Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar 28. júlí 2026 11:33 Umræða um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur verið sett fram eins og ferlið sé afar einfalt: við sækjum um, setjum fram kröfur og samningaviðræður leiða okkur áfram. En er það þannig. Fyrri reynsla okkar og annarra ríkja sýnir að þetta er ekki svo. Ábyrgð stjórnvalda felst því í að kanna pólitíska stöðu og raunhæfa möguleika áður en þessi vegferð fer fram. Því legg ég til að það verði sent bréf til allra rikja ESB og fá skýr svör frá þeim, þá sérstaklega í ljósi þess að Hollenska þingið hefur þegar samþykkt ályktun með 146 af 150 atkvæðum um að hafna undanþágum og Írar hafa lýst yfir að þeir vilji jafnræði í fiskveiðimálum. Frakkar og Spánverjar hafa varið sameiginlega fiskveiðistefnu af mikilli hörku. Þetta eru pólitískar hindranir sem ekki má gera lítið úr. “Formlegt bréf til 27 ríkja ESB (Tillaga) Í ljósi umræðu á Íslandi og kosningu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er mikilvægt að skýra grundvallaratriði sem varða sérstöðu Íslands og þau þjóðarhagsmunamál sem óhjákvæmilega þarf að taka afstöðu til áður en formlegt ferli hefst. Ísland hefur í áratugi (frá 1975) byggt efnahagslíf sitt á 200 sjómílna efnahagslögsögu sem er alfarið innan íslenskrar lögsögu samkvæmt alþjóðalögum. Fiskistofnar Íslands eru ekki deildir með öðrum ríkjum og íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið hefur verið þróað í samræmi við líffræðilega sérstöðu hafsvæðisins. Þetta kerfi er ekki samhæft sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB og er í raun hluti af þeirri sérstöðu sem ESB hefur áður samþykkt varanlegar undanþágur til sumra aðildarríkja. Efnahagslögsaga Íslands felur ekki aðeins í sér fiskveiðar heldur einnig hafsbotn, orkuvinnslu, leyfisveitingar, rannsóknir og framtíðarauðlindir sem tengjast líftækni og hafefnafræði. Full yfirráð yfir þessu svæði eru grundvallaratriði í íslenskum þjóðarhagsmunum og ófrávíkjanleg forsenda þess að Ísland geti tryggt sjálfbæra nýtingu auðlinda og efnahagslegt sjálfstæði til framtíðar. Sérstaða Íslands nær þó lengra en efnahagslögsagan. Ísland er herlaust ríki en gegnir lykilhlutverki í öryggismálum Norður-Atlantshafsins. Landið er hluti af varnarsamstarfi NATO og gegnir mikilvægu hlutverki á GIUK-hliðinu, sem hefur áhrif á kafbátaleit, ratsjárvöktun og lofthelgisgæslu. Þessi staða hefur bein áhrif á öryggisstefnu bæði NATO og ESB og gerir Ísland að ómissandi samstarfsaðila í norðurslóðapólitík. Þá er Ísland stofnríki í Norðurskautsráðinu og hefur beinan aðgang að heimskautasamstarfi sem ESB hefur lengi sótt eftir að komast nær. Ísland er því brú inn í umræðu um norðurslóðir, auðlindir, siglingar, loftslagsmál og öryggi á heimskautssvæðinu. Í ljósi þessarar sérstöðu er nauðsynlegt að kanna fyrirfram hvort pólitískur vilji sé til staðar innan Evrópusambandsins til að samþykkja varanlega undanþágu sem tryggir full yfirráð Íslands yfir allri 200 mílna efnahagslögsögu, þar á meðal fiskveiðistjórnun, hafsbotni, auðlindum og leyfisveitingum, sem hluta af hugsanlegum aðildarsamningi. Slík undanþága þyrfti að vera bundin í sérstakri bókun sem yrði hluti af ESB-rétti og óbreytanleg nema með samþykki allra aðildarríkja. Ísland óskar því eftir skýru svari við eftirfarandi spurningu: Myndi ríkisstjórn yðar styðja varanlega undanþágu Íslands sem tryggir full yfirráð Íslands yfir 200 mílna efnahagslögsögu, þar á meðal fiskveiðistjórnun, hafsbotni, auðlindum og leyfisveitingum, sem hluta af hugsanlegum aðildarsamningi við Evrópusambandið? Svör yðar munu skipta sköpum fyrir mat Íslands á því hvort rétt sé að hefja formlegar aðildarviðræður. Með þessari fyrirspurn er leitast við að tryggja gagnsæi, virðingu og ábyrgð gagnvart þjóðarhagsmunum beggja aðila og forðast að hefja ferli sem gæti strandað á grundvallaratriðum sem ekki er hægt að semja um eftir á. Virðingarfyllst, Fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands Kristrún Frostadóttir, Forsætisráðherra Íslands” Þetta bréf eða eitthvað álíka tel ég vera nauðsynlegt til að halda andliti og virðingu gagnvart íslenskum kjósendum og ríkjum ESB. Hrein og bein samskipti er gott fararnesti til framtíðar. Höfundur er byggingafræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar