Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 24. júlí 2026 12:35 Evrópumenn vilja framleiða eigin vopn í miklu meiri mæli. Bandarískir hergagnaframleiðendur segja þó að það væri ódýrara og skilvirkara að halda áfram að kaupa vopn frá þeim, samhliða því að auka framleiðsluna að einhverju leyti í Evrópu. EPA/ANDY RAIN Forsvarsmenn bandarískra hergagnaframleiðenda mættu áhyggjum þegar þeir mættu á flugsýningu í Farnborough í Bretlandi í vikunni. Þar lýstu evrópskir viðskiptavinir ítrekað yfir áhyggjum af því að reiða of mikið á Bandaríkjamenn þegar kemur að hergögnum og framleiðslu þeirra.
Víða um Evrópu og í Kanada er unnið að því að auka fjárútlát til varnarmála. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa lengi þrýst á Evrópumenn um að taka meiri ábyrgð á eigin vörnum. Donald Trump hefur þó gengið mun lengra en aðrir forsetar og ítrekað gefið til kynna að hann kæmi bandamönnum Bandaríkjanna í Evrópu ekki til aðstoðar í stríði. Ráðamenn í Evrópu óttast margir að ekki sé lengur hægt að treysta á það að Bandaríkjamenn muni koma vinum sínum í Evrópu til aðstoðar. Með þetta í huga eru uppi ætlanir um að draga verulega úr því hve mikið ríki Evrópu reiða sig á bandaríska vopnaframleiðendur, en þar er mikið verk að vinna. Í skýrslu sem sænska hugveitan Stockholm International Peace Research Institute, eða SIPRI, gaf út í fyrra kom meðal annars fram að á fimm árum höfðu kaup Evrópu á hergögnum frá Bandaríkjunum aukist verulega. Heilt yfir hafði innflutningur Evrópu á hergögnum rúmlega tvöfaldast, sé hann borinn saman við fimm ár þar áður. Nærri því tveir þriðju þessara hergagna komu frá Bandaríkjunum. Skýrslan sem gefin var út fyrr á þessu ári sýndi þó að Bandaríkjamenn höfðu aukið umsvif sín á sviði vopnasölu til muna. Frá 2016 til 2020 var markaðshlutdeild þeirra þegar kemur að útflutningi á vopnum 36 prósent, samkvæmt SIPRI, en frá 2021-2025 hafði hún aukist í 42 prósent. Næstir voru Frakkar með 9,8 prósent, Rússar voru í þriðja sæti með 6,8 prósent, Þjóðverjar voru í fjórða með 5,7 prósent og Kínverjar í því fimmta með 5,1 prósent. Meira fullveldi Ráðamenn í Evrópu fara nú fram á að hafa meiri stjórn á framleiðslu og virðist sem bandarískir hergagnaframleiðendur séu tilbúnir til að koma til móts við þá. „Við heyrum skilaboðin hátt og skýrt,“ sagði Daniel Tenney, einn af æðstu yfirmönnum Lockheed Martin, við Reuters. „Evrópumenn vilja meira fullveldi og aukna framleiðslugetu heima fyrir.“ Bandaríkjamenn segja að það yrði mun ódýrara og skilvirkara fyrir ríki Evrópu og Kanada að kaupa bandarísk vopn í stað þess að eyða peningum í að þróa ný og óreynd vopn. Hergagnaframleiðendur vestanhafs segjast tilbúnir til að auka framleiðslu og tækniþróun í Evrópu. Á flugsýningunni í Farnborough var til að mynda tilkynnt að Lockheed Martin myndi þróa og framleiða ódýrari flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi með evrópskum og bandarískum samstarfsaðilum. Fyrirtækið hafði áður gefið út að til stæði að framleiða ATACMS-eldflaugar með þýska fyrirtækinu Rheinmetall. Þá tilkynntu forsvarsmenn Raytheon einnig, samkvæmt Reuters, að fyrirtækið myndi auka framleiðslu Stinger-flugskeyta í Evrópu. Vilja framleiða sjálfir Þetta hefur þó ekki dregið nægilega úr ótta Evrópumanna, þar sem margir hafa áhyggjur af því að bandarísk fyrirtæki muni alltaf setja bandarískan herafla í forgang þegar kemur að framleiðslu. Sérfræðingar sem ræddu við Reuters segja Evrópumenn ekki lengur sætta sig við að kaupa eingöngu fullkláruð vopn frá Bandaríkjunum. Þeir vilji aðgengi að undirliggjandi tækni og vilja geta breytt, bætt, viðhaldið og framleitt vopnin í meira mæli sjálfir.
Bandaríkin NATO Hernaður Donald Trump Evrópusambandið Kanada Bretland Tengdar fréttir Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Valdimír Pútín, forseti Rússlands, segir að auka þurfi hergagnaframleiðslu ríkisins enn frekar og undirbúa Rússlandi fyrir frekari stríð í framtíðinni. Hergagnaframleiðsla í Rússlandi rúmlega tvöfaldaðist á síðasta ári en Pútín segir það ekki duga til, því framtíðin nálgist óðfluga. 23. apríl 2025 13:51 Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Bandarískir embættismenn og erindrekar hafa kvartað við kollega sína í Evrópu yfir ætlunum ráðamanna þar um að draga úr hergagnakaupum frá Bandaríkjunum. Mörg ríki Evrópu stefna nú á umfangsmikla hernaðaruppbyggingu sem má að hluta til rekja til ótta við að Evrópa geti ekki lengur reitt sig á Bandaríkin. 2. apríl 2025 16:04 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira
Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Valdimír Pútín, forseti Rússlands, segir að auka þurfi hergagnaframleiðslu ríkisins enn frekar og undirbúa Rússlandi fyrir frekari stríð í framtíðinni. Hergagnaframleiðsla í Rússlandi rúmlega tvöfaldaðist á síðasta ári en Pútín segir það ekki duga til, því framtíðin nálgist óðfluga. 23. apríl 2025 13:51
Kvarta sáran yfir vopnakaupum Evrópu Bandarískir embættismenn og erindrekar hafa kvartað við kollega sína í Evrópu yfir ætlunum ráðamanna þar um að draga úr hergagnakaupum frá Bandaríkjunum. Mörg ríki Evrópu stefna nú á umfangsmikla hernaðaruppbyggingu sem má að hluta til rekja til ótta við að Evrópa geti ekki lengur reitt sig á Bandaríkin. 2. apríl 2025 16:04