Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar 4. ágúst 2026 11:03 Spurningin sem þú þarft að spyrja þig áður en þú svarar spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi er einföld. Hvort vilt þú að íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn ráði örlögum hér á Íslandi í komandi framtíð? Okkur getur oft fundist eins og við höfum ekkert um málin hér heima að segja eða að við ráðum engu. Við höfum þó tækifæri til að kjósa fólk á a.m.k. fjögurra ára fresti og þess á milli höfum við Íslendingar fádæma aðgang að okkar kjörnu fulltrúum til að segja frá okkar skoðunum og reynslu. Þetta er fjársjóður sem við kunnum ekki að meta, og mögulega ekki fyrr en að við missum hann að fólk áttar sig á því. Þetta býr fólkið í Evrópu ekki við. Fyrir utan fjarlægð þeirra við kjörna fulltrúa sína þá bætast við tengslarofið sem venjulegt fólk á við embættiskerfið í Brussel. Fólkið sem starfar við að setja reglur ESB fjarlægist hið venjulega fólk. Þrátt fyrir að vera frá hinum og þessum ríkjum innan ESB og telur sig bara eins og alla hina , þá er þetta hópur sem býr við veruleika kerfisins, það verður samdauna lífinu innan embættiskerfisins. Þetta gerir það að verkum að regluverkið sem sett er getur virkað eins og það sé ekki alveg í tengslum við raunveruleika innan mismunandi ríkja ESB. Með þessu er ég ekki að segja að hinn evrópski embættismaður sé slæmur, alls ekki, þetta er fólk eins og ég og þú. Það er hins vegar kerfið sem tekur yfir og fólkið hrífst með. Allt sem gert er kemur eflaust af góðum hug í upphafi, en verandi með 27 mjög ólík ríki innanborðs þá segir það sig sjálft að kerfið sem ætlar að ná utan um sem flesta, verður fjarlægt öllum að lokum. Fjölbreytni ríkjanna gerir regluverkinu erfitt að rúmast fyrir alla svo að vel sé, lægsti samnefnari eða sterkustu hagsmunirnir ráða oft ríkjum. Viljum við virkilega færa valdið sem er hjá kjósendum hérlendis yfir í krumlurnar á embættisliði í Brussel sem engan veginn tengir við lífið hér á landi. Viljum við færa okkur undir vald annara ríkja sem taka auðvitað ákvarðanir byggða á eigin hagsmunum fram yfir okkar hagsmuni þegar á hólminn er komið. Við höfum í dag pálmann í höndunum, við höfum hafsjó af tækifærum og höfum smægðina með okkur að mörgu leyti sem veitir okkur víðtækari tækifæri en við hefðum sem hefðbundið ESB ríki. Innan ESB erum við bara eitt ríki af þá 28 þar sem röddin okkar drukknar innan 27 annara á alþjóðavettvangi á meðan í dag stöndum við sem Ísland, frjáls eyja með eina rödd. Ég vil að valdið sé áfram hjá íslenskum kjósendum, ég mun því kjósa nei þann 29. ágúst. Höfundur er framkvæmdarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar