Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. júlí 2026 00:05 Alls hefur 42 þúsund hektara svæði brunnið í suðvesturhluta Frakklands, sem er fjórum sinnum stærra en Parísarborg. EPA/DAMIEN REMBERT Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni.
Slökkviliðsmenn vinna nú í óðaönn við að ná tökum á stærðarinnar gróðureldum sem loga nærri borginni Bordeaux í Frakklandi. Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, segir eldinn færast í átt að Bordeaux í færslu á X. Í gærnótt hafi fimmtíu þúsund manns verið látin yfirgefa heimili sín sunnan við borgina, í Gironde-héraði. Í Gironde koma um fimm þúsund viðbragðsaðilar að slökkvi- og björgunaraðgerðum, þar af 2.500 slökkviliðsmenn. Hermenn og lögreglumenn sjá um rýmingu og aðstoð við björgunaraðgerðir. Fyrr í vikunni létust tveir slökkviliðsmenn við slökkvistörf nærri Bordeaux. Alls hefur 42 þúsund hektara svæði brunnið í suðvesturhluta Frakklands, sem er fjórum sinnum stærra en Parísarborg, segir í umfjöllun AP. 98 þúsund hektarar víðs vegar um landið það sem af er ári. Nicolas Braz, einn þeirra sem leiða slökkvistarf, sagði eldinn bæði óútreiknanlegan og óviðráðanlegan. Alls hafa rúmlega 220 þúsund íbúar í suðvesturhluta Frakklands flúið heimili sín. Eldurinn sé fimmtán kílometra frá Bordeaux þar sem hann er næstur borginni en í henni búa 268 þúsund manns. Thomas Cazenave, borgarstjóri Bordeaux, hafi sagt að ekki stæði til að rýma borgina að svo stöddu. Takmarkanir hafa verið settar á flugumferð á Bordeux-flugvelli til að auðvelda störf viðbragðsaðila, segir í umfjöllun BBC. Takmarkanirnar hafi áhrif á allt áætlunarflug en miklar tafir hafi verið á flugvellinum í dag. Gróðureldarnir á Ávila-svæðinu á Spáni eru einir þeir stærstu í sögu landsins en yfirvöld hafa lýst yfr neyðarástandi þar í landi. Alls hafa 77 þúsund hektarar af landi brunnið, að sögn Söru Aagesen, umhverfisráðherra Spánar. Níutíu þúsund manns hafa flúið heimili sín á Avíla-svæðinu og í Madrídar-héraði. Meðal þeirra sem hafa flúið heimili sín á Spáni eru íslensk hjón. Á laugardag kviknuðu einnig eldar nálægt borginni Valencia. Búist var við þurrki og miklum hita á svæðinu í dag sem gæti gert eldinum kleift að breiðast frekar út um svæðið. Einn lést vegna eldanna í úthverfi Valencia, en það er fyrsta skráða dauðsfall vegna þessa gróðurelda á Spáni. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, heimsótti svæðið vestur af Madrídarborg sem varð illa fyrir gróðureldunum og sagði erfiða tíma vera fram undan. Semja þyrfti um „stórt opinbert samkomulag“ um neyðarástand í loftlagsmálum.
Spánn Frakkland Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Gróðureldar Tengdar fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“ 25. júlí 2026 16:01 Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ 25. júlí 2026 14:04 Mest lesið Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fleiri fréttir Á fjórða hundrað hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming Sjá meira
Komst undan ásamt fjölskyldunni „Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“ 25. júlí 2026 16:01
Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ 25. júlí 2026 14:04