Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Sindri Sverrisson skrifar 17. júlí 2026 13:34 Aron Einar Gunnarsson spilaði líka með Þór fyrir tveimur árum en hefur annars verið erlendis í atvinnumennsku síðustu tvo áratugi. Þór fótbolti Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, er mættur heim í Þorpið og mun spila með Þór út leiktíðina í Bestu deildinni í fótbolta. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er sömuleiðis kominn til Þórs, að láni frá KR.
Frá þessu er greint á vefmiðlinum Akureyri.net í dag þar sem sjá má mynd af þeim Aroni og Gyrði í Þórsbúningnum við Hamar. Þar er bent á að næsti leikur Þórs sé við Íslandsmeistara Víkings á morgun og gætu þeir Aron og Gylfi Þór Sigurðsson, félagarnir á frábærri miðju íslenska landsliðsins um árabil, meðal annars á HM 2018 og EM 2016, mæst í Bestu deildinni. Leikurinn hefst klukkan 16 á Sýn Sport Ísland. Komu Arons Einars hefur verið beðið í allt sumar en hann er nú klár í slaginn með Þór og var raunar á leikskýrslu sem aðstoðarþjálfari í síðasta leik liðsins, 6-1 tapinu gegn Fram í Úlfarsárdal. Aron lék síðast með Þór sumarið 2024, þegar liðið var í Lengjudeildinni, en var þá að ná sér eftir meiðsli. Að öðru leyti hefur hann verið erlendis í atvinnumennsku í tvo áratugi, þar af ellefu ár í Bretlandi með Coventry og Cardiff en í Katar frá árinu 2019. Þrátt fyrir að vera orðinn 37 ára gamall er Aron enn hluti af íslenska landsliðshópnum og nálgast þar leikjametið, með 110 A-landsleiki. Hann hefur síðustu ár verið á mála hjá Al-Gharafa í Katar en varð samningslaus þar í sumar. Gyrðir Hrafn er 27 ára varnarmaður sem komið hefur við sögu í sex leikjum með KR í Bestu deildinni í sumar en lék 14 deildarleiki í fyrra. Gyrðir var áður hjá FH og Leikni en er uppalinn hjá KR. Hann kemur að láni til Þórs út leiktíðina.
Besta deild karla Þór Akureyri KR Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira