Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 27. júlí 2026 09:00 Ein helstu rök, og mögulega þau einu haldbæru, sem andstæðingar ESB-aðildar nota fyrir því að halda í íslensku krónuna, er sá „sveigjanleiki“ sem hún veitir okkur. Röksemdin er sú að þegar illa árar í landinu getum við fellt gengið. Gengisfallið hækkar útselt verðmæti útflutningsins og virkar eins og eins konar dempari á vinnumarkaðnum. Við þekkjum þetta vel frá hrunsárunum þegar gengið féll um helming. Krónan endaði innan gjaldeyrishafta, verðbólgan fór í tæplega 20%, en atvinnuleysið varð minna en víða í Evrópu vegna þess að við gátum „beitt genginu“. En leyfum okkur að kalla þetta réttum nöfnum: Gengisfall er ekkert annað en sjálfvirk, heildstæð launalækkun á alla þjóðina. Nær tuttugu ár eru liðin frá fjármálahruninu. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar er þessum gamla „styrkleika“ krónunnar enn haldið að okkur sem einhverjum töfrahring. Bæði stjórnmálafólk og sérhagsmunaaðilar reyna að telja okkur trú um að þessi eina staðreynd trompi allt annað: Háa verðbólgu, okurvaxtastig og verðtryggingu. Okkur er stillt upp við vegg: Hvort viltu frekar, háa verðbólgu eða mikið atvinnuleysi? En er þetta raunverulega valið sem við stöndum frammi fyrir? Spólum til dagsins í dag Ef við rýnum í staðreyndir frá evrópsku hagstofunni, Eurostat, birtist allt önnur mynd: Á árinu 2025 var atvinnuleysi á Íslandi að meðaltali 4,4% og verðbólgan 3,7%. Átta ESB-ríki voru með bæði lægra eða sama atvinnuleysi og minni verðbólgu en við. Nýjustu mánaðargögn sýna að 13 ESB-ríki standa okkur mun framar á hvoru tveggja mælikvarðanum, og tíu þeirra nota evruna. Sjá töflu og graf neðst í grein. Að halda því fram að við neyðumst til að búa við viðvarandi verðbólgu og háa vexti til að koma í veg fyrir atvinnuleysi er einfaldlega mýta. Tugir milljóna Evrópubúa búa í löndum þar sem atvinnuleysi er í lágmarki, en fólk þarf samt ekki að bera 8-10% óverðtryggða vexti á húsnæðislánunum sínum. Hver er raunverulegi kostnaðurinn? Krónan getur svo sannarlega fórnað kaupmætti almennings til að bjarga stöðu útflutningsfyrirtækja í kreppu. En hver er kostnaðurinn sem heimilin og smærri fyrirtæki í landinu þurfa að bera í eðlilegu efnahagsástandi? Aðgangur að evrunni og innri markaðnum er enginn töfrasproti og honum fylgir auðvitað hvorki suðrænt veðurfar né peningar sem vaxa á trjám. En á einhverjum tímapunkti verðum við að spyrja okkur: Hvenær er krónuumhverfið fullreynt? Sagan sýnir að evruríkin búa við stöðugleika sem hefur sjaldan eða aldrei þekkst á Íslandi. Þar étur verðbólgan ekki upp kjarasamninga á nokkrum mánuðum og verðtrygging hækkar ekki höfuðstól lánanna frá einum mánuði til annars. Ef mörg Evrópuríki geta búið við lægra eða svipað atvinnuleysi og við, en með mun lægri verðbólgu, breiðara framboði á lánsfé og skaplegri vöxtum, af hverju ættum við þá ekki að vilja það sama fyrir íslensk heimili? Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum . Tafla 1. Atvinnuleysi og verðbólga í Evrópu – samanburður við Ísland Graf 1. Atvinnuleysi og verðbólga í Evrópu – apríl 2026 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar