Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar 27. júlí 2026 12:30 Fyrir síðustu kosningar voru Evrópumál hvergi á meðal þeirra tíu mála sem kjósendur töldu mikilvægust í Þjóðarpúlsi Gallup, þar sem aðeins 11% aðspurðra nefndu þau á meðal fimm mikilvægustu málaflokkanna. Nú, áður en kjörtímabilið er hálfnað, er þrátt fyrir það boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Hvernig gerðist þetta? Viðreisn hefur alla tíð horft hýrum augum til Evrópusambandsins. Aðild Íslands að sambandinu hefur frá stofnun flokksins verið eitt af meginstefnumálum hans og stór hluti af pólitískri tilveru hans. En flokkurinn fékk aðeins 15,8% atkvæða í síðustu alþingiskosningum, fáir aðrir flokkar deila áhuga hans á aðild og málið var langt frá því að vera meðal helstu forgangsmála kjósenda fyrir kosningar. Það var því fátt sem benti til þess að Viðreisn tækist að gera þetta helsta baráttumál sitt að stórmáli kjörtímabilsins. Viðreisn lét þó ekki segjast. Vegferðinni hefur verið skipt upp í nokkur lítil skref og á hverju þeirra hefur tekist að færa málið áfram án þess að fyrst þurfi að afla stuðnings við lokamarkmiðið sjálft, sem er að Ísland gangi í Evrópusambandið. Fyrst þurfti að sannfæra samstarfsflokkana. Það var ekki sjálfgefið, enda er Flokkur fólksins á móti aðild að Evrópusambandinu og formaður Samfylkingarinnar sagði fyrir kosningar að Evrópumálin yrðu ekki forgangsmál á kjörtímabilinu. En Viðreisn þurfti ekki að sannfæra samstarfsflokkana um aðildina sjálfa. Aðeins um næsta skref. Að þjóðin yrði spurð „hvort hefja ætti aðildarviðræður á ný“. Það fór í gegn og rataði í stjórnarsáttmálann. Síðan var næsta skref að koma þjóðaratkvæðagreiðslunni í gegnum þingið. Eftir að hafa fengið Flokk fólksins með í að gera málið að ríkisstjórnarmáli var Viðreisn í raun allir vegir færir. Vandinn var þó sá að nú þurfti að sannfæra fleiri. Það eru ekki margir flokkar sem hafa aðild Íslands að Evrópusambandinu á stefnuskrá sinni og andstaðan við aðild nær þvert yfir hið pólitíska litróf, frá Sósíalistaflokknum og Vinstri grænum til Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Þá fékk málið nýjar umbúðir. Ekki væri verið að taka afstöðu til aðildar heldur einfaldlega að „treysta þjóðinni“ fyrir ákvörðuninni um næsta skref. Á sama tíma hafði ríkisstjórnin sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki náð tökum á vöxtum og verðbólgu og stjórnarandstaðan gerði athugasemdir við að Evrópumálin væru sett í þennan forgang, ekki síst þegar enginn þingmeirihluti væri fyrir aðild. En gagnrýnin var færð yfir á annað plan. Þeir sem vildu ekki fara þessa leið voru sakaðir um að „treysta ekki þjóðinni“, jafnvel um að vera hræddir við hana. Spurningin varð því ekki lengur hvort rétt væri að hefja þessa vegferð, heldur hvort þingmenn treystu þjóðinni til að ákveða það sjálf. Annað lítið skref. Enn án þess að taka þyrfti afstöðu til lokamarkmiðsins. Eftir að hafa komið málinu í gegnum ríkisstjórnina og þingið, án þess að stuðningur væri við lokamarkmiðið, var komið að þriðja skrefinu: að sannfæra þjóðina. Þar er sömu aðferð beitt. Vissulega er ýmsum mögulegum ávinningi haldið á lofti. Lægri vöxtum, meiri stöðugleika og öðru sem kynni að fylgja. En kjósendur þurfa hvorki að sannfærast um að neitt af þessu verði raunin né að aðild sé Íslandi fyrir bestu. Þeir eiga einfaldlega að „kíkja í pakkann“ og segja „já til að sjá“. Jafnframt er því haldið á lofti að þeir sem mæla gegn aðild, annaðhvort viti ekki nóg og þurfi því að „sjá samninginn“, eða hafi einhverra hagsmuna að gæta. En það má ekki gleyma hvernig umræðan varð til. Aðildarviðræður eru ekki komnar á dagskrá vegna þess að þjóðin kallaði eftir þeim, heldur vegna þess að Viðreisn kom sínu helsta baráttumáli þangað. Þeir sem eru því mótfallnir þurfa ekki að réttlæta afstöðu sína með því að vilja ekki „sjá“. Evrópusambandið er enda enginn lokaður eða óþekktur pakki. Við vitum hvað það er, hvernig það virkar og í stórum dráttum hvað aðild að því felur í sér. Fólk getur kynnt sér málið, vegið kosti og galla og komist að þeirri niðurstöðu að Ísland eigi ekki að ganga í sambandið. Til þess þarf ekki fyrst að fara í aðildarviðræður. Því verður ekki neitað að leikfléttan er meistaraleg. Viðreisn hefur náð þeirri fágætu stöðu að geta knúið sitt helsta stefnumál áfram án þess að þurfa á nokkru stigi að afla meirihlutastuðnings við lokamarkmiðið sjálft. Samstarfsflokkarnir þurftu ekki að taka afstöðu til aðildar. Þingið þurfti ekki að taka afstöðu til aðildar. Þjóðin þarf ekki að taka afstöðu til aðildar. Umræðan er alltaf færð yfir á þægilegri spurningu. Hver getur verið á móti því að spyrja þjóðina og treysta henni? Hver vill ekki kíkja í pakkann og segja já til að sjá? Þessi aðferð er líklega ekki hugsuð fyrir þá sem hafa kynnt sér málið og þegar tekið afstöðu. Hún er hugsuð fyrir kjósandann sem hefur ekki sérstakan áhuga á að kynna sér Evrópusambandið, hefur öðrum hnöppum að hneppa og yppir öxlum: Ja, af hverju ekki? Miðað við hvernig fyrstu þrjú skrefin hafa verið seld kemst maður ekki hjá því að velta fyrir sér hvernig fjórða skrefið verður selt, segi þjóðin já í ágúst. Markmið vegferðarinnar er aðild Íslands að Evrópusambandinu. Kosningin nú er sögð lítið og saklaust skref, enda fái þjóðin síðar að kjósa um samning. En þá verður staðan önnur en hún er í dag. Þá hafa liðið ár, viðræður farið fram, tími og fjármunir farið í ferlið og aðildarsamningur liggur á borðinu. Þá verður spurningin ekki lengur hvort Ísland eigi að hefja þessa vegferð. Hún verður hvort eigi að snúa við eftir að hafa farið hana alla leið að samningi. Og miðað við það sem á undan er gengið þarf ekki mikið ímyndunarafl til að sjá fyrir sér næsta frasa. „Ætlum við virkilega að segja nei núna, eftir allan þennan tíma og allan þennan kostnað? Það var þjóðin sjálf sem gaf umboðið til að fara þessa leið.“ Það hefði verið hægt að fara aðra leið. Byrja á að ræða kosti og galla aðildar. Láta aðildarsinna sækja sér skýrt umboð. Spyrja þjóðina fyrst hvort hún vilji yfir höfuð að Ísland gangi í Evrópusambandið og hefja síðan viðræður ef svarið væri já. Líklega var þó hentugra að snúa röðinni við og taka bara næsta skref. Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel.Höfundur er lögfræðingur og bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Miðflokkurinn Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun