Körfubolti

Stjarnan tekur efni­legan leik­mann frá Álfta­nesi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hilmir Arnarson er genginn til liðs við Stjörnuna.
Hilmir Arnarson er genginn til liðs við Stjörnuna. stjarnan körfubolti

Hilmir Arnarson, besti ungi leikmaður Bónus deildarinnar 2024-25, hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna en hann spilaði með Álftanesi á síðasta tímabili.

Straumurinn í sumar hefur hingað til verið meiri frá Stjörnunni til Álftaness, þjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson og bakvörðurinn Luka Gasic fóru báðir þá leið, en nú er dæminu snúið við.

Samkvæmt heimildum íþróttadeildar lagði Stjarnan fram fé og keypti Hilmi frá Álftanesi. 

Hilmir er fæddur árið 2005 og spilaði 22 leiki fyrir Álftanes á síðasta tímabili. Þar skilaði hann 6 stigum og 2,6 fráköstum á að meðaltali 19,3 mínútum í leik.

Tímabilið 2024-25 var Hilmir valinn besti ungi leikmaður Bónus deildarinnar en þá var hann á mála hjá Haukum.

Á sínu fyrsta tímabili hjá Haukum spilaði Hilmir með Emil Barja, núverandi þjálfara Stjörnunnar, svo þeir ættu að þekkjast ágætlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×