Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. ágúst 2026 08:06 Einar Örn Ólafsson var síðast forstjóri Play. Aðsend Eggert Þór Kristófersson hefur látið af störfum sem forstjóri landeldisfyrirtækisins First Water og í hans stað hefur Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Play, verið ráðinn. „
Stjórn First Water og Eggert Þór Kristófersson, forstjóri félagsins, hafa komist að samkomulagi um að Eggert láti af störfum sem forstjóri félagsins,“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Eggert Þór hefur starfað sem forstjóri undanfarin fjögur ár og unnið að uppbyggingu First Water í Þorlákshöfn og náð mikilvægum áföngum í framleiðslu og sölu á landeldislaxi. Varð fyrirtækið undir hans stjórn eitt af fyrstu landeldisfyrirtækjum heims til að selja landeldislax sem vegur fimm kíló eða meira. „Þetta hefur verið krefjandi en afar skemmtilegur tími. Á örfáum árum hefur okkur tekist að byggja upp öfluga starfsemi og framleiða hágæða landeldislax sem hefur hlotið afar góðar viðtökur á erlendum mörkuðum,“ er haft eftir Eggerti Þór í tilkynningunni. Þá er einnig haft eftir Orra Haukssyni stjórnarformanni að Eggert skilji við félagið á traustum grunni. Stjórn félagsins hefur ráðið Einar Örn sem nýjan forstjóra. Einar hafi áratuga reynslu af bankastarfsemi, fjármögnun, fjárfestingum og fyrirtækjarekstri en hann starfaði síðast sem framkvæmdastjóri flugfélagsins Play. „Ég hlakka til að byggja áfram á þeim sterka grunni sem hefur verið lagður og leiða félagið inn í næsta áfanga vaxtar,“ er haft eftir Einari.
Vistaskipti Tímamót Play Gjaldþrot Play Landeldi Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira