Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar 30. júlí 2026 11:32 Ísland stendur nú frammi fyrir mikilli íbúðauppbyggingu og ný fjölbýlishús rísa víða um land. Samhliða þessari þróun hafa reglulega komið fram fréttir af göllum í nýbyggingum, þar sem íbúar og húsfélög standa frammi fyrir kostnaðarsömum úrbótum skömmu eftir afhendingu. Svo ekki sé talað um umhverfisáhrifin sem ótímabærar viðgerðir og endurbætur geta haft í för með sér. Þetta vekur eðlilega spurningar um gæði bygginga, eftirlit og ábyrgð innan byggingargeirans. Þegar rætt er um gæði bygginga hugsa mörg fyrst og fremst um sýnilega frágangsgalla. Gæði bygginga eru hins vegar mun víðtækara hugtak. Þau snúast um hvernig byggingin þjónar fólkinu sem býr og starfar í henni til lengri tíma. Þættir á borð við dagsbirtu, hljóðvist, loftgæði og heilnæma innivist skipta þar miklu máli. Jafnframt eru rakavarnir, loftþéttleiki, ending byggingarefna og vandaðar framkvæmdir lykilatriði til að tryggja að mannvirki standist tímans tönn. Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins gegndi áður mikilvægu hlutverki við rannsóknir og þekkingaruppbyggingu á sviði mannvirkjagerðar. Eftir að hún varð hluti af Nýsköpunarmiðstöð Íslands og síðar lögð niður hafa rannsóknir í byggingariðnaði að stórum hluta byggst á styrkveitingu úr Aski – mannvirkjasjóði. Þar hefur verið unnið mikilvægt starf, en mörg hafa bent á að fjármunir séu takmarkaðir miðað við umfang og mikilvægi greinarinnar. Þrátt fyrir það hefur jákvæð þróun átt sér stað á undanförnum árum. Byggingarreglugerð hefur verið endurskoðuð og ný ákvæði innleidd sem ætlað er að styrkja gæði byggðs umhverfis. Þar má nefna nýjar kröfur um ljósvist, lífsferilsgreiningar og uppfærðar kröfur um steypu. Í reglugerðinni er því þegar að finna fjölmörg ákvæði sem eiga að tryggja gæði og umhverfisáhrif bygginga. Vandinn virðist því ekki vera skortur á kröfum. Í lengri tíma hefur verið krafa um að framkvæmt sé loftþéttleikapróf sem er mikilvægur þáttur í að tryggja bæði orkunýtni og rakavarnir. Reynslan bendir hins vegar til þess að eftirlit með slíkum kröfum sé ekki alltaf nægilegt. Reglur hafa takmarkað gildi ef þeim er ekki framfylgt. Í því samhengi er áhugavert að horfa til umhverfisvottana á borð við Svansvottun og BREEAM en á síðustu árum hefur umhverfisvottuðum mannvirkjum fjölgað töluvert. Frá því fyrst var farið að Svansvotta byggingar á Íslandi hafa þar verið gerðar kröfur sem ganga lengra en byggingarreglugerð. Þar hafa til dæmis lengi verið gerðir dagsbirtuútreikningar og nú stendur yfir endurskoðun á viðmiðunumí takt við nýjustu breytingar á regluverki og tækniþróun. Til að tryggja að kröfum sé fylgt þarf eftirlit að vera virkt. Byggingarreglugerð getur sett fram góðar og gildar kröfur og vottunarkerfi geta skilgreint enn metnaðarfyllri markmið, en árangur næst aðeins þegar tryggt er að kröfunum sé fylgt. Í því felst eitt mikilvægasta framlag Svansvottunarinnar. Hún setur ekki aðeins strangari kröfur heldur tryggir einnig óháð eftirlit þar sem þriðji aðili yfirfer gögn, útreikninga og framkvæmir úttektir á vettvangi. Ef við viljum draga úr göllum í nýbyggingum og auka traust almennings á byggingargeiranum þurfum við ekki aðeins ítarlegri kröfur. meiri rannsóknir og markvissa eftirfylgni. Gæði bygginga ráðast ekki af því sem stendur í reglugerðum heldur af því hvernig þeim er framfylgt. Þar liggur lykilinn að betri byggingum og betri heimilum til framtíðar. Höfundur er sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar