Loftgæðin hættuleg leikmönnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. júlí 2026 10:23 Spænska landsliðið æfði í slæmum aðstæðum í gær. Florencia Tan Jun/Getty Images Reykmökkur frá skógareldum í Kanada lagðist yfir New York og New Jersey svæðið í Bandaríkjunum, þar sem úrslitaleikur HM milli Argentínu og Spánar fer fram um helgina. Loftgæðin eru sögð hættuleg en spænska landsliðið æfði utandyra í gær.
Íbúar í New York og New Jersey horfa upp á appelsínugulan himin og íbúum hefur verið ráðlagt að halda sig heima með lokaða glugga til að skýla sér frá reykþokunni. Fjölda viðburða sem átti að halda utanhúss í dag og næstu daga hefur verið aflýst. Búist er þó við því að mesti reykurinn verði fokinn burt fyrir úrslitaleikinn, sem fer fram á sunnudag klukkan sjö, eða klukkan þrjú að staðartíma. Svifryksmengun í New Jersey í gær var meira en sjö sinnum hærri en viðmiðunarmörk alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Spáin gerir ráð fyrir að hún verði „í meðallagi“ á sunnudag. Spænska landsliðið æfði í slæmum loftgæðum í New York í gær en Argentína var enn í Atlanta í Georgíufylki, eftir að hafa slegið England þar úr leik í undanúrslitum á miðvikudag. „Þetta eru afreksíþróttamenn sem anda að sér miklu lofti í gegnum lungun á hverri æfingu og í hverjum leik og þeir ættu í raun ekki að æfa úti ef loftgæði eru á hættulegu bili vegna loftmengunar sem tengist gróðureldum,“ sagði dr. Courtney Howard, embættismaður hjá alþjóðlegum samtökum um loftslag og heilsu (Global Climate and Health Alliance). „Það er engum hollt að vera í reyknum, sérstaklega ekki ef þú ert að æfa,“ sagði Mary Johnson, vísindamaður í umhverfisheilbrigðisrannsóknum við lýðheilsudeild Harvard-háskóla.
HM 2026 í fótbolta Gróðureldar Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Fleiri fréttir Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Sjá meira