Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Sigurgeir Þorkelsson skrifar 30. júlí 2026 14:20 Jonathan er með margra ára reynslu sem bílstjóri í ferðaþjónustunni. Hægra megin má sjá flak bílsins eftir að hafa oltið niður brekkuna. Samsett Jonathan Angulo Cifuentes ökuleiðsögumaður fylgdist með skelfingu lostinn þegar Suzuki Jimny-jepplingur keyrði út af veginum og steyptist niður hlíðar Bolafjalls í gær. Hann segir ökumanninn hafa, á miklum hraða, tekið fram úr þremur rútum áður en hann missti stjórn á bílnum með þessum afleiðingum.
Jepplingurinn stöðvaðist á stórum steini eftir að hafa endasenst tvö hundruð metra niður stórgrýtta fjallshlíðina. Fjölskylda sem Vísir ræddi við í gær lýsti því hvernig hún bjóst við því versta eftir að hafa orðið vitni að slysinu en trúði síðan varla eigin augum þegar hún sá konu skríða út úr flakinu. Ótrúlegt en satt slasaðist konan aðeins á handlegg við veltuna. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, hefur staðfest að um er að ræða erlendan ferðamann. Jonathan ökuleiðsögumaður segist fara nær daglegar ferðir upp á Bolafjall á Mercedes-Benz Sprinter, nítján sæta smárútu sem oft er einfaldlega talað um sem sprinter. Farþegarnir koma af skemmtiferðaskipum sem stoppa í Ísafjarðarhöfn. „Ég keyri þennan veg nánast daglega og ég hef alltaf álitið þetta vera öruggan veg, að því gefnu að ökumenn fylgi reglum og sýni varkárni.“ Jonathan segist stíga fram til að hvetja fólk til að gæta öryggis á vegum landsins. „Það síðasta sem ég vil gera með því að deila minni hlið á málinu er að færa sökina á einstaklinginn heldur vil ég benda á hvernig háskaleg hegðun eins ökumanns getur sett fjölda mannslífa í hættu,“ segir Jonathan en sannarlega má segja að betur hafi farið en á horfðist í gær. „Sem betur fer slasaðist enginn um borð í rútunum þremur en það hefði svo auðveldlega getað farið öðruvísi.“ Útsýnispallur hefur verið reistur uppi á Bolafjalli og opinn ferðafólki frá árinu 2022 og það var þangað sem Jonathan stefndi með hópinn. „Um það bil 100 til 200 metrum eftir fyrstu beygjuna á leið upp tók ég eftir því í baksýnisspeglinum að Suzuki-jepplingur hóf að taka fram úr sprinternum á bak við okkur á miklum hraða,“ lýsir Jonathan. „Í stað þess að ljúka örugglega við framúraksturinn eftir næsta bíl aftan við hélt ökumaðurinn áfram, þrátt fyrir að þetta væri þröngur fjallvegur og framúrakstur væri bæði hættulegur og með öllu óviðeigandi.“ Á toppi Bolafjalls má finna ratsjárstöð Landhelgisgæslu Íslands. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Jonathan áttaði sig strax á hættunni, hægði á sér og gerði sitt besta við að skapa pláss vinstra megin við sig fyrir bílinn sem nálgaðist hratt. „Bílstjórinn virtist þó þegar vera farinn að missa stjórn á bílnum,“ segir Jonathan. „Strax og ég áttaði mig á því hvað ætti sér stað hægði ég á mér og reyndi að skapa eins mikið pláss og ég gat á veginum. Bíllinn kom ótrúlega nærri bílnum mínum,“ lýsir Jonathan, en viðbrögð hans dugðu ekki til fyrir jepplinginn sem nálgaðist vinstri hlið rútunnar á miklum hraða. Bolafjall setur svip sinn á umhverfi Bolungarvíkur. Myndin er úr safni. Vísir/Anton „Það næsta sem ég sá var vinstra afturdekk bílsins fara út af veginum. Örskotsstundu seinna heyrði ég hávært hljóð í vél bílsins þar sem allt var gefið inn.“ Samkvæmt lýsingu Jonathans var þá þegar orðið of seint fyrir ökumann jepplingsins að ná aftur stjórn á aðstæðum. Hann segir ökumann jepplingsins hafa gert lokatilraun til að ná aftur stjórn með að rykkja í stýrið en allt kom fyrir ekki, jepplingurinn fór á hliðina og steyptist síðan niður fjallshlíðina. „Þetta var skelfileg sjón,“ segir Jonathan en rútan hans fylltist strax af öskrum og ópum farþeganna. Aðeins er fært upp á Bolafjall hluta úr ári. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm „Þau voru öll slegin eftir að hafa horft upp á slys sem auðveldlega hefði getað endað sem mikill harmleikur,“ segir Jonathan, en sem fyrr sagði slapp ökumaður bílsins án alvarlegra áverka. Ökumaðurinn var einn á ferð í bílnum. „Jepplingurinn var skuggalega nálægt því að fara utan í alla þrjá sprinterana sem voru á leiðinni upp þegar hann keyrði fram úr,“ segir Jonathan til að leggja enn frekar áherslu á alvarleika atviksins. Hann vill sjá úrbætur gerðar á veginum. „Vegurinn er vissulega breiðari í dag og í mun betra ástandi en fyrir aðeins nokkrum árum síðan, en hann er engu að síður fjallvegur þar sem engu má út af bregða,“ segir Jonathan. Útsýnið frá Bolafjalli á heiðskírum degi er óviðjafnanlegt. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm „Ég keyri þennan veg daglega og mér þætti rétt að sjá þetta slys leiða til þess að settar verði upp frekari öryggisráðstafanir á veginum. Ég vil stinga upp á því að settar séu upp gular umferðarstikur eftir vegsbrúninni, á þeirri hlið sem snýr að hlíðinni.“ Jonathan segir að í dag sé þær aðeins að finna nærri fjallsbrúninni. „Sams konar merkingar eru notaðar á vegum um allt land og aðstoða ökumenn við að halda öruggri fjarlægð frá vegbrúninni. Ég tel að þetta sé eitthvað sem gæti komið í veg fyrir sams konar slys í framtíðinni,“ segir Jonathan staðfastur. Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn staðfestir við fréttastofu að akstur ökumannsins teljist ekki glæfraakstur í skilningi laganna og að málið verði ekki tekið lengra. Uppfært 15:46 með staðfestingu frá lögreglu á Vestfjörðum að málið verði ekki tekið lengra.
Bolungarvík Umferðaröryggi Ferðaþjónusta Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Fleiri fréttir Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Sjá meira