Lebron fer til Fíladelfíu Andri Broddason skrifar 24. júlí 2026 15:55 LeBron James mun leika með Philadelphia 76ers á næsta tímabili. Luke Hales/Getty Images LeBron James mun skrifa undir tveggja ára samning við Philadelphia 76ers.
Þetta staðfestir Rich Paul, umboðsmaður James, í samtali við Shams Charania hjá ESPN. Þetta er fjórða liðið sem LeBron James mun spila fyrir í NBA deildinni en hann hefur spilað fyrir Los Angeles Lakers síðan 2019. Áður hefur hann spilað fyrir Miami Heat og Cleveland Cavaliers. Hann hefur fjórum sinnum á ferlinum verið NBA-meistari og náði því síðast árið 2020 með LA Lakers. James skrifaði ekki undir nýjan samning hjá Los Angeles Lakers og hafa verið miklar vangaveltur um hvert LeBron James myndi fara en Fíladelfía varð fyrir valinu. Í vikunni birti fyrrverandi lið LeBron James, Miami Heat, óvart tilkynningu um að félagið ætlaði að kynna leikmanninn aftur til leiks. Nú er ljóst að ekkert verður úr því. LeBron James er 41 árs gamall og því farið að síga á seinni hluta ferilsins hjá honum. Þetta er 24. tímabilið sem hann er leikmaður NBA en enginn á jafn mörg tímabil í deildinni. Hann hefur verið valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar fjórum sinnum auk þess sem hann hefur verið valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaeinvígisins og gerði það nú síðast árið 2020. Philadelphia 76ers hefur verið duglegt að sækja sér leikmenn en Jaylen Brown skrifaði undir samning við liðið. Hann var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaeinvígisins 2024 þegar hann varð NBA-meistari með Boston Celtics. Síðasti NBA-meistaratitill 76ers kom árið 1983 og því hafa stuðningsmenn félagsins þurft að bíða lengi eftir öðrum titli. Liðið komst síðast í úrslitaeinvígi deildarinnar árið 2001 þar sem Allen Iverson var stjarna Fíladelfíu-liðsins. Þar tapaði 76ers úrslitaviðureigninni við Los Angeles Lakers sem var með Kobe Bryant og Shaquille O'Neal innanborðs.
NBA Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Fleiri fréttir LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Sjá meira