Innlent

Þróunin mælist á­fram hæg en stöðug

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Landris í Svartsengi heldur áfram.
Landris í Svartsengi heldur áfram. Vísir/Vilhelm

Landris og kvikusöfnun við Svartsengi mælast áfram hæg en stöðug. Líklegasta sviðsmyndin er enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnjúksgígaröðinasem gæti leitt til eldgoss en jarðskjálftavirkni á svæðinu mælist áfram lítil. 

Þetta segir í tilkynningu á vef Veðurstofunnar um stöðuna á Reykjanesskaga. Nýjustu líkanreikningar gefi til kynna að undir Svartsengi hafi safnast fyrir rúmar 28 milljónir rúmmetra af kviku frá upphafi síðasta goss, þann 16. júlí á síðasta ári. 

„Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss,“ segir á vef Veðurstofunnar. Líkt og áður þurfi að gera ráð fyrir stuttum fyrirvara en hann sé á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir. 

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík sé áfram lítil og hættumat haldist óbreytt og gildi til 30. september næstkomandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×