„Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Agnar Már Másson skrifar 5. ágúst 2026 13:49 Finnbjörn Hermannsson er forseti ASÍ. Vísir/Arnar Hagfræðingar Landsbankans spá því að stýrivextir hækki í ágúst en að verðbólga standi í stað í mánuðinum. Forseti ASÍ segir að stýrivaxtahækkun muni gera verkalýðshreyfingunni erfiðara fyrir að finna lausn við því ef forsendur kjarasamningar bresta.
Greiningardeild Landsbankans spáir því að Seðlabankinn hækki vexti eftir tvær vikur, enda sé verðbólga vel yfir 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Verðbólga jókst um 0,1 prósentustig í júlí og er talið líklegt að hún standi í stað í 5,3 prósentum í ágúst,. Það bendir flest til þess að forsendur kjarasamninga bresti í september þar sem verðbólga verður að öllum líkindum yfir 4,7 prósenta viðmiði samninganna í næsta mánuði. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, segir lítið hafa gerst síðasta mánuðinn í þríhliða samstarfi sem hefur staðið yfir milli ríkis, verkalýðsforystu og atvinnurekenda í von um að leita leiða til að bregðast við hugsanlegum bresti kjarasamninganna. „Það hefur lítið gerst núna í heilan mánuð í þessu þríhliða samstarfi annað en að undirhópar hafa verið að störfum og við munum væntanlega í næstu viku taka stöðuna á því hvar það liggur,“ segir Finnbjörn hjá ASÍ. Hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu, hærri flugfargjöld, hækkanir á skrásetningargjöldum Háskóla Íslands og hækkun á komugjöldum í heilsugæslu eru meðal þátta sem hafa mest áhrif til að viðhalda hárri verðbólgu, samkvæmt greiningu Landsbankans. Á sama tíma sýni hagkerfið merki kólnunar, en atvinnuleysi mældist 4 prósent í júní og er 0,6 prósentustigum hærra en fyrir ári síðan, að sögn greiningardeildarinnar. Íbúðaverð stóð nánast í stað á milli mánaða í júlí og hefur raunverð íbúða nú lækkað á milli ára átta mánuði í röð. Þó að komur ferðamanna séu færri í ár en í fyrra telur greiningardeildin að þróunin geti snúist við þegar líður á sumarið, ekki síst vegna sólmyrkvans í næstu viku. Hinn 19. október tekur peningastefnunefnd næstu stýrivaxtaákvörðun. „Varðandi þessa ákvörðun Seðlabankans sem er fram undan þá myndi það hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti vegna þess að það er allt að koðna niður í samfélaginu: byggingarstarfsemi er að leggjast af, kaupmáttur er að minnka, þannig að þetta er allt í öfuga átt við það sem forsendur kjarasamninga voru á sínum tíma.“
Kjaramál Efnahagsmál Neytendur Seðlabankinn Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira