Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Jón Þór Stefánsson skrifar 5. ágúst 2026 08:03 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Maður var í síðasta mánuði dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í nokkur skipti kynferðismök við stúlku, stjúpsystur sína, þegar hún var þrettán ára gömul. Hann var ákærður fyrir nauðgun, en að mati Héraðsdóms Reykjaness gerðist maðurinn ekki sekur um það.
Ástæðan fyrir þessari niðurstöðu dómsins var sú að stúlkan hefur sagt frá upphafi málsins, og þangað til hún bar vitni fyrir dómi, þá orðin sautján ára gömul, að hún hafi veitt samþykki fyrir samneyti þeirra. Maðurinn mun sjálfur hafa verið um átján ára gamall þegar brot hans voru framin. Hann neitaði ekki að hafa haft við hana kynmök. Hann var ákærður fyrir að hafa í fjölda skipta beitt stúlkuna ólögmætri nauðung og haft við hana samræði og önnur kynferðismök. Það mun hafa gerst frá byrjun árs 2022 til síðla sama árs. Hann var sagður hafa nýtt sér yfirburði sína gagnvart brotaþola vegna aldursmunar og yfirburðastöðu sinnar, þegar hún var tólf til þrettán ára gömul. Dómurinn taldi þó ekki sannað að samneyti þeirra hafi byrjað fyrr en stúlkan var orðin þrettán. Í skýrslugjöf sinni í Barnahúsi sagði stúlkan að þau hefðu haft kynmök mjög sjaldan, „einu sinni í mánuði, eitthvað svoleiðis.“ Fyrir dómi, þá orðin sautján ára, sagði hún að þau hefðu á þessum tíma haft kynmök „kannski þrisvar“. Dómurinn, með vísan í þennan framburð, taldi því sannað þau hefðu haft kynmök allt að þrívegis. Sagðist ekki vita hversu gömul hún væri Maðurinn sagðist ekki hafa vitað hversu gömul stúlkan var þegar þau hefðu haft mök, en líkt og áður segir er um stjúpsystur hans að ræða, en þau hafi þó ekki kynnst fyrr en skömmu fyrir meint atvik. Fyrir dómi mun stúlkan hafa sagt að á þessum tíma hafi hún lagt í vana sinn að ljúga til um aldur. Í rafrænum samskiptum þeirra mun maðurinn hafa spurt hana til um aldur og af svari hennar hafi mátt ráða að hún væri á milli fimmtán og tuttugu ára gömul. Þó er það mat dómsins að með svona óljósu svari hefði maðurinn átt að ganga úr skugga um aldur hennar hafi hann haft í hyggju að hafa við hana kynmök. Í dómnum segir að óhjákvæmilegt sé að líta svo á að maðurinn hafi ekki getað treyst því að hún væri eldri en fimmtán ára. Samþykkið gilt? Maðurinn var bæði ákærður fyrir brot gegn 202. grein almennra hegningarlaga, sem varðar það að hafa samræði eða önnur kynferðismök við barn yngra en fimmtán ára, og fyrir brot gegn 194. grein sömu laga, sem varðar nauðgun. Líkt og áður segir var hann einungis sakfelldur samkvæmt fyrrnefndu greininni. Í dómnum segir að þegar einhver sé sakfelldur fyrir brot gegn 202. greininni, sé sá hinn sami ekki sjálfkrafa sekur um nauðgun, heldur þurfi að leggja sjálfstætt mat á hvert mál fyrir sig. Það felist til dæmist í því að skoða þroska barnsins sem brotið var á. Héraðsdómur Reykjaness kvaddi upp dóm sinn þann 3. júlí síðastliðinn.Vísir/Vilhelm Dómurinn komst að áðurnefndri niðurstöðu vegna þess að stúlkan sagði fyrst í barnahúsi, og svo nokkrum árum síðar fyrir dómi að hún hafi veitt samþykki. „Er þannig ekki aðeins hin 13 ára gamla stúlka, skömmu eftir að rannsókn málsins hefst, sem ber um að hafa veitt samþykki heldur einnig sama stúlka, sem horfir til baka tæplega 17 ára gömul og ber fyrir dómi um að hún hafi samþykkt kynmök, að ákærði hafi aldrei beitt sig þrýstingi og að hann hafi á engan hátt brotið á sér,“ segir í dómnum, sem taldi ekki sannað að maðurinn hafi nauðgað stúlkunni. Að mati dómsins var ekkert í málinu sem gæfi til kynna að samþykki stúlkunnar hafi ekki verið gilt. Maðurinn hlaut eins og hálfs árs fangelsisdóm. Einkaréttarkröfu, sem var lögð fram fyrir hönd stúlkunnar þar sem fimm milljóna króna var krafist í miskabætur, var vísað frá dómi. Manninum var gert að greiða helming málsvarnarlauna verjanda síns, sem hljóðuðu upp á þrjár milljónir króna. Nokkur dæmi á síðustu árum Þess má geta að á síðustu árum hafa komið upp nokkur mál þar sem dómstólarnir veltu fyrir sér hvað teldist nauðgun þegar kæmi að börnum. Sem dæmi má nefna að árið 2023 dæmdi Héraðdómur Norðurlands vestra mann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ítrekað samræði við stúlku, en brot hans voru ekki metin sem nauðgun. Landsréttur og Hæstiréttur voru á öðru máli, álitu brot hans sem nauðgun, og dæmdu í fimm ára fangelsi.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira