Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar 23. júlí 2026 12:00 Umtalaðasta blaðagrein um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst er eftir eitt höfuðskáld þjóðarinnar, Hannes Pétursson. Greinin birtist 23. júní og þar er klykkt út með þessum orðum: „Varla mun af veita að Evrópusinnar haldi vöku sinni, ekki síst á kjördegi nú í ágúst. Mér segir svo hugur að hatrammir mótstöðumenn muni leggja allt undir í þeirri viðleitni að kæra kosningaúrslitin, ef þau verða þeim ekki að skapi, minnugur þess hvernig afturhaldsöflunum hér um árið tókst að ómerkja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um nýja stjórnarskrá. Til þess arna nægði þeim tittlingaskítur.“ Hannes Pétursson misminnir. Afturhaldsöflin ómerktu ekki þjóðaratkvæðagreiðsluna um nýja stjórnarskrá 2012 heldur kosningar til stjórnlagaþings 2010. Það er ekki bara skáldið. Hér er á ferð landlægur misskilningur sem dúkkar upp aftur og aftur. Þó er rétt að halda því til haga að skáldið hitti samt í mark: Íslenskt afturhald hefur um langa hríð komist upp með að hafa að engu úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. Og einmitt þar liggur skýringin á hinum þráláta misskilningi. Nánar um það rétt bráðum. Fyrst um kosningarnar til stjórnlagaþings 2010: Sex hæstaréttardómarar tóku ákvörðun í janúar 2011 um að ógilda þær kosningar á grundvelli formsatriða. Engar grunsemdir voru uppi um kosningasvik eða áhöld um að úrslit kosninganna væru ekki rétt. Og því var hafnað að endurtelja atkvæðin, sem þó hefði verið hægt að gera til að eyða öllum hugsanlegum efasemdum, þótt engar væru uppi. Í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni reyndist síðan ekki standa steinn yfir steini, líkt og Reynir Axelsson stærðfræðingur fór rækilega yfir í greinargerð og einnig í viðtali við Egil Helgason (sjá hér >>). Athugið að þetta var ákvörðun en ekki dómur. Dómur hefði útheimt málflutning sem aftur hefði afhjúpað málatilbúnaðinn. Því hann var vissulega „tittlingaskítur.“ Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur brást við þegar ákvörðun dómaranna var kynnt í fjölmiðlum og sagði að hann vissi ekki önnur dæmi þess í lýðræðisríki að kosningar hefðu verið ógiltar í heilu lagi. Þetta var fyrsta atlaga „afturhaldsaflanna“, sem Hannes Pétursson nefnir svo, að nýju stjórnarskránni. Það átti að kæfa hana í fæðingu. — Atlagan mistókst. Alþingi sýndi stórhug og kjark og skipaði þau sem hlutu kosningu til stjórnlagaþings, hina þjóðkjörnu fulltrúa, í Stjórnlagaráð, sem síðan skilaði Alþingi umbeðnum tillögum að nýrri stjórnarskrá. Þjóðaratkvæðagreiðslan um nýja stjórnarskrá 20. október 2012 fór í öllum greinum fram eins og til stóð. Fullkomlega. Þar samþykktu 67% kjósenda að tillögurnar sem fyrir þá voru lagðar skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands. Alþingi hefur ekki enn virt úrslit þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Að Alþingi virði ekki niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem það boðar til er þvílíkt reginhneyksli að það rúmast illa í höfði fólks í lýðræðisríki. Það hlýtur að vera skýring og þess vegna hefur umræddur misskilningur smám saman orðið til: Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um nýja stjórnarskrá var ómerkt. — En nei, það er rangt. Ekkert slíkt gerðist. Alþingi sem nú boðar til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 hefur enn ekki virt afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem það boðaði til um nýja stjórnarskrá 2012. — Það hefur afleiðingar að virða ekki úrslit kosninga og ógöngur blasa við. Alþingi verður því gefa kjósendum ótvíræð merki um að það muni virða úrslit kosninga. Allra kosninga sem það boðar til, alltaf. Það stendur upp á ríkisstjórnina að byrja og hafa hraðar hendur. Hjörtur Hjartarson Höfundur er í stjórn Stjórnarskrárfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörtur Hjartarson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Sjá meira