Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 23. júlí 2026 06:18 Þann 29. ágúst gengur íslenska þjóðin að kjörborðinu og svarar einni spurningu: Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Hér er ekki spurt hvort þjóðin eigi að ganga inn, heldur hvort við eigum að ganga til samningaviðræðna. Sú ákvörðun verður ekki tekin fyrr en þjóðin hefur séð fullbúinn samning og fengið tækifæri til að greiða atkvæði um hann sérstaklega, í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er grundvallaratriði sem hefur því miður kafnað í hávaðanum undanfarnar vikur. Í stað þess að ræða inntak málsins, hvað við ætlum okkur að fá út úr slíkum viðræðum og hvernig við ætlum að verja íslenska hagsmuni, hefur umræðan aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga. Sumir fjölmiðlar hafa lagt sig fram um að mála þetta ferli sem eitthvað annað en það er. Ég ætla ekki að eyða dýrmætum tíma kjósenda í að eltast við hvert einasta slíkt skot. Þjóðin á betra skilið en þras. Hún á skilið staðreyndir. Staðreyndin er þessi: Verði niðurstaðan já, opnast dyr að samningaborði. Ekkert annað. Íslensk stjórnvöld setjast þá við borðið með skýr markmið, ekki opinn tékka. Og hafi einhver haldið að slíkar viðræður þýði að Ísland afsali sér einhverju fyrirfram, þá er sá skilningur einfaldlega rangur. Ekkert er frágengið fyrr en yfir lýkur, og þá aðeins ef þjóðin sjálf samþykkir niðurstöðuna. Samningsmarkmið Til að taka af allan vafa um hvað íslensk stjórnvöld myndu leggja upp með í slíkum viðræðum liggur þegar fyrir mikilvæg leiðsögn. Þegar Alþingi samþykkti þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 28. maí síðastliðinn lá fyrir álit meirihluta utanríkismálanefndar sem markar afstöðu meirihluta þingsins til þeirra mála sem mestu skipta. Þar koma samningsmarkmiðin fram svart á hvítu. Á þeim grunni verður mótuð tillaga að megin samnings markmiðum sem stjórnvöld munu leggja til grundvallar, staðfesti þjóðin að viðræður skuli hefjast. Í sjávarútvegsmálum er markmiðið skýrt og engum vafa undirorpið: Ísland haldi fullu forræði yfir sjávarauðlindinni og rétti okkar til að stýra veiðum á grundvelli sjálfbærni, ráðgjafar sérfræðinga og veiðireynslu, og að afrakstur auðlindarinnar haldist hér áfram. Í landbúnaði er lögð áhersla á að hér verði áfram hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis og byggða, og að banni við innflutningi lifandi dýra verði viðhaldið til að verja sérstöðu okkar sem eyju langt út í hafi. Í orkumálum er markmiðið að forræði þjóðarinnar yfir vatns og orkuauðlindum haldist óskorað, og að ákvörðun um sæstreng verði áfram íslensk ákvörðun eins og lög kveða á um í dag. Þá er stefnt að því að Ísland geti tekið upp evru eins fljótt og aðstæður leyfa, að aðildargjöld skili sér sem best til baka til samfélagsins, ekki síst til brothættra byggða, að sérlausnir sem þegar hafa fengist í gegnum EES samstarfið haldi gildi sínu, og að staðinn verði vörður um norræna vinnumarkaðsmódelið, þar á meðal rétt aðila vinnumarkaðarins til að semja sjálfir um kjör. Eins er kveðið á um að Ísland njóti samstöðu og samtryggingar á sviði öryggis og varnarmála frá fyrsta degi, á sama tíma og sérstaða okkar sem herlausrar þjóðar verði virt. Þjóðin velur Þessi samningsmarkmið eru skýr pólitísk leiðsögn frá meirihluta Alþingis, sem stjórnvöld og samninganefndir sem skipaðar verða hagaðilum alls staðar að úr samfélaginu, munu fara eftir þegar og ef til aðildarviðræðna kemur. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst um eitt: Viljum við að Ísland setjist við samningaborðið og freisti þess að ná eins hagfelldum samningi og völ er á, með þessi markmið að leiðarljósi? Verði svarið já opnum við á tækifæri. Með því að segja nei lokum við þessum dyrum. Í báðum tilvikum er það þjóðin sjálf sem ræður. Það er kjarni málsins, og hann breytist ekki þótt reynt sé að flækja hann. Höfundur er utanríkisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar