Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar 3. ágúst 2026 12:00 Á dögunum svaraði undirritaður rangfærslum og afbökun á skýrslu sem unnin var fyrir Áfram Ísland og RSE. Því hefur nú aftur verið svarað og það gefur tilefni til fáeinna orða. Það sem er lang áhugaverðast við nýjustu greinina er það sem ekki kemur fram. Í greininni er áfram spólað í hjólförum tveggja mynda af mörgum sem sýna þróun kaupmáttar og hagvaxtar. Það sem er hins vegar ekkert vikið af er upptalning í fyrri grein minni um beinar rangfærslur, þær eru sex talsins, t.d. að skýrslan hafi með einhverju móti gefið til kynna að ríkissjóðir 27 ríkja ESB séu allir stórskuldugir miðað við Ísland (skýrslan sýnir skuldir allra ríkjanna og þróun mest, meðal og minnst skuldsettustu) eða að skýrslan segi að krónan sé stöðugri en evran (hún sýnir hið gagnstæða, en munurinn er lítill). Maður öskrar á ský Næstáhugaverðast er að þessi svokallaða ritdeila er skilgreind með þeim hætti að undirritaður kannast ekki við hana. Í fyrsta lagi á deilan að snúast um hvort að Ísland sé í annarri deild en þau lönd sem við berum okkur saman við. Í skrifum mínum og í skýrslunni hefur það ekki komið fram, einungis að staða Íslands sé mjög sterk að mestu leyti miðað við samanburðarþjóðir, sem nær allir virðast reyndar vera sammála um. Hvernig aðrir lýsa sterkri stöðu Íslands þarf höfundur að eiga við þá sjálfa. Í öðru lagi á málið að snúast um hvort skynsamlegt sé að skoða sóknarfæri í mögulegri ESB aðild. Aftur, skýrslan og fyrri grein mín víkur ekki einu orði að því. Skýrslan snýst um það sem hún snýst og ekkert annað. Fyrri grein mín fjallar síðan einvörðungu um punktana 10 í skýrslunni sem voru, eða verða, gagnrýndir. Aftur að hagvexti Sem fyrr segir spólar höfundur enn í hjólförum tveggja mynda sem flestir sem kynna sér málin ættu að sjá að eru teknar úr samhengi. Mikil áhersla er lögð á að gagnrýna eina mynd um hagvöxt en áfram er skautað fram hjá því að skýrslan byggir einnig á þróun landsframleiðslu á vinnustund (framleiðni) og landsframleiðslu á mann. Ég myndi ætla að við ættum að vera sammála um að það séu mikilvægir mælikvarðar en í gagnrýninni er hins vegar eins og þeir séu hvergi sjáanlegir í skýrslunni og að meginniðurstaðan um velgengni Íslands hangi á einu grafi.. Málið verður enn furðulegra þegar höfundur bregst við ábendingu minni um að hagvöxtur sé iðulega notaður sem lykilmælikvarði á efnhagsþróun landa og samanburð þeirra. Um það erum við nefnilega sammála. Hann nefnir góð dæmi um gagnsemi hagvaxtar sem mælikvarða. Að sögn höfundar er sá mælikvarði hins vegar ekki nothæfur vegna þess að það: „Þegar við vorum að bera saman lífskjör íbúa milli landa voru auðvitað notaðir mælikvarðar þar sem bornar voru saman ýmsar stærðir á hvern íbúa“ Þetta er alveg rétt, skýrslan fjallar hins vegar ekki eingöngu um lífskjör á hvern íbúa þó það komi víða fram í ólíku samhengi. Það stendur bæði í titli skýrslunnar og í byrjun greinargerðar hennar að hún líti jafnframt til efnahagsmála og hagstærða. Höfundur telur sjálfur upp mikilvægar ástæður þess að líta til hagvaxtar og nefnir á öðrum stað að skýrslan á að „varpa ljósi á stöðu og þróun lífskjara og efnahagsmála“. Getum við þá sett slíkar mótsagnir til hliðar og verið sammála um að hagvöxtur á heima í samantekt sem heitir bókstaflega (í undirtitli) samanburður lífskjara og hagstærða? Aftur að kaupmætti Hitt hjólfarið sem höfundur spólar enn í er ein mynd af mörgum af þróun kaupmáttar. Þar er litlu við að bæta og litlu bætt við. Svarið við því sem ég tel afvegaleiðandi í þeirri umfjöllun er að hann hafi ekki verið að tala um kaupmátt ráðstöfunartekna. Gott og vel, það er samt það sem skýrslan gerir til að draga meðal annars fram það sem stendur í greinargerðinni fremst og er síðan reynt að hrekja með einum mælikvarða af mörgum. Aftur virðist höfundur vilja að skýrslan fjalli um eitthvað annað en hún fjallar. Eða er kaupmáttur ráðstöfunartekna ómarktækur mælikvarði á hvað fólk hefur raunverulega milli handanna? Það væri stórfrétt. Rétt er að ítreka að kaupmáttur launa á Íslandi er sá hæsti meðal OECD ríkja. Ekki lagðist ég í rannsóknir um sjálfa verslunarmannahelgina á öðrum útreikningum en hér er hægt að finna kaupmátt á vinnustund sem krefst eins einfaldra útreikninga og mögulegt er (compenstation per hour worked í PPS) ef bera á saman hver vex hraðar en annar. Þá er niðustaðan sú að kaupmáttur á vinnustund hefur vaxið hraðar á Íslandi frá árinu 2000, jafnvel þó að þarna sé líklega sá mælikvarði á tekjur sem er síst hliðhollur því að kaupmáttur á Íslandi sé mikill. Góður málstaður þarf ekki heldur afvegaleiðingu Það er framför að nýjasta greinin inniheldur engar sjáanlegar rangfærslur. Eins og kom fram í fyrri grein minni þá þarf góður málstaður ekki slíkt. Ábending um rangfærslur er á engan hátt ásökun um óheilindi, öllum getur orðið á. Verra er að þær standa enn og látið er eins og þær séu ekki til eða að lestri á fyrri grein minni hafi verið hætt þegar hún var hálfnuð. Afvegaleiðingar er þó enn að finna eins og að höfundur ákveður einhliða um hvað deilan snýst eða að skýrslan fjalli ekki um þróun efnahagsmála og hagstærða en aðeins lífskjör á mann. Ef skýrsla fjallar um fjöll og dali þýðir ekki að ákveða einhliða að hún fjalli ekki um fjöll en aðeins dali. Höfundur er hagfræðingur og ráðgjafi hjá Kontext ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Konráð S. Guðjónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun