Hvað er í gangi á Svalbarða? Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. ágúst 2026 11:01 Fræbankinn á Svalbarða hefur orðið að efnivið ýmissa samsæriskenninga. EPA Svalbarði er svo norðarlega að hann eru nær Norðurpólnum en nokkru öðru byggðu bóli í Evrópu. Óheimilt er að jarða fólk vegna sífrera í jörðu, konur geta ekki fætt börn vegna skorts á heilbrigðisþjónustu og utan bæjarmarka er nauðsynlegt að bera riffil vegna ísbjarna. Þessi afskekkti og fámenni eyjaklasi hefur á síðustu árum orðið að miðju ýmissa samsæriskenninga.
Á sama tíma býr á Svalbarða fólk af yfir fimmtíu þjóðernum. Þar má finna rússnesk námuþorp með Lenínstyttum á torgum, en einnig þögul, ísköld átök á milli Noregs (sem fulltrúa Vesturlanda) og Rússlands. Á Svalbarða þarf fólk að ferðast utan bæjarmarka með riffla vegna ísbjarna.EPA Svalbarði var lengi vel einskismannsland sem eingöngu vakti áhuga hvalveiðimanna og síðar, kolanámufyrirtækja. Tilhögun svæðisins var komið í fastar skorður með Svalbarðasamningnum árið 1920 á vettvangi Þjóðabandalagsins og árið 1925 varð svæðið hluti af norska konungsríkinu. Eyjarnar undirgangast norsk lög en þegnar allra aðildarríkja mega setjast þar að til atvinnuþátttöku. Svæðið má ekki nýta í hernaðarlegum tilgangi og þar má ekki reisa herstöðvar. Í nýjasta þætti Skuggavaldsins fjalla Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann um þessar merkilegu eyjar sem gegna mikilvægara hlutverki í samsæriskenningum samtímans en lega og fólksfjöldi gefur til kynna. Sennilega er það þó einmitt fjarlægðin, fámennið og framandleikinn sem leggur grunninn að slíkum kenningum. Dómsdagshvelfingin og heimselítan Rúmlega 150 metra inn í frosinni fjallshlíð rétt utan við höfuðborgina Longyearbyen stendur Fræhvelfingin. Hún er einskonar bankahólf þjóða heims sem geymir afrit af mikilvægum fræjum ef neyðarástand á borð við stríð eða náttúruhamfarir skemma innlend fræsöfn. Ísland hefur geymt fræ á Svalbarða í áratugi, framan af í forvera núverandi hvelfingar sem opnaði árið 2008. Sýrland er eina landið sem hefur þurft að taka út fræ, það var eftir að frægeymsla landsins í Aleppo skemmdist í borgarastyrjöldinni. Fræbankinn á Svalbarða geymir fræ frá öllum heimshornum ef neyðarástand kemur upp í heiminum.EPA Í fjölmiðlum er hvelfingunni oft lýst sem „dómsdagshvelfingu“, eins konar bjargvætti mannkyns ef allt fer í bál og brand. Slíkar yfirlýsingar kitla ímyndunaraflið og hjá sumum hefur það farið á flug. Bill Gates fjármagnaði á sínum tíma flutning fræja frá mörgum fátækari löndum sem hefur orðið til þess að ýmsar þekktar sögupersónur nútímasamsæriskenninga, George Soros, Google og efnaframleiðslurisinn Monsanto, eru nú spyrtar saman við hvelfinguna. Samkvæmt þessum kenningum er hvelfingunni stýrt af heimselítu sem ætlar sér að ná stjórn yfir allri matvælaframleiðslu heimsins. Fimleikar á þilfari og rofnir sæstrengir Það sem hefur vakið áhuga mun fleira fólks eru samskipti Rússa og Norðmanna. Rússneskir togarar hafa undanfarin ár siglt um miðin með hætti sem vekur grunsemdir. Tilkynnt er um óvæntar bilanir, skipin sigla margoft yfir mikilvæga sæstrengi, þar á meðal streng sem rofnaði skyndilega árið 2022 og svo virðist sem áhafnir sumra skipanna hafi yngst til muna og sjást nú jafnvel stunda krefjandi líkamsræktaræfingar uppi á þilfari. Sjá einnig: Skemmdu sæstrenginn til Svalbarða í fyrra Aldrei tókst að sanna hver skar á sæstrenginn og rannsókn málsins var að lokum felld niður. En á síðustu árum hefur rússnesk nærvera á eyjunum orðið sífellt meira áberandi sem veldur Norðmönnum og bandamönnum þeirra áhyggjum. Skammt austan við Svalbarða, á Kólaskaga, geyma Rússar stóran hluta kjarnorkukafbátaflota síns og situr eyjaklasinn á jaðri þess hafsvæðis sem flotinn þarf að ráða yfir til þess að geta siglt óhindrað út á Atlantshaf. Nú á sér því stað dagleg togstreita í hánorðri um það hvað telst til hernaðarlega umsvifa og hvað ekki. Vegna yfirstandandi ástands í heimsstjórnmálum skiptir þessi fámenni, ísilagði hólmi miklu meira máli en ætla mætti við fyrstu sýn. Svalbarði er orðinn að einskonar tilraunastofu þar sem tekist er á um sannindi og ósannindi, vald og fullveldi. Þáttur Skuggavaldsins um Svalbarða er nú aðgengilegur í öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Skuggavaldið Noregur Rússland Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira