki komið í veg fyrir alla áhættu. Við getum ekki tryggt að ekkert barn verði nokkurn tíma fyrir einelti, áreitni eða misnotkun. En við getum ákveðið að bregðast við með verndarúrræðum þegar nýr veruleiki blasir við. Leikvöllur barnanna hefur að stórum hluta færst yfir á samfélagsmiðla. Ef við ætlum að taka barnavernd alvarlega verður hún að ná þangað líka. Við setjum reglur vegna þess að ekkert barn á að þurfa að verða fyrir skaða sem hægt er að koma í veg fyrir. Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Samfélagsmiðlar Netöryggi Börn og uppeldi Símanotkun barna Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar