Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar 4. ágúst 2026 07:02 Umræða um dánaraðstoð verður aldrei einföld, og hún á ekki að vera það. Hún krefst þess að við sem samfélag horfumst í augu við spurningar um líf og dauða, sjálfræði og mannhelgi, mannlega reisn og ábyrgð okkar gagnvart viðkvæmum hópum. Vönduð umræða snýst ekki um einfalt „með“ eða „á móti“, heldur um að halda í senn á lofti virðingu fyrir sjálfræði einstaklingsins og skyldu samfélagsins til að vernda fólk gegn þrýstingi. Hér er tekin sú afstaða að dánaraðstoð geti, við skýr og ströng skilyrði, verið mannúðlegt úrræði svo lengi sem mannhelgi, gagnsæi og eftirlit séu í fyrirrúmi. Sjálfsákvörðunarréttur og verndun lífsins Eitt helsta ágreiningsefnið snýr að togstreitunni milli sjálfsákvörðunarréttar og verndunar lífs. Stuðningsmenn dánaraðstoðar leggja áherslu á rétt einstaklingsins til að ráða eigin lífslokum, sérstaklega þegar um er að ræða ólæknandi sjúkdóm og þjáningu sem viðkomandi upplifir sem óbærilega. Andmælendur leggja aftur á móti áherslu á að lífið hafi ófrávíkjanlegt gildi og að samfélagið eigi ekki að heimila aðstoð við að deyja, óháð aðstæðum. Að lina þjáningu og að valda skaða Dánaraðstoð reynir á helstu gildi siðfræði heilbrigðisstétta: sjálfræði, skaðleysi, velgjörð og réttlæti. Þeir sem styðja lögleiðingu telja að dánaraðstoð geti verið verk samhygðar þegar engin önnur úrræði duga til að lina þjáningu. Synjun geti þá valdið meiri skaða en aðstoðin sjálf. Þjáningin þarf ekki aðeins að vera líkamleg heldur getur hún einnig verið tilvistarleg þegar einstaklingur hefur misst lífsgæði, sjálfsbjargargetu og möguleika á að njóta einhvers. Á móti koma þær siðferðilegu áhyggjur að hlutverk lækna sé að líkna og lækna, en ekki að binda enda á líf. Slíkur óafturkræfur verknaður geti stangast á við skaðleysisregluna og grafið undan grundvallarsiðferði heilbrigðisstétta. Ólík túlkun á mannlegri reisn Hugtakið „mannleg reisn“ er túlkað með ólíkum hætti. Sumir skilja reisn sem rétt einstaklingsins til að forðast langvarandi þjáningu og lífslok sem ganga gegn gildum viðkomandi. Aðrir telja að reisn sé óháð líkamlegu ástandi og felist í að halda ófrávíkjanlegum hlífiskildi yfir lífinu. Þeir óttast að dánaraðstoð sendi þau skilaboð að líf sumra séu minna virði, einkum þeirra sem glíma við veikindi, fötlun, öldrun eða eru háð aðstoð annarra. Vernd viðkvæmra hópa og „rennibrautaráhrif“ Algeng mótrök lúta að hættu á misnotkun og svokölluðum „rennibrautaráhrifum“: að þröngar heimildir til dánaraðstoðar í byrjun muni víkka með tímanum og að viðkvæmir hópar geti fundið fyrir þrýstingi til að velja dauðann vegna einmanaleika, skorts á þjónustu eða tilfinningarinnar um að vera byrði. Þeir sem styðja lögleiðingu dánaraðstoðar telja að skýr lagasetning, faglegt hæfnismat og óháð eftirlit geti dregið úr þessum áhyggjum. Raunveruleg vernd felist ekki aðeins í því að metandi aðilar geti sagt nei, heldur einnig í því að tryggja að „ég vil“ sé sagt af frjálsum vilja og án þrýstings. Traust, læknar og líknarmeðferð Dánaraðstoð kallar fram spurningar um traust og hlutverk heilbrigðisstétta. Sumir óttast að samband læknis og sjúklings raskist ef sama fagstétt hefur það hlutverk að bjarga lífi og taka þátt í að binda enda á það. Þá eru áhyggjur af því að dánaraðstoð verði talin einfaldari kostur en að fjárfesta í öflugri líknarþjónustu og mannsæmandi umönnun. Þeir sem styðja lögleiðingu benda hins vegar á að traust geti byggst upp innan skýrs og gagnsæs ramma. Dánaraðstoð sé ekki staðgengill líknarmeðferðar, heldur val um endalok þegar einstaklingur upplifir að áframhaldandi tilvist feli fyrst og fremst í sér óbærilega bið eftir dauðanum. Andmælendur benda á að síðustu dagar náttúrulegs dauða geti haft djúpt gildi fyrir aðstandendur. Samverustundir með hinum deyjandi, jafnvel þegar viðkomandi er rænulítill eða meðvitundarlaus, geti hjálpað fólki að kveðja og vinna úr sorginni. Á móti má spyrja hvort hugmyndir aðstandenda um góðan dauðdaga eigi að vega þyngra en afstaða þess sem er að deyja. Kjarni málsins er því einnig hver eigi að hafa síðasta orðið þegar þjáning er orðin óbærileg. Samfélagsleg gildi og hlutverk umræðunnar Viðhorf til dánaraðstoðar mótast af menningarlegum, trúarlegum, siðferðilegum og samfélagslegum gildum. Fólk getur komist að ólíkum niðurstöðum út frá þeim. Við getum þó ekki rætt dánaraðstoð í tómarúmi. Ef Ísland ætlar að ræða slíka löggjöf af alvöru þarf umræðan að taka mið af íslenskum aðstæðum: skipulagi þjónustu við lífslok, aðgengi að líknarþjónustu, úrræðum fyrir fólk með alvarlega og ólæknandi sjúkdóma og áhrifum mönnunar, biðlista, fámenni og nálægðar á traust og faglega fjarlægð. Spurningin er því ekki aðeins hvort dánaraðstoð eigi að vera heimil, heldur hvernig tryggja megi að hún sé raunverulegt, upplýst og frjálst val, en ekki afleiðing þjónustuskorts eða félagslegs þrýstings. Niðurstaða Í kjarna umræðunnar um dánaraðstoð liggur togstreita milli gildisviðmiða sem virðast vera í mótsögn en hafa velgjörð að markmiði. Á annarri vogarskálinni eru sjálfræði, samkennd og einstaklingsréttur; á hinni vernd gegn þrýstingi, varfærni og samfélagsleg mörk. Hvorki má gera lítið úr þjáningu þeirra sem óska dánaraðstoðar né vanmeta áhyggjur af því að samfélagið bregðist þeim sem eru hvað berskjölduðust. Mannúð felst ekki í einföldum svörum, heldur í því að takast á við þessa mótsögn af heiðarleika. Það gerum við með því að taka þjáningu alvarlega, vernda þau sem eru berskjölduð og tryggja að fólk sem stendur frammi fyrir óbærilegum lífslokum hafi raunverulegt val innan skýrra, öruggra og mannúðlegra laga. Greinarhöfundur er formaður Lífsvirðingar, sem vinnur að lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun