Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar 18. júlí 2026 14:01 Skortur á framtíðarsýn fyrir fæðingarþjónustu á Landspítala. Flestir gera líklega ráð fyrir að þegar nýr Landspítali opni fylgi því sjálfkrafa ný og nútímaleg fæðingardeild. Þegar fólk heyrir orðin „nýtt þjóðarsjúkrahús“ sér það fyrir sér betri aðstöðu fyrir alla skjólstæðinga sem þangað leita, þar á meðal fæðandi konur og nýjar fjölskyldur. En því miður virðist það ekki vera raunin. Nýi Landspítalinn hefur verið skipulagður án þess að fæðingarþjónustan fái sambærilegt vægi og aðrar klínískar greinar. Á hverju ári fæðast um þrjú þúsund börn á Landspítala eða um 75% allra barna á Íslandi. Þar hefst líf þúsunda Íslendinga og þar verða til nýjar fjölskyldur. Fæðing barns er einn stærsti viðburður í lífi fólks og aðbúnaðurinn sem við bjóðum konum, börnum og fjölskyldum þeirra segir mikið um það hvernig við metum þessa þjónustu. Samfélagið hefur breyst og foreldrahlutverkið hefur breyst. Makar eru í dag virkir þátttakendur í fæðingunni og í umönnun barnsins frá fyrstu stundu. Væntingar okkar til þátttöku beggja foreldra hafa gjörbreyst, en aðbúnaðurinn hefur að mörgu leyti staðið í stað. Það er bæði líkamlega og andlega krefjandi að ganga í gegnum fæðingu. Nýbökuð móðir getur verið mjög úrvinda og tilfinningalega viðkvæm, maki getur líka fundið fyrir sveiflum í tilfinningalífi og allt er þetta fullkomnlega eðlilegt. Þess vegna er mjög mikilvægt að við getum boðið þeim næði, öryggi og hvíld á þessum fyrstu klukkustundum og sólarhringum. Þessi tími er einstakur og leggur grunn að tengslamyndun foreldra og barns. Ég veit að starfsfólk Landspítala veitir framúrskarandi umönnun. Þar fer fram gríðarlega gott starf og starfsfólk vinnur af alúð og mikilli fagmennsku að styðja fjölskyldur á þessum mikilvægu tímamótum. En þó að við leggjum okkur fram getum við ekki skapað það næði og þá hvíld sem foreldrar þurfa þegar húsnæðið sjálft er ófullnægjandi. Hvernig liði þér að deila svefnherberginu þínu með tveimur ókunnugum einstaklingum og nýfæddu barni þeirra? Það er veruleikinn sem margir nýbakaðir foreldrar mæta eftir fæðingu á Landspítala. Tvö foreldrapör og tveir nýburar deila einni stofu sem er á stærð við hefðbundið hjónaherbergi. Á milli þeirra er aðeins lítið skilrúm. Við slíkar aðstæður er hvorki hægt að tryggja góða hvíld né það næði sem fjölskyldur þurfa á fyrstu dögum nýfætt barns. Það er mikilvægt að geta boðið hverri fjölskyldu eigið rými þar sem hún fær notið fyrstu daganna með barninu sínu í friði. Næði á þessum tíma er ekki munaður, það er hluti af góðri og manneskjulegri heilbrigðisþjónustu. Vandinn einskorðast ekki bara við sængurlegudeildina. Fæðingarstofurnar á Landspítala eru margar hverjar of litlar fyrir nútíma fæðingarþjónustu. Þar eru enn nokkrar stofur með sameiginlegri salernisaðstöðu og það er einungis ein einangrunarstofa á deildinni til að nota þegar um smitgát er að ræða. Núverandi húsnæði er frá árinu 1976 og er löngu orðið barns síns tíma. Það er þröngt, óhentugt og svarar ekki kröfum nútímans. Oft þurfa margir fagaðilar að koma að fæðingu barns og jafnvel með búnað sem tekur pláss. Slæmur aðbúnaður bitnar ekki aðeins á foreldrum og börnum heldur einnig á starfsfólkinu sem sinnir þessari mikilvægu þjónustu á hverjum degi. Í mörg ár hefur verið unnið að stærstu heilbrigðisframkvæmd sem gerð hefur verið, uppbyggingu nýs Landspítala. Milljarðar hafa farið í skipulag, hönnun og framkvæmdir. Samt virðist fæðingarþjónustan hafa setið eftir í skipulaginu því að á nýjum Landspítala er ekki gert ráð fyrir fæðingardeild né sængurlegudeild. Þrátt fyrir að þar hefjist líf þúsunda Íslendinga á hverju ári hefur ekki verið sýnd sú framtíðarsýn sem ætla mætti að sjálfsögðu væri til staðar. Það er því eðlilegt að spyrja: Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Nýjar fjölskyldur á Íslandi og fagfólk Landspítala eiga betra skilið. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Barnalán Landspítalinn Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Lok ríkisábyrgðar marka kaflaskil Rafnar Lárusson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin kom saman og byggði Kvennaathvarf – Takk! Esther Hallsdóttir Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun