Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. júlí 2026 19:52 Natasha Anasi var á skotskónum í kvöld. vísir/guðmundur Natasha Anasi, reyndasti leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur, brosti breitt eftir að liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitum í fyrsta sinn. Natasha skoraði þriðja og síðasta mark Grindavíkur/Njarðvíkur í öruggum sigri á Fram, 0-3, í dag. „
Við erum bara mjög spennt og ég er bara svo stolt af þessu liði, hvað það sýndi fólki í dag og hvernig spilamennskan var. Ég er bara svo ánægð,“ sagði Natasha við Vísi í leikslok. Hún sagði að flestallt sem Grindavík/Njarðvík lagði upp með fyrir leikinn hefði gengið upp. „Já, það voru nokkur atriði sem við hefðum getað gert betur en eiginlega allt sem við vorum að leggja upp gekk alveg vel,“ sagði Natasha. Staðan í hálfleik var 0-1 en eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik kom Ellie Coffield Suðurnesjaliðinu í 0-2. Eftir það var Grindavík/Njarðvík í bílstjórasætinu. „Ég held það hjálpi mjög mikið en eins og við þekkjum ertu aldrei öruggur í 2-0 því það kemur eitt mark og þá er andstæðingurinn kominn aftur inn í leikinn. Svo við lögðum áherslu á að vera einbeittar, spila varnarleik eins og við viljum gera og þegar við fengum boltann að halda honum og vera þolinmóðar. Við gerðum það nú bara nokkuð vel í dag,“ sagði Natasha sem fór af velli undir lok leiks. Hún segir að ekkert ami að sér. „Það er allt í góðu. Ég held að þegar þú ert næstum því 35 ára eins og ég getum við aðeins sparað líka. Ég er líka að læra það líka með líkamann minn. Ég get ekki alltaf spilað níutíu mínútur. Ég held að það hafi bara verið klókt af þjálfarateyminu okkar að greina það og við erum líka með leik á þriðjudaginn,“ sagði Natasha. Miðvörðurinn reynslumikli gekk í raðir Grindavíkur/Njarðvíkur fyrir tímabilið. Liðið er á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, á aðeins öðru ári samstarfsins, en þrátt fyrir það hafði Natasha mikla trú á því þegar hún samdi við það í vetur. „Ég er bara mjög ánægð en þetta var eiginlega, ég veit það hljómar kannski skrítið fyrir einhverja, en þegar ég fór og talaði við þjálfarateymið fannst mér eins og þau væru með rétta hugmynd, allt rétt upp sett og sóttu mjög góða leikmenn eins og þið eruð að sjá. Ég bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona,“ sagði Natasha. Svo bíður bikarúrslitaleikur Grindavíkur/Njarðvíkur þann 12. september. Þar mætir liðið Þrótti. „Ég er mjög spennt. Það er alltaf gaman að spila á Laugardalsvelli svo ég er bara mjög ánægð,“ sagði Natasha að endingu.
Mjólkurbikar kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira